blaðið - 12.07.2006, Blaðsíða 6
18 I FERÐALÖG OG ÚTIVIST
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 2006 biaðiö
Hoppferðir í sólino seljast upp
Stöðugar símhringingar á ferðaskrifstofurnar
Það verður seint sagt að veðurguð-
irnir hafi leikið við okkur íslend-
inga það sem af er sumri. Leiðinlegt
veður hefur ráðið ríkjum, lítið hefur
verið um sólböð og þarf því engan að
undra að síminn stoppi ekki hjá ferða-
skrifstofunum þegar sólþyrstir lands-
menn falast eftir flugi hið fyrsta.
Þorvaldur Sverrisson, markaðs-
stjóri Orvals útsýnar, segir ekkert
lát á símhringingum þessa dagana.
,Það er búið að vera alveg sérstak-
lega óvanalegt mynstur í bókunum
undanfarnar vikur og ef litið er yfir
síðustu árin verður að kalla þetta
sögulegt. Við finnum mikið fyrir
því að fólk sé komið með nóg af veðr-
inu hérna heima og vilji einfaldlega
komast burt.“
Er ekki erfitt aðfá hagstæðarferðir ef
tekið er mið af aukinni eftirspurn?
„Þrátt fyrir aukna eftirspurn getur
fólk gert mjög góð kaup. Málið er ein-
faldlega það að eftir árið í fyrra sem
gekk mjög vel, aukna samkeppni
á markaðnum og mikla bjartsýni í
ár var ákveðið að auka framboð til
muna. Það hefur því verið til nóg af
ferðum til þess að anna eft irspurn þó
svo að maður geti kannski engu lofað
um þessi rosatilboð sem hafa verið.“
Mikið um hoppferðir til Mailorca
Miðað við langtímaspá næstu daga,
sem ekki er upp á marga fiska, má
gera ráð fyrir að aukinn fjöldi leiti á
náðir ferðaskrifstofanna. Þorvaldur
segist þess fullviss að símhringingar
haldi stöðugt áfram næstu daga.
„Það sem við eigum laust mun ef-
laust rjúka út og fólk getur enn gert
mjög góð kaup. Fólk virðist almennt
vera farið að þrá að komast í sól-
ina og margir koma með það fyrir
augum að fara út næsta dag. Ein
kom hérna um daginn með ferða-
töskuna með sér, vildi fá ferð sem
fyrst og var komin upp á völl eftir
tvo tíma. Það verður að kallast hopp-
ferð í sólina,“ segir hann og bætir
við að fólk verði að fylgjast vel með
því sem í gangi er vilji það komast út.
,Ef fólk fylgist með vefsíðunum og
hefur svolítið puttann á púlsinum
getur það fengið mjög góð tilboð og
komist í gott veður.“
Hvaða áfangastaðir eru vinsœlastir
um þessar mundir?
„Þegar kemur að hoppum með
stuttum fyrirvara er Mallorca vin-
sælast. Þar er hægt að fá fína pakka
á hlægilegu verði. Eins eru Costa
Blanca og Benidorm mjög vinsælir
áningastaðir um þessar mundir.
Þarna er líka yfirleitt hægt að treysta
á veðrið, en það er einmitt það sem
fólk vill einmitt núna þegar ástandið
er eins og það er á íslandi.“
Hvað með fínni staði eins og Tyrk-
land ogKrít?
„Báðir þessir staðir hafa verið
geysilega vinsælir í sumar, enda al-
veg frábærir. Það er reyndar minna
um einhver súpertilboð þar, vegna
þess einfaldlega að fólk hefur bókað
fyrirfram í þessar ferðir."
Freistandi tilboð fyrir
alla fjölskylduna
Aðspurður um komandi tilboð og
skemmtilega möguleika segir Þor-
valdur ýmislegt á döfinni. Það verði
hægt að fá góð tilboð í sólina og alls
kyns hoppferðir.
„Auðvitað halda margir að fram-
boð á hagstæðum ferðum minnki
í ljósi þess að allir virðast vera að
leita eftir sniðugu hoppi. En það er
alltaf einhver smuga og mögulegt
að fá ferðir á sómasamlegu verði.
