blaðið - 28.08.2006, Page 6

blaðið - 28.08.2006, Page 6
6IFRÉTTIR MÁNUDAGUR 28.ÁGÚST 2006 blaöÍA Austurríki: Natascha bað um helgarfrí Natascha Kampusch, sem numin var frá fjölskyldu sinni fyrir átta árum og fannst í síðustu viku, bað um hvíld frá yfirheyrslum og fjölskyldu yfir helgina. Hún upplýsti austurrísku lögregluna um að hún hefði átt í kynferðislegu sambandi við manninn sem rændi henni tíu ára gamalli. Natascha er sögð hafa grátið mikið þegar hún frétti að hann hefði hent sér fyrir lest eftir að hún náði að strjúka frá honum. Foreldrar Natöschu skildu eftir að hún hvarf. Móðirin gagnrýnir yfirvöld harðlega fyrir að halda dótturinni frá sér. Faðirinn segir að Natascha hafi í bréfi til hans beðið um lengri tíma áður en þau hittist. Atlantsolía: Ný stöð á Selfossi Atlantsolía hefur nú í hyggju að opna bensínstöð á Selfossi og hefur fyrirtækið nú þegar fengið vilyrði fyrir lóð að Fossnesi i þar í bæ. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu sem félagið sendi frá sér um helgina. Um er að ræða sjálfsafgreiðslu- stöð en gert er ráð fyrir að undir- búningsferli og bygging stöðvar- innar taki um sex mánuði. Stýri bíla: Morandi í sýklum Tvöfalt fleiri sýklar eru á stýrum bíla en á klósettsetum. Niðurstaða nýrrar rannsóknar sýnir að 41,600 sýklar að meðal- tali eru á stýrunum en 17,400 á klósettsetunum. Þrátt fyrir það þrífa aðeins þrettán prósent bíl- ana sína reglulega, 45 prósent sjaldan en fimm prósent aldrei, segir á fréttavef Sky. Bændur leita til Mannréttindadómstóls Evrópu: Ríkið ofsækir fátæka bændur ■ Njáluslóðir fyrir Mannréttindadómstól ■ Deilt um þinglýstar jarðir ■ Ríkið vann í Hæstarétti Eftir Val Grettisson valur@bladid.net „Við munum sækja rétt okkar til Mannréttindadómstólsins," segir örn Bergsson, bóndi á Hofi á Or- æfum, sem er talsmaður bænda í Urðarsveit. Þeir ákváðu um helg- ina að fara með tvö þjóðlendumál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Ákvörðunin var tekin um helgina með lögfræðingum þeirra vegna Hæstaréttardóms sem féll 11. maí síðastliðinn. Dómurinn kvað á um að ríkið ætti rétt á að slá eign sinni á tvær jarðir sem bændurnir hafa þó þinglýstan eignarrétt á. Málskostnaður vegna þessa mun hlaupa á milljónum. Lóðirnar sem um ræðir eru ann- arsvegar jörðin Fjall og hinsvegar Breiðmörk þar sem talið er að Kári Sölmund- arson, hetja úr Njálu, hafi búið. Engin byggð er á lóðunum en bænd- nýtingarrétt á þeim samkvæmt eignarheimildinni. „Við bjuggumst ekki við því að þeir myndu taka yfir þinglýstar jarðir," segir Örn en þjóðlendu- lögin voru samþykkt árið 2001. Bændasamtökin voru sátt við lögin á sinum tíma en tilgangur þeirra var að ríkið tæki upp svokallaðar einskis manns jarðir. Órn segir ráða- menn hafa gefið þau loforð að ekki yrði gengið inn á þinglýstar eignir bænda. Annað hafi komið í ljós en úrskurðað var bændunum í hag gegn ríkinu bæði hjá óbyggðanefnd og í Héraðsdómi Austurlands. Ríkið áfrýjaði svo til Hæstaréttar þar sem rétturinn taldi að þinglýsing bænda væri ekki sönnuð að fullu. Þessu áliti hafna Segist ekki hiynnt hreinni eignaupptöku Margrót Frimannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. bændur og vilja leita réttar síns hjá mannréttindadómstólum. „Það eru mörg svona mál í gangi hjá mannréttindadómstólum og þá aðallega hjá Austur-Evrópuríkjum sem vilja leita réttar síns eftir að kommúnistar tóku upp jarðir þeirra,“ segir Örn en búast má við þvi að ákvörðunar um hvort málið verði dómtekið sé að vænta innan tveggja ára. Örn segir að hegðun stjórnvalda á Is- landi megi líkja við aðferðir sovéskra ríkja áður en komm- únisminn féll. „Maður hefði haldið að ríkið hefði eitthvað betra að gera en að ofsækja fátæka bændur," segir Örn sem er afar ósáttur við hörku stjórnvalda í þessum efnum. „Lögin eru gölluð og fram- kvæmdin fer langt fram úr því sem upprunalega var reiknað með,“ segir Margrét Frímannsdóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Hún segir að enginn hafi búist við þessari hörku af hálfu stjórnvalda og setur spurningarmerki við kostn- aðinn á bak við þessa framkvæmd. Hún segir að skoða verði hvar gall- arnir leynist í lögunum. „Við erum ekki hlynnt hreinni eignaupptöku,“ segir Margrét sem bætir við að flokkurinn muni fylgj- ast náið með framgangi málsins. Ekki náðist í Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra en ráðuney ti hans fer með þjóðlendumál fyrir hönd ríkisins. urnir eiga Flugslys í Bandaríkjunum: Einn af fimmtíu lifði slysið af Einn varflutturalvarlegaslasaður á sjúkrahús eftir að flugvél Comair- flugfélagsins hrapaði í gærmorgun í Kentucky-ríki í Bandaríkjunum. Fimmtíu voru í véhnni, 47 farþegar og þrír starfsmenn. Vélin var nýtekin á loft frá flugvelli í Lexington þegar hún hrapaði. Eldur blossaði upp í flugvélinni á jörðu niðri og breiddist fljótt út. Alls létu 49 manns lífið. Á fréttavef Reuters segir að hryðjuverk hafi ekki verið framið. Báðir flugritar vélarinnar hafa fundist, að sögn Sky fréttastofunnar. Sérfræðingar telja veður ekki hafa grandað vélinni. Lögreglumaður segir að skoðað sé sérstaklega hvort vélin hafi tekið á loft á rangri flugbraut. Forstjóri flugfélagsins Comair, Don Bornhorst, segir að allt verði gert til að upplýsa ástæður slyssins. Annað eins flugslys hefur ekki orðið í Bandaríkjunum frá 12. nóv- ember 2001. Þá hrapaði vél Amer- ican Airlines í Queens í New York. 265 létust. Brotlenti á engi Flugvél með fimmtíu innanborös brotlenti við Lexington í Kentucky-ríki i gær.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.