blaðið - 15.06.2006, Page 8
8IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2006 blaftið
TÖL
BRAUTARHOLT110-14 | S: 588 1000 | WWW.TASK.IS
Opið:
10-18 virka daga
12-10 laugardaga
Jose Bove lýsir yfir
framboði til forseta
Þekktur franskur andófsmaður hyggst sameina vinstri menn.
2003 fann Ronald McDonald fyrir reiði Bove.
Jose Bove, þekktur franskur bóndi
og baráttumaður gegn alþjóðavæð-
ingu og óæskilegum áhrifa skyndi-
bitamenningar, ætlar að bjóða sig
fram í forsetakosningunum á næsta
ári. f viðtali sem birtist í dagblaðinu
Liberation í gær sagðist Bove vera
reiðubúinn til þess að axla þá ábyrgð
sem fylgir því að vera forseti Frakka
og að hann væri frambjóðandinn
sem gæti sameinað vinstrimenn í
baráttu fyrir umhverfismálum og
réttindum verkafólks.
Jose Bove er með þekktari baráttu-
mönnum samtímans og segja margir
að hann sé holdgervingur andstöðu
gegn því sem margir Frakkar segja
vera neikvæða fylgifiska alþjóðavæð-
ingar. Hann vakti fyrst á sér athygli
á tíunda áratugnum þegar hann
hóf baráttu gegn frjálsri verslun
með landbúnaðarafurðir og erfða-
breyttum matvælum. Hann hefur
einnig verið ötull talsmaður þeirra
sem telja að skyndibitamenning
samtímans, sem hann kallar „le mal-
bouffe,” sé að eyðileggja matarmenn-
ingu einstakra ríkja.
Baráttuaðferðir hans eru oft um-
deildar en hafa óneitanlega vakið
mikla athygli á málstaðnum. Árið
2003 var hann dæmdur í sex vikna
fangelsi fyrir að rústa McDonalds-
skyndibitastað sem var i byggingu
í Frakklandi. Hann var einnig
dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi
í fyrra fyrir að að eyðileggja akur
þar sem ræktað var erfðabreytt
korn. Hann var einnig áberandi í
hópi þeirra sem börðust gegn því
að Frakkar samþykktu fyrirhugaða
stjórnarskrá Evrópusambandsins í
þjóðaratkvæðagreiðslu í fyrra.
Búist er við að fleiri framboðum
á vinstri væng franskra stjórnmála
í forsetakosningunum á næsta ári.
En Bove er sannfærður um að hann
geta sameinað þessi öfl í eina sterka
fylkingu. Hann segir að samein-
ist þeir sem eru andvígir óheftum
markaðsöflum og einokun hags-
muna framleiðanda en berjast fyrir
umhverfisvernd og réttindum verka-
fólks um framboð hans muni hann
bera sigur úr býtum.
Nokkrir góöir dagar
hjá Bandaríkjaforseta
Eftir Örn Arnarson
George Bush, forseti Bandaríkjanna,
hefur ekki séð til sólar í langan
tíma. Ríkisstjórn hans hefur verið
gagnrýnd fyrir vanhæfni í veiga-
miklum málum. Samstarfsmenn
eru sakaðir um spillingu, stuðn-
ingur kjósenda við utanríkisstefnu
hans hefur farið þverrandi og á
sama tíma ógnar hátt heimsmark-
aðsverð á olíu þeim hagvexti sem
skattalækkunaráformum forsetans
var ætlað skapa. Ástandið hefur end-
urspeglast í skoðanakönnunum en
fáir forsetar hafa mælst óvinsælli á
miðju kjörtímabili en George Bush.
Óánægjan hefur meðal annars
orðið til þess að æ fleiri repúblik-
anar óttast að þeir missi meirihluta
sinn á bandaríska þinginu.
