blaðið - 28.08.2006, Qupperneq 18
26
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 2006 blaðið
heimili
Listi
heimili@bladid.net
Haföu lista á ísskápnum ásamt penna meö segulstáli. Þá er alltaf
hægt að skrita hvað þarf að kaupa og allir fjöiskyldumeðlimirnir
geta gert það. Þannig manstu alltaf eftir þvi að kaupa allt sem heim-
ilið skortir.
Afslöppun Pað er nauðsynlegt að geta slappað
af heima hjá sér en það er ekki alltaf auðvelt.
Pastað Pasta getur geymst ansi
lengi svo framarlega sem það er í
réttum umbúðum
Góð heimilisráð
Pasta getur enst í allt að tvö ár
ef það er geymt á réttan hátt.
Það er bæði hægt að geyma
það í gler- eða plastíláti. Hins
vegar verður að gæta að því að
ílátin séu lofttæmd. Til að muna
hvenær pastað rennur út er gott
að skrifa það á límmiða og líma
á íhaldið. Oftast stendur á pakkn
ingunum hvenær pastað rennur
út en ef svo er ekki er gott að
skrifa niður hvenær pastað var
keypt.
I annasömum og hröðum heimi nútímans er heimilið griðastaður í amstri
hversdagsins. Segja má að heimilið sé í rauninni eini staðurinn þar sem er
raunverulega hægt að slaka á og vera maður sjálfur. Það er ómetanlegt þegar
álagið er mikið og líkaminn þreyttur eftir því. En því miður er heimilið ekki
alltaf eins mikill griðastaður og það gæti verið, drasl, aukahlutir og annað
getur þvælst fyrir. Hér eru nokkrar frábærar leiðir til að slappa af heima við
og njóta lífsins.
Það er fátt sem er eins stressandi eftir langan dag og að koma heim í drasl
þar sem rúmföt eru út um allt, handklæði á baðgólfinu, afgangur af morg-
unmatnum og óhreinir diskar í eldhúsinu. Það getur verið erfitt að gefa sér
fimm mínútur aukalega á morgnana til að ganga frá eftir sig en það er vel
þess virði. Það er yndislegt að koma heim og geta sest beint niður til að
slaka á.
Það leiðinlegasta við að fá fal-
legar rósir er hve stutt þær lifa.
Það er hins vegar hægt að lengja
líftíma þeirra með nokkrum
ráðum. Til að mynda má fjar-
lægja öll blöðin sem lenda undir
vatni. Haldið stilknum undir kran-
anum í smá tíma, skerið svo ská-
hallt á stilkinn og setjið rósirnar
strax í vasa. Best er að vatnið í
vasanum sé á stofuhita og eins
má setja teskeið af sykri ofan í
vasann. Skiptið um vatn annan
hvern dag og styttið stilkinn
örlítið á sama tíma. Varist að sól
skíni á rósirnar. Auk þess þola
þær illa sjónvarp, myndbands-
tæki eða önnur slík tæki.
jH Ekki er nauðsynlegt að fara í heilsulind til að
Æjr verða endurnærður. Taktu frá heilt kvöld í viku
[ og dekraðu við þig heima fyrir. Farðu ílangt og
j heitt bað með ilmolíum. Settu kerti allt íkringum
$ baðið og settu Uþpáhaldstónlistina á fóninn. Vatn er
' bæði hreinsandi og græðandi og þú færð tækifæri til
að leyfa huganum að reika. Eftir baðið skaltu sveipa þig
handklæði eða baðsloppi og sitja íhljóði í tíu mínútur. Þá
er kominn tími til að bera á sig húðkrem, laga neglurnar
og blása hárið. Þetta nánast fullkomna afslöppunar-
kvöld léttir álagið og nærir sálina.
Sumar bækur geta lyktað illa,
vegna geymslu, myglu eða vætu.
Ef mygla er í bókinni er best að
ryksuga hverja blaðsíðu með
burstanum á ryksugunni en þó
verður að fara mjög varlega. Ef
blaðsíðurnar eru örlítið votar
þarf að þurrka þær vel. Til að
fjarlægja vondu lyktina þarf að
úða lyftidufti á hverja blaðsíðu
og setja svo bókina í plastpoka
í tvær vikur. Þegar bókin er
tekin úr plastpokanum þarf að
setja hana á hvolf og hreyfa við
síðunum þannig að lyftiduftið
detti úr.
Það er gott og gaman að tala saman. Hringdu í einhvern góðan vin sem
þú hefur ekki heyrt í lengi og spjallaðu tímunum saman við hann. Ekki skiptir
máli hve erfitt lífið er, það verður alltaf auðveldara ef þú deilir áhyggjum
og sigrum þínum með einhverjum. Það erjafnvel enn skemmtilegra að fá
gamla vini heim, vini sem taka þér eins og þú ert. Pantið skyndibita, kaupið
fullt afnammi og hlæið saman.
£ Settu uppáhaldstónlistina þína í tækið, helst
* eitthvað sem minnir þig á ánægjulegar stundir í
fortíðinni. Sestu svo íþægilegan stól í myrkrinu og
hlustaðu. Minningarnar sem tengjast tónlistinni munu
ýta undir slökun. Hins vegar ef þú ert mjög uppsþennt
þá ættirðu kannski að dansa. Dragöu gardínurnar fyrir
gluggana, læstu hurðinni og hækkaðu græjurnar í botn.
Svo geturðu dansað allt álagið úr líkamanum og
sungið með. Fylltu líkam-
ann af hamingju og ýttu T; -
neikvæðrí orku íburt.
Stundum er bara gott að flýja frá öllu saman
og þaö er sjaldan auðveldara en fyrir framan sjón-
varpið. Leigðu einhverja góða mynd, einhverja sem
er rosalega sorgleg, fyndin, rómantísk eða hræöi-
leg, allt eftirþví hvernig smekkþú hefur. Slökktu
svo á símanum og leyfðu áhyggjum heimsins að
svifa á braut. Mundu, það ergóð ástæða fyrirþví
að Hollywoodleikarar fá meira greitt en sálfræðing-
ar.
Þrátt fyrirað vitsmunaleg orka sé verðlaun i sjálfu
sérþá er einstaka sinnum gott að létta álag með því
að lesa. Eftir dag i vinnunni sem virtist endalaus er
gott að teygja úr sér i sófanum með uppáhaldshöf-
undinn íhendinni.
S01.ARAY
Itopolis Plw
Glerártorg Akureyri
Aðeins ein á dag
Inniheldur: Propolis, drottningarhunang og Royal gelee
S: 462-1889 • heilsuhorn@simnetis • www.simnet/heilsuhorn.is
Útsölustaðir m.a: Yggdrasil, Fjarðarkaup, Maður lifandi, Lffsins lind -Hagkaup, Lyfjaval
og Árnes apotek Selfossi. Póstsendum um land allt
1 mm 1 1 %' "
■
m I 1 b ' ■ ■
- i Ji rlfN,