Við komum ekki til með að hækka
þrátt fyrir auknar pantanir og engin
ástæða til að sprengja upp verðið.
Við lækkum frekar ef eitthvað er,“
www.sv-gardur.is
GARÐUR
Sveitarfélag í sókn
Byggðarsafn
Flösin, veitingasala
Tjaldsvæði
Verslun
ESSO
Sundlaug
íþróttahús
Banki
Pósthús
Raftækjaverslun
Góðar gönguleiðir
Fjölbreyttfuglalíf
Fjölbreytt dýralíf
Skagagarðurinn
.saga í hverju spori!
Þorvaldur Sverrisson, markaösstjóri Úrvals útsýnar. Blatmnkki
segir hann og bætir við að heilu andi. Sérstaklega þegar þetta eru
fjölskyldurnar geti gert kostakaup. toppstaðir sem allir hafa gaman af.“
„Þegar fjölskyldur geta komist út
fyrir innan við tvö hundruð þúsund .....................................
krónur þá er það óneitanlega freist- halldora@bladid.net
Ódýrari símtöl milli landa
Ásættanlegri símreikn-
ingur eftir ferðalagið
Það þekkja flestir þann ókost
ferðalaga sem felst í dýrum sím-
tölum landanna á milíi og svim-
andi hárra símreikninga þegar
kemur að skuldadögum. Einkum
á þetta við þegar menn eru bú-
settir erlendis við starf eða nám
og hringja í vini og venslamenn
hérna á klakanum.
Nú hefur ný lausn litið dagsins
Ijós hér á landi sem fyrirtækið Atlas-
sími á veg og vanda af. Með því að
fjárfesta í svokölluðum Smartsíma,
sem samanstendur af smartboxi
tengdu í síma og Internetið, má
hringja frá öllum heimsins löndum
og borga einungis það sem sam-
svarar islensku gjaldsvæði.
„Þetta er í fyrsta sinn sem hægt er
að veita símaþjónustu óháð staðsetn-
ingu. Hingað til hefur þjónustan
verið bundin við heimili, en núna
er loksins hægt að fara með þetta er-
lendis. Þjónustunni fylgir smartbox
sem þarf að fara í samband við sima
og internet-router, en þá kemur
sjálfkrafa samband við samskipta-
miðlana á íslandi. Notandinn þarf
ekkert að gera annað en að setja í
samband og svo bara að taka upp
símann. Hann fær þá íslenskan són
líkt og hann væri staddur heima,“
segir Róbert Bragason, stjórnarfor-
maður Atlassíma.
Hringt frítt í heimasíma
Róbert segist sjálfur finna fyrir
miklum mun eftir tilkomu kerfis-
ins og segir þessa þjónustu tvímæla-
laust góða sparnaðarleið fyrir Islend-
inga sem fara út fyrir landsteinana.
„Þetta er auðvitað frábært fyrir þá
sem eru með annað heimili erlendis
eða tímabundið við vinnu eða nám.
Viðkomandi fellur þá undir íslenskt
gjaldsvæði og þarf ekki að hafa
áhyggjur af því að taka upp símann,
eins og margir hafa,“ segir hann og
bætir við að þetta geti munað tölu-
vert miklu. „Ég hef sjálfur ferðast
með mitt númer til m.a. Tyrklands
og Bandaríkjanna og þetta virkar
bara mjög vel og virkar betur en far-
sími varðandi talgæði. Maður bara
hringir í íslensk númer eða tekur
við símtölum frá Islandi og kerfið
gerir engan greinarmun á því hvar
maður er staddur í heiminum. Þetta
er bara allt annað líf.“
Mánaðaráskrift á smartsíma
kostar 1.350 krónur og er þá hægt að
hringja frítt í heimasíma á Islandi
og í smartsíma erlendis. Ef hringt
er í gsm síma kostar mínútan 14,90
krónur miðað við alla síma.
halldora@bladid. net
Bækistöðvaferð í Hornbjargsvita
Sex daga ferð þar sem gengið er út frá Látravík
Skráning á skrifstofu Útivistar í síma 562 1000
lúimsr
Laugavegi 178. Slmi 562 1000. www.utivist Js