blaðið - 26.10.2006, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2006 blaöiö
Varahluta- og uiðgerðar-
lijóuusia tyrir atlar gerðir
al lytturum
Handlyltiuagnar
Dekklyrlrallargerðir
at lyfturum.
24 i
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐ VIKULEGA
UPPLYSINGAR OG INNRITUN I SIMA 894 2737
Hefur ekið milli Reykjavíkur og Akureyrar í 75 ár
Ég skipti um stöð
þegar boltinn byrjar
Sú hugsun hvarflar oft að fólki,
þegar það ekur á milli Reykjavíkur
og Akureyrar, hvernig það væri að
aka þessa leið á hverjum degi. Sig-
urður Magnússon er vörubílstjóri og
hann hefur keyrt vörubíl milli Reykja-
víkur og Akureyrar í fimmtán ár.
„Þeir kalla þetta Koddaleiðina,
strákarnir sem fara í lengri ferðirnar
því þegar þeir eru loksins komnir á
áfangastað þá erum við hinir lagstir
á koddann.“ Sigurður segir að versti
hlutinn við þessa vinnu sé það hvað
vinnutíminn er erfiður en keyrslan
fer fram á kvöldin. „Við leggjum af
stað um kvöldmatarleytið og erum
að ljúka vinnudeginum upp úr
miðnætti.“
Sigurður segir að atvinnubílstjórar
reyni að einbeita sér sem mest að
akstrinum en þó reyna menn að
finna einhverja leið til að drepa tím-
ann. Útvarpið er klassískur máti til
þess að drepa tímann og Sigurður
treystir mikið á útvarpið til þess að
stytta sér stundir á meðan á akstr-
inum stendur.
„Ætli ég hlusti ekki mest á Rás 2
því hún er með besta dreifikerfið.
Annars er útvarpið í bílnum mínum
með RTS sem skiptir um tíðni á stöð
þegar merkið fer að dofna svo að ég
næ alltaf að halda fullum gæðum
á útvarpinu." Sigurður segir þó
að hann skipti um stöð um leið og
boltalýsingar byrja í útvarpinu því
það er með leiðinlegasta útvarpsefn-
inu að hans mati.
Eitt sinn var það svo að vörubíl-
stjórar stunduðu það að taka upp
puttalinga til að hafa félagsskap
á ferðum sínum og í sumum til-
fellum treystu bílstjórarnir á það að
puttalingarnir myndu halda þeim
vakandi á lengri ferðum. Sigurður
segir að hann nenni varla lengur
að standa í þeim bransa að taka
upp puttalinga. „Ef menn standa í
vegarkantinum með sprungið dekk
eða bensínbrúsa þá stoppa ég, ann-
ars held ég bara áfram ferð minni.“
Annars eru langar bílferðir kjörnar
til að hugsa um lífið og tilveruna
og Sigurður segir að vissulega noti
menn tímann til að hugsa um hin
og þessi málefni. „Það fer ýmislegt í
gegnum hugann, ég er mikill áhuga-
maður um Formúluna og svo er ég
í félagsstarfi sem ég þarf mikið að
hugsa um.“
Ný beltavél frá Liebherr
Ert þú leið(ur) á
að skipta um perur?
DÍÓÐUUÓSIN FRÁ OKKUR ERU:
ORKUSPARANDI
ÓBRJÓTANDI
10.000 KLST.
ÁBYRGÐ PASSA
FYRIR ALLAR
GERÐIR VÖRU- OG
FLUTNINGABÍLA
EhF\ÆRSUJN
Klettagarðar 11,104 Reykjavík
Sími 568 1580 • Fax 568 0844
I október setti Liebherr á markað-
inn nýja gerð af beltavél, Liebherr
R 313 Litronic. Vélin er um 14 tonn
TRUCK - LITE
Ljósasamlokurnar frá okkur eru:
ÓBRJÓTANDI
HÖGGÞOLNAR
ENDASTOG ENDAST
og 102 hestöfl og hönnunin á undir-
vagni vélarinnar tryggir framúrskar-
andi stöðugleika og langan líftíma á
beltagangi. Undir vélina er boðið
upp á nokkrar breiddir af beltum,
þar á meðal gúmmíbelti. Keyrslu-
drifið er tveggja stiga með miklum
togkrafti upp á 151 kN sem gerir vél-
ina mjög öfluga í keyrslu upp erfiðar
brekkur og hraðskreiða á jafnsléttu.
Húsið er einstaklega rúmgott, þægi-
legt í umgengni og með góðu útsýni.
Liebherr R 313 er hægt að fá með
blaði sem samsvarar þeirri breidd
sem er á beltagangi, einnig verður
hægt að fá allar helstu gerðir af
bómum og lengdir á dipper.
Öflug Liebherr setti nýja gerð af
beltavél á markaðinn en vélin er
mjög öflug íkeyrslu.
Staðstetning Mjódd
www.ovs.is
urnmm
RAFGEYMAR
Bíá
naust
9000
S Akureyri • Egilsstöoum • Hafnarfíröi • Hðfn • Keftovík • Kópavogi • Reykjavík • Selfo