blaðið - 12.07.2006, Blaðsíða 2
14 I FERÐALÖG OG ÚTIVIST
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 2006 blaAÍA
i m
átíðir um
verslunarmanna-
Gamla góða Sumargleðin kemur saman til að skemmta
í Galtalæk um verslunarmannahelgina.
HELLUSTEYPA JVJ
VAGNHÖFÐA 17 SÍMI 587 2222
Allur er varinn góður. Það er um að gera að byrja strax að skipu-
leggja hvert halda skal þessa frægu helgi því úrvalið er mikið og
um margar uppákomur að ræða.
Dagskrá
Húnavöku
Föstudagur 14. júlf
20:00-20:30 Setningarathöfn í
Brautarhvammi.
20:30-22:00 Sundlaugarpartý fyrir 12-16 ára.
20:30-21:30 Tnnleikar í Blönduóskirkju.
Harpa Þorvaldsdóttir sópransöngkona.
21:00-23:00 Skemmtikvöld i Félagsheimilinu
undir stjórn Ómars Ragnarssonar.
22:00-23:30 Ojasstríóið Mixo's
á veitingastaðnum Við árbakkann.
22:00-01 d)0 Unglingadansleikur i risatjaldi
í Brautarhvammi. Ingó Idol og Veðurguðirnir
ásamt hljómsveitinní Mömmustrákum.
23:00-011)0 Harmónikkudansleikur með
hljómsveit HUH í Félagsheimilinu.
23:30-03:00 Stuðdóettinn Haldapokarnir á
veitingastaðnum Við árbakkann.
Laugardagur 15. júlf
11:00-13:00 Áheyrnarprufur i Míkró-húninum
- söngkeppni barna og unglinga á útisviði
í Brautarhvammi. Þeir bestu fá að syngja
skemmtidagskrá síöar um daginn og fá
glæsileg verðlaun að auki.
11:00-15:00 Hestar fyrir börnin i
Brautarhvammi.
11:00-17:00 Barnaleiktœki i Brautarhvammi,
hoppkastalar, trampolín og risastór hringekja
(Ath. kostar kr. 200 i hringekjuna).
13:00-15:00 Blönduhlaup. Ræsing kl. 13:00
við KB banka.
13:30-17:00 Markaðstjald í Brautarhvammi.
Allt milli himins og jarðar. Húnvetnsk
framleiðsla, hugvit og handverk.
13:30-17:00 Fjöiskylduskemmtun á útisviði:
Ingó Idol, ungir harmónikkusnillingar, Ronja
ræningjadóttir, Ardís Ólöf, Bangsímon og
félagar, Mikró-Húnninn, söngkeppni
barna og unglinga og Lúðrasveit
Tónlistarskóla A-Hún.
17:00-18.00 Tónleikar í Blönduóskirkju.
Jóna Fanney Svavarsdóttir sópransöngkona
og Erlendur Þór Elvarsson tenór.
18.-00-20:00 Hátíðarmatseðill á
veitingastaðnum Við árbakkann.
18:00-20:15 Hverfagrill
Grillkóngar og drottningar þriggja
hverfa Blönduóss kalla saman fólkið i sínu
hverfi og svo er grillað kjöt frá SAH og Kók
drukkið með. Endar með skrúðgöngum úr
hverju hverfi niður í Fagrahvamm.
20:30-23:00 Kvöldvaka og Bakkasöngur i
Fagrahvammi: LúðrasveitTónlistarskóla A-
Hún, sigurvegarar úr sönpkeppninni fyrr um
daginn taka lagið, Ardis Olöf syngur, Hundur i
óskilum group og Bakkasöngur.
23:00-03:00 Dansleikur með Stuðmönnum
í Félagsheimilinu.
Sunnudagur 15. júlf
11:00-12:00 Messa í Blönduóskirkju.
13:00-16:00 Opið hús í Leikskólanum
Barnabæ. Skralli trúður mætir klukkan 14:00
og skemmtir börnunum.
14:00-15:30 Tónleikar í Blönduóskirkju. Ari
Jóhann Sigurðsson tenór, Halldóra Á Heyden
Gestsdóttir sópran og Þórhallur Barðason
baritón.
14:00-17:00 Dagskrá í Heimilisiðiðnaðar-
safninu. Konur sýna hannyrðir, spinna,
kemba, prjóna, sauma út, hekla og fl.
Auk þess verða á boðstólnum alls kyns
athyglisverðar sýningar í Hafíssetrinu,
á veitingahúsinu Við árbakkann, í
Heimilisiðnaðarsafninu, I Hnitbjörgum og
íþróttamiðstöðinni.
Verið velkomin!
INNIPÚKINN
Tónlistarhátíðin Innipúkinn
hefur verið haldin með góðum
árangri undanfarin fimm ár.
