blaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjóri: Erna Kaaber
Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson
Þreytandi fólk
Þau sem nú sitja í meirihluta í borgarstjórn virðast nota flest tækifæri sem
þeim gefast til að finna að öllu sem forverar þeirra gerðu, benda á þetta og
benda á hitt, allt til að gera hlut sinn meiri og hinna minni. Þetta eilífa tuð
um þau sem voru á undan er þreytandi og reyndar ekki bjóðandi. Stjórn-
málamenn verða að nota lokaða sali til að rífast um það sem ekkert er og
hlífa okkur hinum við karpinu.
Gísli Marteinn Baldursson hefur hugsanlega verið manna duglegastur við
þessa iðju. Hann virðist ekki komast úr kosningahamnum. I Blaðinu í gær
er hann spurður, í annars merkilegri frétt, um bensínstöðvarklúðrið mikla.
Öllum er Ijóst að fulltrúar R-listans bera ábyrgðina á vandanum, það hefur
margsinnis komið fram. Gísli Marteinn er fastur í kosningafarinu, hann
segir ekki hægt að hætta við framkvæmdina og orðrétt segir hann: „Ég hef
verið á móti þessu máli frá upphafi. Mér finnst þetta ákaflega vond stað-
setning og að mínu mati er það algjörlega óskiljanlegt hvað gamla meirihlut-
anum gekk til þegar þetta var ákveðið. Vegir R-lsitans virðast órannsakan-
legir en við sitjum uppi með þetta og ef við ætluðum okkur að breyta þessu
gætum við átt yfir höfði okkar stórt skaðabótamál.“
Vissulega ber að benda á alla þá óhæfu sem gerð hefur verið. En samt
sem áður þurfa þeir, sem hafa verið kjörnir til að stjórna og hafa gengist við
hlutverkinu, að horfa fram á við án þess að vera sífellt að tuða um það sem
liðið er. Reykjavíkur bíður margt. Ekki síst að sem flestir finni til þess að
borgin er eign allra borgarbúa og um leið allra landsmanna. Margt er ógert
og þaðer full ástæða til að þeir sem stjórna borginni hafi glögga framtíðar-
sýn og láti til sín taka í þeim verkum sem þarf að vinna og hætti að líta eilíft
um öxl.
Kosningaloforðin voru mörg og mikil og reyndar er það svo að borgarbúar
almennt ætlast ekkert til að við þau verði staðið, það er ekki vaninn, enda
flest gleymd. Gagnslaust er að rifja upp flugvöll á Lönguskerjum, hraðbraut
undir Sundin og fleira tröllslegt. Þeir sem lofuðu vissu að kjósendur trúðu
fáu, þannig hefur það verið og þannig er það og þannig verður það.
Kjósendur láta eitthvað óþekkt ráða afstöðu sinni. Ekki trúverðugleika og
orðheldni. Þess vegna geta frambjóðendur lofað og lofað, enginn ætlast til
þess að við orðin verði staðið, hvorki þeir sem lofa né þeir sem lofað er.
Meirihlutafólkið í Reykjavík verður að hætta líta að til baka, bæði til þess
sem þreyttur R-listi gerði og gerði ekki. Verkefnin eru næg og þau sem voru
kosin voru kosin til að vinna að því sem þarf að leysa, ekki til að vera upp-
tekin af því sem klaga upp á þá sem fengu langþráða hvíld.
Sigurjón M. Egilsson
Auglýsingastjóri: Steinn Kárí Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: Islandspóstur
Ný og stærri verslun!
Aldrei meira úrval:
Fatnaður á alla fjölskylduna
Snyrtivörur
Gjafavörur
Heilsuvörur
Skartgripir
Rafmagnsvörur
Leikföng
Búsáhöld
Golfvörur
ofl. ofl.
Vöruumboð B.Magnússon:
Alltaf tilboð og útsala í gangi!
