blaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 18
blaðið blaðid Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Ár og dagurehf. Sigurður G. Guðjónsson Sigurjón M. Egilsson Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir JanusSigurjónsson Vinir að eilífu? Geta þeir sem deila og tortryggja hver annan unnið saman af heilindum skömmu eftir hámark átaka og efasemda? Eðlilega verða kjósendur að velta því fyrir sér hverslags bragur verður á samvinnu þeirra sem takast á af hörku um þingsæti framboðslistanna þegar fullyrt er leynt og ljóst um óheilindi keppinautanna. Mest hefur borið á efasemdum og tortryggni meðal sjálfstæðismanna í Reykjavík. Aðrir munu fylgja á eftir. Þegar valið er á listana, valið er í liðið, er væntanlega hugsun flestra þeirra sem mæta á kjörstað fyrst og fremst sú að velja þá frambjóðendur sem eru þeim kærastir, þá frambjóðendur sem eru líklegir til að vinna sigra í komandi kosningum og koma baráttumálum og stefnumiðum flokksins áfram. Svo eru aðrir sem gæta þess af öllum mætti að einstaka frambjóðendur fái sem versta og mest meiðandi útkomu. Það er oft gert að áeggjan annarra frambjóðenda. Þegar allt er vegið er eðlilegt að spyrja, hvað svo? Geta þeir sem hafa tekist á, oft af miklu miskunnarleysi, starfað saman einsog ekkert hafi í skorist? Jafnvel með óbragð í munninum ein- sog einn frambjóðandinn hefur orðað líðan flokksfélaga sinna? Sjálfstæðisflokkurinn er ekki búinn að vinna úr deilum og efasemdum eftir prófkjörið í Reykjavík. Þeir sem mest tókust á, það er Guðlaugur Þór Þórðarson og Björn Bjarnason, tilheyra hvor sínum arminum í flokknum, allavega er það skilningur þeirra sem eru utan við átökin. Ómögulegt er að hugsa sér þá starfa saman af fullum heilindum strax að slagnum loknum. Flokksfélagar þeirra verða samt að ætlast til þess af þeim, en það hefur margt verið sagt og gert síðustu daga og vikur sem eftir er að vinna úr. Tækifæri Sjálfstæðisflokksins er merkilegt. Það sem helst getur komið í veg fyrir vænlegan sigur í þingkosningunum eru innanflokksátök og óvild milli þeirra sem eiga að bera blysið. Þeir flokkar sem eiga eftir að fara í gegnum opin prófkjör munu líka skaðast af innanflokksátökum. Það er ekki nokkur ástæða til að ætla að tortryggni og óheilindi komi ekki líka við sögu hjá hinum flokkunum. Þjóðarpúls Gallup segir okkur að tækifæri Sjálfstæðisflokksins sé mikið og að sama skapi sé staða Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar niðurlægjandi. Framsókn er að festast með innan við tíu prósenta fylgi og Samfylkingin má, miðað við kannanir, berjast af krafti til að hanga í fjórðungsfylgi. Breytingarnar á forystu Framsóknarflokksins hafa greini- lega ekki aukið fylgi við flokkinn og Samfylkingin virðist ekki finna takt- inn. Áframhaldandi vandræðagangur þessara flokka mun styrkja Vinstri græna og Sjálfstæðisflokkinn. Helst geta flokkarnir fallið á eigin verkum, einsog virðist blasa við hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Eftir stendur hversu trúverðugir frambjóðendurnir verða þegar þeir standa hlið við hlið skömmu eftir að hafa staðið í harðvítugum átökum sín á milli. Eigum við að trúa því að þeir séu svo fljótir að fyrirgefa allt sem var sagt og allt sem var gert eða má vera að prófkjör geti ekki með nokkrum hætti verið til þess fallin að velja samhent fólk til verka? Sigurjón M. Egilsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiöja Morgunblaðsins Fagleg ræsting fyrirtækja er bæði betri og ódýrari Hreint Auöbrekku 8, 200 Kopavogi, simi 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is SNIÁAUGLÝSINGAR 18 FðSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 CTtL STÓRtíUGrfl Msa q Ba © fis ig/a. LÍTtí MEtÞPUft AWtfNl/M í K«ATTSPyWU TiL §6'LU FYHiR. 1.58 MlUJÓV JftíVfl 5TyRi{'n,j TEnGuí> TrÁ U1ÍBWI& + flETTNGflCJoLP g TLoKks tIístu fji’Gmt ÁHN Skutlum hvað sem það kostar Islendingar eru nú teknir að veiða örfáa hvali og margmenni mætir og fagnar í hvert sinn sem hvalur er dreginn á land. Hvalveiðarnar hafa opnað fyrir lokaða rás, rás þjóðar- stolts sem virðist hafa verið bælt niður allt frá níunda áratugnum þegar okkur var bannað að veiða hvali og grænfriðungur var versta skammaryrði sem þekktist. Það er nánast eins og tíminn hafi staðið í stað í 20 ár. Að minnsta kosti hjá Sjálfstæðisflokknum og Kristjáni Loftssyni sem virðist þykja það afar mikilvægt að sýna heiminum hvílíkir kappar búi hér á íslandi sem skeyti engu um