Vika er langur tíma pólitík og vís-
bendingar eru um að taflið kunni að
vera að snúast. Nýjar skoðanakann-
anir sýna að í fyrsta sinn í langan
tíma fer stuðningur við forsetann
vaxandi meðal bandarískra kjós-
enda. f síðustu könnun sem Gallup
gerði í Bandaríkjunum kemur fram
að hlutfall þeirra Bandaríkjamanna
sem eru ánægðir með störf forset-
ans er komið í 38% og hefur því auk-
ist úr 31% í maí á þessu ári. Auk þess
kemur fram í könnunum að stuðn-
ingur við forsetann í veigamiklum
málum fer vaxandi, meðal annars
við stefnu hans gagnvart frak og
hagstjórninni og áherslur hans í
innflytjendamálum.
Óvænt til frak
Rótina að óvinsældum George Bush
er ekki síst að finna í þeirri utan-
rikisstefnu sem hann hefur rekið
og hvernig ástandið í frak hefur
þróast. Bandaríkjamenn voru ekki
búinn undir þá skálmöld sem hefur
geysað í landinu eftir að innrásinni
lauk.
En tíðindi síðustu daga hafa gefið
ástæðu til bjartsýni. Mikilvægum
áfanga í að berja uppreisnina í land-
inu niður var náð þegar Abu Musab
al-Zarqawi, leiðtogi Al-Qaeda í írak,
var felldur á dögunum. Það skiptir
ekki siður máli að Nouri al-Maliki,
forsætisráðherra fraks, hefur loks-
ins náð að skipa í öll ráðuneyti í
ríkisstjórn landsins. Sá árangur
hefur meðal annars gert forsætis-
ráðherranum kleift að skipa öryggis-
sveitum landsins að hefja gagnsókn
gegn uppreisnarmönnum. Þetta
gefur bandarískum kjósendum von
um að ástandið fari batnandi og að
bandarískir hermenn festist ekki
Iðnaðarryksugur
FVER HF
Fjöldi aukahluta A nt 602
SKEIFAN 3E-F - 108 REYKJAVIK
SlMI 581 2333 / 581 2415
RAFVEH -HAFVEK.IS - WWW.RAFVER.IS
í feni borgarastríðs eins og óttast
hefur verið.
George Bush hefur nýtt sér fátíðar,
jákvæðar fréttir frá frak til hins ýtr-
asta. Á þriðjudag hélt hann óvænt til
Bagdad og fundaði með al-Maliki.
Með ferðinni var forsetinn að senda
Bandaríkjamönnum tvenn skilaboð.
f fyrsta lagi að árangur væri að nást
í frak og að í framtíðinni verði Banda-
ríkjamanna ekki þörf við að halda
uppi lög og reglu í landinu. f öðru lagi
að uppreisninni í landinu væri langt í
frá lokið og þolinmæði væri þörf.
Á sama tíma og Bush var í frak
bárust þau tíðindi að Karl Rove,
helsti ráðgjafi forsetans, yrði ekki
ákærður í tengslum við rannsókn á
„lekamálinu” svokallaða. Málið hefur
legið eins og mara á Rove undan-
farna mánuði. Tíðindi um að hann
verði ekki ákærður hafa þá þýðingu
fyrir forsetann að Rove getur ein-
beitt sér algjörlega að því verkefni að
tryggja að repúblikanar haldi meiri-
hluta sínum í þingkosningunum
í nóvember. Slíkur sigur myndi
veita forsetanum annað tækifæri til
þess að koma helstu stefnumálum
sínum gegnum þingið. Þrátt fyrir
fyrir núverandi meirihluta hefur
forsetanum gengið illa að koma mik-
ilvægum málum gegnum þingið á
þessu kjörtímabili og segir sú stað-
reynd meira en mörg orð um veika
stöðu Bush. Sigri demókratar í þing-
kosningunum er ljóst að Bush muni
koma litlu í verk næstu tvö árin og
síðara kjörtímabil hans verður talið
algjörlega misheppnað.
Þrátt fyrir að George Bush hafi
upplifað „nokkra góða daga” er sá
jákvæði andi sem svífur nú yfir
vötnum Hvíta hússins fyrst og
fremst til marks um hversu erfið
staða forsetans var orðin. Þrátt fyrir
að vinsældir Bush fari vaxandi sam-
kvæmt könnunum mælast þær enn
litlar. Og góðu dagarnir þurfa að
vera mun fleiri eigi repúblikanar að
sigra í þingkosningunum.
orn@bladid