Opið 10-18 alla virka daga.
wmm
Austurhraun 3 - 210 Garðabær - Sími 555 2866
bm@bmagnusson.is - www.bmagnusson.is
14 I ÁLIT
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2006 blaAÍÖ
3pijA:,EFiRi?... DbRi 6 er *m Ao
UvEflÆR. Fíiiltf Vit> JFtUR VETTfl SflLTf í ÖRYCGÍSkWiIVu?
W iLr&A flLVBG TÍL í AP TARft Av PR/ffl
MiG T(L NEWrodK oG BjnRGfí
Framsóknarflokkurinn
in memoriam
Illvígastir drauga á íslandi voru
þeir sem ákváðu að gera það dauðir
sem þeim ekki tókst lífs. Við slíkan
draug glímir nú Framsóknarflokk-
urinn og óvíst að hann lifi þá glímu
af.
Halldór Ásgrímsson hefur í ára-
tugi reynt að breyta Framsóknar-
flokkinum í eitthvað sem kalla má
þéttbýlissinnaðan Evrópuflokk.
Úr því að vera dreifbýlissinnaður
þjóðræknisflokkur.
Klofinn og minnkandi flokkur
Þessa baráttu hefur Halldór háð
af þrautseigju og að mestu í heið-
arleika. Að vísu af slíku offorsi að
hann hefur úthýst úr velþóknan-
legri hirð sinni öllum þeim sem
ekki hafa verið hrifnir af Evrópu-
sambandsaðild. En engum blandast
hugur um að þetta verkefni hefur
mistekist. Mestu munar þar um
varaformanninn sem staðið hefur
sem klettur fyrir hinum gömlu
þjóðræknu gildi sveitamennsku og
sjálfstæði. Tvískinnungur flokks-
forystunnar og þar með flokksins
hefur smám saman dregið máttinn
úr Framsókn.
Við broslega afsögn á síðastlið-
inni Hvítasunnu gerði Halldór loka-
tilraun til að taka varaformanninn
með sér í fallinu en mistókst. Næstu
vikur þar á eftir hafa verið rauna-
legar þar sem varaformaðurinn
gerði vilja Halldórs Ásgrímssonar
að áhrínisorðum. Hann hefur ít-
rekað látið fram hjá sér tækifæri til
að taka við formennsku í flokknum,
nú síðast með yfirlýsingu um áfram-
haldandi setu í varaformannsstóli.
Vanhæfur varaformaður
Halldór og hans menn hafa
á sama tíma ekki setið auðum
höndum og nú er loksins kominn
fram erfðaprins þó sá sé óvart ár-
inu eldri formanninum fráfarandi.
Jón Sigurðsson er sami maður og
Halldór setti í forsvar fyrir Evrópu-
nefnd flokksins og reyndar sjávarút-
vegsnefnd líka. Enginn sem þekkir
Halldór Ásgrímsson og hugsjóna-
hita hans í Evrópumálum þarf að
ætla að hann hefði falið þetta verk
öðrum manni en þeim sem hann
treystir fullkomnlega í afstöðunni
til Evrópusambandsaðildar. Orð
Jóns sjálfs í sjónvarpsviðtölum taka
hér af öll tvímæli.
Næsta verk samverkamanna Hall-
dórs verður að hanna þá atburðarás
að Guðni Ágústsson komist ekki í
stól varaformanns. Mér er sagt að
fyrsti fundur þar um hafi verið hald-
inn í Vesturkotinu hér á Skeiðunum
í vikunni. Raunar telja allir sem
til þekkja að barátta Guðna fyrir
sínum gamla stól sé honum miklu
mun erfiðari heldur en barátta fyrir
formannsstóli. Enda hvað á flokkur
að gera við varaformann sem hefur
sannað að hann er undir þeim
álögum að geta ekki setið sjálfan
formannsstólinn. Þar fyrir utan er
það þreytt andlit flokksins að for-
mannsstólana skipi tveir sextugir
karlmenn og líklegt að Jónína Bjart-
mars eða þá Siv Friðleifsdóttir nái
að skáka Guðna í varaformannsslag.
