blaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 15
blaðið FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2006
ÁLIT I 15
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar skila árangri
Áhrifin af aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar til þess að draga
úr þenslu eru sem óðast að koma
fram. Þessar aðgerðir voru marg-
þættar og var ekki síst ætlað að
þeirra gætti á
ýmsum sviðum
efnahagslífsins.
Það er því mis-
skilningur sem
haldið hefur
verið fram að
eingöngu hafi
verið um að
ræða frestun
--------------- tiltekinna vega-
framkvæmda.
Með útboðsfrestun framkvæmda
á vegum ríkisins var verið að
stuðla að því að ná samkomulagi
við aðra opinbera aðila, eins og
sveitarfélögin um að gera hið
sama og jafnframt að hvetja til
þess að öðrum samstarfsverk-
efnum ríkis, sveitarfélaga og einka-
aðila yrði frestað. Allt til þess að
draga úr þenslu, koma í veg fyrir
verðbólgu, tryggja kaupmátt og'
skapa forsendur fyrir heilbrigðan
útboðs og framkvæmdamarkað.
Einar K. Guðfinnsson
Árangur á sviði húsnæðismála
Tökum fyrst stórt atriði, sem eru
húsnæðismálin. Við vitum að þar
hefur verið gríðarlegur vöxtur. Sá
mesti sem dæmi eru um lengi. Hús
og íbúðir hafa risið upp. Atvinnuhús-
næði byggð í stórum stíl. Aðgengi
að fjármagni var mikið sem skapaði
þetta ástand. Það var öllum ljóst að á
þessa þenslu þurfti að slá. I samþykkt
ríkisstjórnarinnar frá 27. júní fólst
því að lánshlutfall Ibúðalánasjóðs
var lækkað og hámarkslánin sömu-
leiðis. Vextir Ibúðalánasjóðs hafa
síðan hækkað. Allt þetta stuðlar að
minni umsvifum á ibúðamarkaði.
Þetta er að skila árangri. Enn ein
róleg vika á fasteignamarkaði, skrifa
þeir í hálffimm fréttum KB banka i
gær. Það hafa orðið kaflaskil á fast-
eignamarkaðnum og nú spá hinir vís-
ustu menn því að húsnæðisverð fari
lækkandi. Það er ekki skrýtið. íbúðir
hlaðast upp eins og birgðir á lager og
liðið verður fram á næsta ár þar til
þær seljast allar.
Þarna blasir við að þessi umsvifa-
mikli framkvæmdamarkaður mun
dragast saman. Rétt eins og stefnt
var að.
Ekki einangruð aðgerð
Útboðsstopp rikisframkvæmda
má ekki líta á sem einangraða aðgerð.
Hún var liður í tilteknu samspili. Hún
var vitaskuld forsenda þess að hægt
væri að vænta árangurs í viðræðum
okkar við sveitarfélögin og aðra um
að hægja á. Borin von var að nokkur
tæki undir slikar hugmyndir, ef
ríkið héldi áfram útboðum á fullum
dampi. Þessi aðferðafræði rikisins
er líka núna að skila árangri og það
miklum árangri. Nokkur sveitarfélög
hafa þegar kunngert frestanir á fram-
kvæmdum. Nefna má Reykjanesbæ
og Kópavog. Ákvörðun um að stöðva
útboð var þess vegna eins konar vog-
araflsaðgerð sem hefur þessi áhrif.
Það er svo önnur saga að engar
þessar ákvarðanir sem ríkisstjórnin
tók hafa hægt á framkvæmdum í
vegagerð ennþá á þeim svæðum sem
helst hafa verið nefnd. Þessi mál hef
ég þegar útlistað á heimasiðu minni
sigrinum
Haiíí Ftmm
(www.ekg.is). Undirbúningur heldur
áfram og við erum þess vegna vel í
stakk búin til þess að hrinda þeim í
framkvæmd þegar tími verður heppi-
legur, sem augljóslega verður fyrr en
síðar.
Hægt á framkvæmdum við
tónlistar og ráðstefnuhús
Menn ræddu mikið um frestun tón-
listar- og ráðstefnuhúss. Sú ákvörðun
hlaut að gerast í samkomulagi einka-
hlutafélagsins sem að þvi stendur,
ríkisins og Reykjavikurborgar, en
það eru aðilarnir sem standa fyrir
þessari miklu framkvæmd. Nú hefur
verið ákveðið að til slíkra formlegra
viðræðna verði gengið. Allt bendir
til þess að með því að hægja á fram-
kvæmdinni verði hægt að færa þunga
hennar yfir á árið 2008. Það er gott og
skynsamlegt. Líka út frá sjónarhóli
eignaraðila, sem þá munu fá verkið
unnið við viðráðanlegra verði.
Athyglisvert er að fulltrúi Sam-
fylkingarinnar, Stefán Jón Hafstein,
bregst ókvæða við þessu strax í dag.
Það fer ekkert á milli mála að með
þessu er hann að löðrunga félaga
sína sem hafa hamast gegn áformum
ríkisstjórnarinnar um útboðsstopp.
Meðal annars vegna þess að það
komi ójafnt niður. Reykvíkingar
sleppi á meðan landsbyggðin blæði.
Nú sjáum við að þeirra málflutn-
ingur hefur bara verið prívattal en
ekki settur fram í nafni flokksins.
Þar gildir bersýnilega ennþá það sem
forðum var kveðið úr þeim ranni að
hlutfall landsbyggðarinnar í vega-
framkvæmdum sé of hátt.
Forgangsröðun framkvæmdanna
En aðalatriðið er þá þetta. Ákvarð-
anir ríkisstjórnarinnar um aðgerðir
sem kynntar voru fyrir tæpum mán-
uði eru að virka vel á efnahagslífið.
Þær munu stuðla að því að hægt
verður að hefjast handa við þær
verklegar framkvæmdir sem síst
mega bíða, svo sem vegagerð á Vest-
íjörðum og á Norðausturlandi. Menn
höfðu talað þannig að ætla má að um
slíka framkvæmdaröð geti myndast
almenn sátt. Nú fer að koma að því
að menn standi þá við þau stóru orð
og þori að styðja okkur við slíka for-
gangsröðun framkvæmda.
Höfundur er sjávarútvegsráðherra.