blaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 7
blaöið FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006
AFÞREYING I 27
Ferðafélagið Útivist:
Haustin oft fallegasti
tíminn til útivistar
Ferðafélagið Útivist hefur um
árabil boðið félagsmönnum sínum
og öðrum upp á fjölbreyttar ferðir
í skemmtilegum félagsskap. Skúli
H. Skúlason, framkvæmdastjóri Úti-
vistar, segir haustin oft vera falleg-
asta tímann til að stunda útivist. „Þó
að kólni aðeins í lofti þá er loftið fer-
skara og tærara. Svo geta haustlitirnir
náttúrlega verið sérstaklega fallegir á
þessum tima.“
Skúli segir alltaf eitthvað vera að
gerast hjá Útivist. „Við verðum með
dagsferðir alla sunnudaga fram í
nóvember. Við gengum til að mynda
upp á Esju um síðustu helgi, en fram-
undan eru til dæmis ferðir á Botns-
súlur, Hestfjall og fleiri staði. I des-
ember munum við svo enda árið með
blysför í Heiðmörkinni.“
Á dagskrá Útivistar eru einnig ein-
hverjar helgarferðir á næstunni. „Um
næstu helgi erum við til að mynda að
fara i tveggja daga ferð á Fjallabak.
Þar munum við gista í skála okkar
við Strút og ferðast um Fjallabakið
þvert og endilangt þar sem jarðfræði
svæðisins verður skoðuð sérstaklega,“
segir Skúli og bætir við að fólk á öllum
aldri komi í ferðirnar með þeim.
Ómar Valdimarsson og Húgó
fara sem oftast á fjöll
Ræðismaður fer
á gæs
Ómari, sem er ræðismaður E1
Salvadors, rann blóðið til skyld-
unnar og skráði sig í spænsku-
nám í Málaskólanum Mími í
vetur. „Auk þess er ég nýbúinn
að ná mér í byssuleyfi og geng
á fjöll þegar ég hef tækifæri til
með hundinum mínum.”
Ómar segir flestar sínar frí-
stundir snúast um útivist með
hundinum sínum Húgó sem er
ungverskur wizla.
„Byssusportið er skemmtilegt,”
segir Ómar og nefnir að flókn-
ast sé að finna svæði þar sem
má skjóta. „Gæsaveiðitímabilið
hófst 21. ágúst og þá er maður
í því að skjóta heiðagæs og grá-
gæs en passar sig að sjálfsögðu
á því að skjóta ekki blesgæsina
sem er friðuð”, segir Ómar og
hlær.
Enski boltinn Sa/an hefur farið
vel af stað og er meiri íáren hún
var í fyrra
Vöxtur með
lækkandi sól
Ein mesta afþreying íslenskra
karlmanna síðustu ár og ára-
tugina hefur verið að horfa á
enska boltann í skammdeginu.
Magnús Ragnarsson, sjónvarps-
stjóri Skjásins, segir söluna á Skjá-
Sporti, sem sýnir enska boltann,
hafa gengið glimrandi vel. „Nú
er stöðin komin inn á öll dreifi-
kerfin. Við sjáum því fram á enn
frekari vöxt með lækkandi sól.“
SkjárSport keypti réttinn að
ítalska boltanum nú á dögunum.
Að sögn Magnúsar er verið að
skoða fleiri kosti til að bæta
við dagskrá SkjásSports. “Það
hefur sést að vinsældir einstakra
íþróttagreina koma og fara. Við
sáum körfuboltann koma og
fara, hnefaleikana koma og fara
og þannig mætti áfram telja. Við
erum að reyna að finna út hvað
sé rétt að veðja á.“
ÞJÓÐMINJASAFN
ÍSLANDS
ÞJÓÐ VERÐURTIL
- MENNING OG SAMFÉLAG í 1200 ÁR
Grunnsýning sem veitir innsýn í sögu þjóðarinnar frá
landnámi til nútíma.
Með silfurbjarta nál - spor miðalda í íslenskum
myndsaumi. Fjölbreyttar sérsýningar, einstakir viðburðir,
lifandi leiðsagnir, safnbúð og veitingastofa.
Þjóðminjasafn íslands hlaut sérstaka viðurkenningu sem
eitt af bestu söfnum Evrópu árið 2006.
Ausið úr viskubrunnum
Sérfræðileiðsagnir kl. 12:10
annan hvern þriðjudag
frá 19. september
Gengið gegnum aldirnar
Leiðsögn um grunnsýninguna
á íslensku alla sunnudaga kl. 14
á ensku alla laugardaga kl. 14
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
National Museum oflceland
www.thjodminjasafn.is
Suðurgötu41 /101 Reykjavík
Slmi: 530 2200
Opnunartími:
16. september-30. apríl:
Alla daga nema mánudaga
kl. 11-17
1. maí-15. september:
Alla daga kl. 10-17
Ókeypis á miðvikudögum