Eins og nafnið gefur til kynna
er þetta hátíð fyrir fólk sem
ekki líkar að hírast í tjaldi, en
vill þó gera sér dagamun yfir
verslunarmannahelgina.
Innipúkarnir fá inni á Nasa við
Austurvöll þetta árið en tilgangur há-
tíðarinnar í ár sem önnur ár verður
að bjóða upp á góða tónlist í Reykja-
vík á sama tíma og vertíð útihátíða á
íslandi gengur í garð.
Tónleikar hefjast alla dagana kl.
18 og stendur gleðin fram á rauða
nótt.
Miðasala hófst fimmtudaginn
29. júní kl. 10 á midi.is, í verslunum
Skífunnar, í vel völdum verslunum
BT auk verslunar Hive við Grensás-
veg. Hægt verður að kaupa passa á
alla hátíðina og einstaka daga líka.
Passi kostar 5.900 kr. auk miða-
gjalds og dagspassi kostar 2.600 kr.
auk miðagjalds. Þess ber að geta að
alltaf hefur orðið uppselt á hátíðina,
takmarkað magn miða er í boði og
því um að gera að tryggja sér sæti.
Dagskráin verður með eftirfar-
andi hætti en meira um nákvæmari
tímasetningar má finna á vefsíð-
unni Www.ddr.is/innipukinn
Föstudagur 4. ágúst
Television, Benni Crespo’s Gang,
The Foghorns, Ég, Jan Mayen, Jomi
Massage, Jakobínarína og Jeff Who?
Laugardagur 5. ágúst
Throwing Muses, Weapons, Æla,
Morðingjarnir, Hermigervill, Solex,
Eberg, Hjálmar og Donna Mess.
Sunnudagur 6. ágúst
Speaker Bite Me, Mugison, Mammút,
Ampop, Koja, Norton, Skakkama-
nage, Mr. Silla/ Mongoose og
Ghostigital.
GALTALÆKUR
Allir fslendingar kannast við
útihátíðina í Galtalækjarskógi,
en þar kemur fólk saman og
skemmtir sér án áfengis eða ann-
arra vímuefna.
Hátíðin hefur í gegnum árin verið
sú fjölmennasta og vinsælasta á
landinu enda úrvalið af skemmtiat-
riðum alltaf fjölbreytt og fyrir alla
aldurshópa.
Undir verndarvæng Heklu hefur
svæðið, sem er frá náttúrunnar
hendi einstaklega vel skapað til
útivistar og hátíðarhalda, vaxið og
dafnað.
Bindindismótið í Galtalæk er
fyrir löngu orðið landsþekkt og allt
frá árinu 1967 hafa verið haldnar úti-
hátíðir í Galtalækjarskógi þar sem
mest hafa komið saman um 9.000
manns. Færri vita að tjaldstæðin
í skóginum eru opin allt sumarið
fólki sem vill dvelja í friðsælu og
fögru umhvefi.
I ár munu Stuðmenn mæta ásamt
Birgittu Haukdal, Valgeiri Guðjóns
og Stefáni Karli. Paparnir og Skíta-
mórall verða einnig á hátíðinni og
síðast en ekki síst hefur gamla góða
Sumargleðin með Ragga Bjarna,
Hemma Gunn, Ómari Ragnarssyni,
Þorgeiri Ástvalds og Magga Prins
Póló ákveðið að koma saman að
nýju í þetta eina skipti.
Hljómsveitin f zafold, sem átti stór-
leik í Idolinu í vetur, ætlar að mæta
í Galtalækþessa helgi. Snorri Snorra-
son, sigurvegari Idolsins, treður
upp og Ingó og Bríet Sunna verða
Iíka í Galtalæk. Enn er beðið eftir
að Nylon flokkurinn staðfesti komu
sína en dagskrá þeirra næstu mán-
uði er nokkuð óljós.
Hin árlega flugeldasýning verður
á sínum stað sem og varðeldurinn
sem eru fastir liðir um verslunar-
mannahelgina í Galtalæk.
www.galtalaekur.is
NEISTAFLUGÁ
NESKAUPSTAÐ
Neistaflug er fjölskylduhátíð sem
haldin hefur verið um verslunar-
mannahelgi í Neskaupstað síðan
1993 og verður hún því haldin í 14.
skiptið þetta árið. Upphaflega var
það Ferðamálafélag Norðfjarðar
sem hélt hátíðina, en árið 1998
tók Blús-, Rokk- og Jazzklúbb-
urinn á Nesi við rekstri hátíðar-
innar og hefur farið með hann
síðan.
Fjölskyldan hefur ætíð verið í fyr-
irrúmi á Neistaflugi enda hafa skipu-
leggjendur alltaf haft það að leiðar-
ljósi að fá skemmtikrafta fyrir fólk