Krataflokkur á rústunum
Fyrsta verk hinnar nýju flokks-
forystu verður svo að taka upp á
sína arma Evrópusinnaða matvæla-
skýrslu sem Halldór Ásgrímsson
stendur bakvið. Þar með verður
íslenskum landbúnaði greitt það
náðarhögg sem margir kratar hafa
beðið eftir. Næsta skref verður svo
Evrópustefnan og ríkisstjórnarsam-
starf við Samfylkinguna.
Gangi þetta eftir hefur Halldóri
tekist í lokasprettinum sem hann
aldrei gat áður. En það er að breyta
andliti Framsóknarflokksins og
skapa þar með raunhæfan vettvang
fyrir þann fjölda hægrimanna sem
ekki hugnast andstaða Sjálfstæðis-
flokksins við Evrópusambandsað-
ild. En sá gamli Framsóknarflokkur
Steingríms, Eysteins og Jónasar
er um leið endanlega dauður og
grafinn.
Höfundur er ritstjóri
Sunnlenska fréttablaðsins.
Klippt & skorið
Undanfarna daga hefur umræða um
Strætó fullkomlega lagst yfir þjóðfé-
lagið eins og mara og ótrúlegasta fólk
virðist sérfræðingar um þéttleika byggðar,
sætanýtingu, umferðarrýmd
og hvaðeina. Flestir virðast
hins vegar sammála um að
[ breytingar hjá Strætó hafi
ekki tekist sem skyldi, almenn-
ingurhafi hafnað þessumsam-
göngukosti og að þetta sé allt
í voða. Það er því gleðilegt að lesa pistil Jóns
Gnarrs á baksíðu Fréttablaðsins í gær, þar
sem hann minnist á Strætó án þess að minnast
á nein af þessum leiðindum. Þar greinir Jón frá
ótímabæru fráfalli Fíats síns og blöskrun sinni
yfir verði á nýjum bílum. Niðurstaða Jóns var að
kaupa sér Græna kortið á 5.000 krónur og taka
vagninn héðan í frá. Strætó bs. ætti kannski að
fá Jón til þess að gerast talsmaður fyrirtækisins í
nýrri áróðursherferð: Allir með strætó!
Eftir að Dagur B. Eggertsson
sigraði glæsilega í prófkjöri Samfylking-
arinnar síðastliðið vor, virtist honum
ganga illa að finna fjölina sem oddviti listans og
fór svo, að Samfylkingin fékk
aðeins tæp 27% atkvæða og
fjóra menn kjörna. En það er
engu líkara en að eftir kjördag-
inn hafi Dagur loksins byrjað
■ — m | póijtfk, því nú heldur hann
úti eins manns stjórnarandstöðu í Ráðhúsinu og
notar um sumt nýstárlegaraöferðirtil þess. Hann
bloggar ótt og títt (dagur.is) um borgarmálin og
sendir skrifin jafnóðu m á alla fjölmiðla.
Lögmaðurínn Árni Páll Árnason
kveður sér hljóðs á miðopnu Morgunblaðs-
ins í gær og hvetur til „Þjóðarsáttar um
búvöruframleiðslu". Þarstígursá alþjóðasinnaði
krati furðulétt til Jarðar þegar
hann fjallar um vanda bænda
og hátt matvöruverð, en á þeim
bænum hafa menn áratugum
saman talað næsta skýrt um
upprætingu landbúnaðarkerfis-
ins. Árni Páll tekur hins vegar undir hugmyndir
ASÍ um beingreiðslurtil bænda meðan þeiraðlag-
ast innflutningi búvöru og telur þjóðarsátt geta
orðið um, bændum til hagsbóta. Af þessu öllu
ræður klippari að Árni Páll sé kominn í prófkjörs-
baráttu Samfylkingarinnará Norðvesturlandi.
andres.magnusson@bladid.net