blaðið - 22.09.2006, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
blaðið
veidi
veidi@bladid.net
Færri rjúpur veiddar
Aðeins er gert ráð fyrir að 45 þusund rjúpur verði veiddar í haust, 25
þúsund færri en veiða mátti i fyrra. Rjúpuna má veiða frá 15. október
til 30. nóvember. Ekki eru þó allir dagar jafn góðir til veiða þvi þær eru
bannaðar mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga.
Vatnavextir hamla góðri laxveiði
Langá á Mýrum er komin í tæp-
lega 1700 laxa eftir sumarið og síð-
ustu vikur hafa veiðimenn glímt
við laxinn sem er að venju tregur
á þessum árstíma. Reyna menn
gjarnan maðk til að fá laxinn til
að taka en flugan er jafn skæð
eins og dæmin sanna. Gríðarleg
rigning hefur verið undanfarið
og yfirborð árinnar hækkaði um
heilan metra þegar mest var.
Sigþór Bragason veiddi nokkra
laxa í holli sem fékk 24 laxa nýver-
ið í Langá. Veiddi Sigþór fyrsta
laxinn á neðsta svæðinu á Breið-
unni á maðk. Annan lax veiddi
hann síðan á efsta svæðinu (93)
líka á maðk. Einn úr hópnum
veiddi 10 punda lax sem er nokk-
uð yfir meðalvigt laxa úr ánni en
veiðimenn fá gjarnan 3-5 punda
laxa úr Langá þótt sá stóri leynist
Mynd/RóbertSchmidt
Laxaglíma
Sigþór Bragason glímir viö
lax á Breiöunni neöst í Langá.
víða innan um. 10 punda laxinn
var þriðji stærsti lax sumarsins úr
þeirri á en sá stærsti var 18 pund.
Hollin eru að fá frá 20 til 60 laxa
eftir tvo heila veiðidaga sem er
ekki alslæmt.
Benelli
Mynd/Frikki
Steinar Kristjánsson uppstoppari
Hróöur Steinars sem uppstoppara hefur borist
víöa en hann hefur meðal annars unnið til verð-
launa á aibióðleaum mótum ífaainu.
b a 1» itbyrgð a olluni nyjum byisum
Steinar Kristjánsson stoppar upp dýr fyrir veiðimenn
Minnisvarði um
vel heppnaða veiði
þau verði óhæf til uppstoppunar. Að
sögn Steinars Kristjánssonar upp-
stoppara skiptir höfuðmáli að koma
dýrunum í frysti sem fyrst.
„Það þarf að bleyta ugga á fiskum
með eldhúsrúllu til að þeir frost-
brenni ekki. Það sama gildir um
fugla. Það þarf að skola af fitjum og
fótum áður en þeir eru frystir,“ segir
Steinar og bætir við að enn fremur
þurfi að gæta þess að dýrin séu ekki
í sólarljósi eða of miklum hita í lang-
an tíma.
Hægt að stoppa allt upp
Steinar segir að algengast sé að
fólk láti stoppa upp fyrir sig fugla og
fiska en einnig séu hreindýr vinsæl.
Lítil takmörk eru fyrir því hvaða
dýr er hægt að stoppa upp.
„Ég get stoppað þig upp ef þú vilt.
Það er ekkert til sem ekki er hægt að
stoppa upp. Það er hægt að stoppa
allt upp ef þú kannt það.“
Það fer eftir stærð og gerð dýrs
hversu erfitt er að stoppa það upp.
Margir halda að auðveldara sé að
stoppa upp fugla eftir því sem þeir
eru minni en það er ekki alls kostar
rétt.
„Fólk setur oft samasemmerki á
milli þess að fuglinn sé lítill og lágs
kostnaðar en það getur verið hundr-
að sinnum erfiðara að stoppa upp lít-
inn fugl en stóran. Það er til dæmis
miklu einfaldara að stoppa upp önd
en lítinn þúfutittling. Það má varla
blása á þetta því að þá brotna beinin
og skinnið er svo þunnt að það sést í
gegnum þaðsegir Steinar.
Hróðurinn berst viða
Hróður Steinars hefur borist út
fyrir landsteinana enda hefur hann
unnið til verðlauna fyrir verk sín
bæði á heimsmeistaramóti og Evr-
ópumóti uppstoppara. Að auki skrif-
aði hann aðalgreinina i nýjasta hefti
tímaritsins Breakthrough sem er
helsta tímarit uppstoppara. I kjölfar-
ið hefur heimsóknum á heimasíðu
hans snarfjölgað og fyrirspurnir að
utan hrannast inn í tölvupósti.
Steinar lærði uppstoppun í Banda-
ríkjunum á sínum tíma og hefur
síðan tekið mörg námskeið til að
kynna sér nýjungar og þróun i fag-
inu. „Það er þróun í þessu eins og
öllu öðru. Þetta er nánast eins og
í tölvugeiranum," segir Steinar og
bætir við að það sé heilmikið í sam-
bandi við uppstoppun sem fólk geri
sér ekki grein fyrir enda lítil hefð
fyrir henni hér á landi.
„Það er til dæmis ekki til sá fugl
eða fiskur sem maður finnur ekki
auga í. Þau koma í öllum stærðum
og gerðum,“ segir Steinar sem lætur
sér ekki detta í hug að nota önnur
augu en eiga við. „Ef maður er til
dæmis með stokkönd þá notar mað-
ur bara stokkandaraugu.“
Steinar leggur einnig mikið upp
úr því að dýrin séu sem eðlilegust
og líflegust og í því skyni hefur
hann tekið fjölda ljósmynda af fugl-
um. „Það er númer eitt, tvö og þrjú
að láta þá líta út eins og þeir séu lif-
andi,“ segir Steinar að lokum.
einar.jonsson@bladid. net
Sport II - 12-ga. 3
Drcilinq
Hvl > >
HólmasloC 1 • 101 Raykjavlk ■ Simi 562-0095/898-4047 . www.vaidihuaid.it
Að lokinni vel heppnaðri
veiðiferð kjósa marg-
ir veiðimenn að láta
stoppa upp skepnurnar
sem þeir veiddu, hvort
sem það eru fiskar, fuglar eða önn-
ur dýr.
Mikilvægt er að dýr sem til stend-
ur að stoppa upp séu meðhöndluð
rétt því að annars er hætt við að
Super Magnum Camo
Sérverslun
skotveiðimannsins
Grizziy
BREDh
Hy Itðlsku BREDA vorksmiðjurnar
r hafa framleitt haglabyssur i yflr 50 ár
með gæðí og árelðanlelka sem aðalsmerkl.
—'>,~V.....>“1 —1 Hlað PATRI0T skotin eru með:
Ss| \ I [VM I Baschieri & Pellagri patrónu
i nilllW I með Gordon System, Á
Bofors púður, B&P torhlaö og húðuð högl Á8
og uppfylla ströngustu kröfur íslenskra Æk
skotveiðimanna.
WWW. hlad.is
Hlað ehf. ■ Bíldshöfða 12 ■ Sími 567 5333
’emington
Skotveiðivörur
fást í næstu sportvöruverslun.
Innflutningur og dreifing: Veiðiland ehf.