álit einhverra útlendinga. Mótmælum rignir yfir þjóðina. Sjávarútvegsráðherra kippir sér ekki upp við það, segir að hann hafi nú búist við öðru eins. Hann ætlar ekki að taka tillit til þeirra en afgreiðir þau öll sem léttvæg. Og starfsbróðir hans og nafni á Vestfjörðum, sem núna er formaður Ferðamálaráðs Is- lands, segir að það skipti engu þótt þetta hafi neikvæð áhrif á ímynd Is- lands. Það þurfi bara að eyða meira fé í landkynningu! Þegar þetta kemur frá þingmanni sem hefur geisað mjög undanfarin ár út af útgjöldum ríkisins er ekki laust við að manni svelgist á súp- unni. Það má ekki eyða í einhverja vitleysu, það þarf að skera niður til framhaldsskólanna, það má ekki styrkja Fjölmennt um tólf milljónir, en ef það þarf að henda fé í land- kynningu vegna þess að það er mjög brýnt að veiða hér nokkra hvali sem reyndar enginn kaupandi er fund- inn að, þá er Spari-Einar tilbúinn að seilast dýpra ofan í vasann. Katrín Jakobsdóttir Nýtum skynsamlega Menn tala fjálglega um að nýta þær náttúruauðlindir sem við ís- lendingar höfum aðgang að en stað- reyndin er sú að hvalir hafa verið nytjaðir hér á landi mörg undan- farin ár. Sjötíu þúsund ferðamenn fara í hvalaskoðun hér á hverju sumri og færa landinu þannig um- talsverðar gjaldeyristekjur. Hvað gengur mönnum til sem finnst sjálfsagt mál að voga öllu þessu fyrir óvissan gróða af hvalveiðum? Hversu skynsamlegt er það þegar ráðamenn einnar smáþjóðar ákveða skyndilega að fara að veiða hvali samkvæmt sjö ára gamalli samþykkt þegar vitað er að slíkar veiðar geta spillt virðingu landsins og mikilvægri nýrri atvinnugrein? Því það eru allar líkur til þess að hvalir sem geta allt eins átt von á því að verða skotnir vogi sér ekki nærri hvalaskoðunarbátum. Og rökin um að hvalir éti allan fisk- inn í sjónum eru löngu afsönnuð; bæði eru áhrif hvala á vistkerfið miðað við til dæmis áhrif manna hverfandi og að sama skapi eru veið- arnar nú allt of litlar að umfangi til að hafa veruleg áhrif á vistkerfið. Hvalveiðarnar eru því ekki aðeins slæmar fyrir ímynd Islands, þær geta líka spillt fyrir blómlegri ferða- þjónustu sem hefur fengið að vaxa og dafna hingað til. Ákvörðun um hvalveiðar virðist fyrst og fremst tekin til að sýna að við eigum og við megum ráða. Það er ástæða í sjálfu sér en væri ekki betra að horfa til heildarhagsmuna þjóðar- innar fremur en gamalla sárinda úti í Ameríkana og Grænfriðunga. Það vekur ekki traust á núverandi ráðamönnum hér á landi að þeir séu tilbúnir að fórna þeim hags- munum fyrir alþjóðlegan belging. Höfundur er varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Klippt & skorið Fráleit mistök áttu sér stað í dálkinum í gær, þegar röng mynd var birt með té frásögn af notalegri kosn-lí^ ingabaráttu kjarnakonunnar ‘ — ri Valgeröar Bjarnadóttur í prófkjöri Samfylklngarlnnar &T .Al' Reykjavík. Til þess að leiðrétta allan misskilning er hér birt mynd af hinni einu sönnu Völu. Annars er öll prófkjörsbarátta með fjör- legasta móti þessa dagana. Sérstaka athygli vekur frísklegt myndskeið Ró- berts Marshalls, frambjóðanda f prófkjörí Sam- fylkingarinnar í Suðurkjördæmi, sem finna má á vef hans (marshall.is). Þar gerir hann á kjarn- yrtan hátt grein fyrir erindi sínu í stjórnmálum, en undir lokin stillir Róbert sig svo ekki um að gera stolpagrín að Árna Johnsen, sem eitt og sér gerir myndskeiðið vel þess virði að horfa á. akob Frímann Magnússon hefur líka aukið stuðið með fundaferð sinni um Suð- vesturkjördæmi. (kvöld klukkan 20.00 verður hann í Salnum í Kópavogi, þar sem þeir Jón Baldvin Hanni- balsson ræða þjóðmálin, en svo leika þeir Bubbi Mort- hens, Daníel Ágúst, Borgar Magnason og félagar úr Stuðmönnum af fingrum fram. Þaðan liggur leiðin á kvöldvöku á A. Hansen í Hafnar- firði þar sem Jakob Frímann kynnir stefnumál sín í bundnu máli og Björn Jörundur og fleiri standa fyrirtónlistarflutningi. Hins vegar er nokkur kurr í heima- mönnum, búsettum í Suðvesturkjör- dæmi, að þrír „aðkomumenn" úr 101 Reykjavík - þeir Jakob Frímann, Guðmundur Steingrímsson og Árni Páll Árnason - bjóði sig fram í kjördæminu. Þrátt fyrir framboð sitt fá frambjóðendurnir úr Reykjavík ekki að kjósa í prófkjörinu og því spurn-rJs. ing hvernig þeim reiðir af í kappi við forsetana á heimavelli, þá Gunnar Svavarsson, forseta bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar, og Kristján Sveinbjörnsson, forseta bæjarstjórnar Álftaness. andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.