blaðið - 03.11.2006, Side 34

blaðið - 03.11.2006, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 blaöiö Hrekkjavökugrasker Ofnbakað grasker er gott meðlæti með ýmsum mat og á vel við nú þegar hrekkja- vakan er nýafstaðin. Gott er að skera niður sætar kartöflur til að hafa með og hella góðri ólífuolíu yfir. Ferskar kryddjurtir eins og rósmarín gera síðan gæfumuninn. Jón sér um opinberar veis- lur Hann leggur áherslu á að erlendir gestir fái kunnuglegt bragð í veislunum íbland við islenskt hráefni Mynd/Frikki matur matur@bladid.net Leyndardómar Pjóðmenningarhússins Jón er kokkur í þjón- ustu hins opinbera IÞjóðmenningarhúsinu er að finna veitingastofu sem er róm- uð fyrir góðar súpur og brauð. Jón K. B. Sigfússon er kokkur- inn sem á heiðurinn af stofunni og hann leggur metnað sinn í að bjóða góðan mat, eins og fiskrétti, bökur, kökur og nýbökuð brauð í þægilegu umhverfi. Veitingastofan býður einnig upp á fundarherbergi sem eru vinsæl til skrafs og ráða- gerða. Þó að matstofan sé í Þjóðmenning- arhúsinu sem hefur vísun í gamla tíma er maturinn sem veitingastof- an býður upp á ekki með neina slika vísun. Jón hefur samt sem áður mik- inn áhuga á sögulegri matargerð. Hann hefur meðal annars sett upp miðaldamatseðil í Skálholti, ásamt Ingólfi Guðnasyni. „Ég er búinn að vera að grúska mikið í matarsögu og mitt áhugamál er sögutengd mat- reiðsla og ég nálgast matargerðina stundum út frá lengdar- og breiddar- gráðum," segir Jón sem á yfir 1.500 bækur um matargerð sem margar hverjar fjalla um sögulegar teng- ingar í matargerð og bókasafnið er væntanlega stærsta matreiðslubóka- safn landsins í einkaeign. Jón sér um opinberar veislur fyr- ir ríkið og eldar mikið fyrir erlenda gesti sem hingað koma í opinberar heimsóknir auk þess sem hann sér um veislur í Ráðherrabústaðnum. „Þegar ég sé um opinberar veislur þar sem gestir eru víðs vegar að úr heiminum hef ég það í huga að fólk er með mismunandi bragðskyn eftir því hvaðan það kemur. Fólki finnst alltaf gottt að fá eitthvað með sínu bragði, ekki að maturinn sé eldaður eins og þeirra heldur að það fái kunn- uglegt bragð eins og krydd og annað sem ég nota með íslensku hráefni. Það þýðir til dæmis lítið að bjóða Kín- verjum upp á skyrköku þar sem þeir hafa ekki ensím til að brjóta niður mjólkina og svo framvegis.” Jón er svo vinsamlegur að gefa okk- ur uppskriftina að brauðinu góða sem veitingastofan er þekkt fyrir og þessi uppskrift gefur um 12 bollur. Brauðið er gott með matnum, kaff- inu, með alls kyns áleggi og meðlæti, víni og ostum eða bara eitt sér. Þjóðmenningarbrauð ■ 1 kg hveiti ■ 1 msk sykur ■ Ríflega 1 mskþurrger ■ 1 msk salt ■ 0.55 lítrar volgt vatn ■ Þurrefnunum blandað saman og vatninu bætt út í. ■ Látið hefast. Deigið mótað í bollur og skorið í bollurnar og ofan í bollurnar er látið það sem hugmyndaflugið og ís- skápurinn býður upp á þann daginn eins og til dæmis: Gráðostur, pestó, ólífur, allskyns ostar, berjasulta, pepperóní. Bollurnar látnar hefast og síðan bakaðar í 2io°C heitum ofni í 15 mín- útur. Til að fá góða skorpu á brauðið er gott ráð að skvetta inn í ofninn bolla af vatni til að fá gufu í ofninn. Mortélið leyst af hólmi Sjónvarpskokkurinn geðþekki Jamie Oliver hefur látið hanna eft- ir sínu eigin höfði skemmtilegan nýjan hlut fyrir eldhúsið. En það er svokallaður Flavour Shaker eða bragðhristari sem er gerður til að mylja og blanda og merja bragðið úr kryddjurtum, hvítlauk, hnetum og sítrónuávöxtum. Hristarinn er með sérhannaðri keramíkkúlu sem sér um að mylja og merja það sem í hristarann er sett. Einnig er hægt að setja vökva í hristarann eins og olíur og rjóma og bragðbæta með ýmsu kryddi. Bragðhristarinn er ekki bara nyt- samlegt og skemmtilegt tæki heldur er hann fagur á að líta og hægt að fá hann i mörgum litum. Jamie, sem er þekktur fýrir hug- myndaauðgi í eldhúsinu, fékk hug- myndina þegar hann var að merja kryddjurtir í mortélinu gamla og góða. Hann hugsaði með sér að það hlyti að vera hægt að gera hlutina á einfaldari og auðveldari hátt. Það eru margir sem sleppa því að gera góðar marín- eringar og sósur sem krefjast þess að það þurfi að merja saman kryddjurtir þar sem það getur tekið langan tíma. Með hristarann við höndina er hægt að blanda saman góðum sósum og maríneringum sem kitla blaðlaukana á örskömmum tíma. Dagblöð í veiðiferðina Dagbtoö geta komið að góðum notum í veiðiferð- inni. Margir pakka rjúpum inn í dagblaðapappír og þá má einnig nota þau til að hreinsa snjó úr hlaupi eða drepa tímann ef ekki verður vart við fugl. veidi@bladid.net Meðferð rjupunnar skiptir máli Kryddar sig siálf Ofáir skotveiðimenn halda upp á heiðar um þessar mundir með byssu á öxl til að skjóta væna villibráð. Það er þó ekki nóg að kunna að hleypa af byssu heldur skiptir ekki síður máli að kunna að meðhöndla og verka bráðina. Á veiðinámskeiðum er fjall- að um meðferð bráðar en Sigmar B. Hauksson formaður Skotveiðifélags íslands telur að leggja mætti aukna áherslu á þann þátt og hyggst félag- ið gera gangskör í því á næsta ári. Sigmar segir mikilvægt að menn gæti fyllsta hreinlætis þegar þeir gera að villibráð, þvoi sér vel og geri ekki að bráðinni ef þeir eru til dæm- is með sár á höndum. Þá finnst einn- ig mörgum gott að nota hanska við verkunina. Hanga á köldum stað Rjúpnaveiðimenn þurfa að ganga vel frá bráðinni að lokinni veiði, setja höfuðið undir væng og pakka fuglinum vel saman. Það fer síðan eftir veðri hversu lengi menn láta rjúpuna hanga. „Því hlýrra sem er í veðri þeim mun styttra þarf hún að hanga. Þeir sem búa í þéttbýli eins og til dæmis í Reykjavík ættu ekki að láta rjúp- urnar sínar hanga úti vegna þess að það er orðinn það mikill gróður í borginni að það geta komist skordýr í fuglinn. Þess vegna er best að láta hann hanga innandyra á köldum stað, gjarnan í óupphitaðri geymslu eða bílskúr. Ef menn hafa ekki önn- ur úrræði geta þeir hengt þær upp úti og þá er gott að hafa þær í plast- poka,“ segir Sigmar. Ef hlýtt er í veðri er nóg að láta rjúpurnar hanga í viku en ef kalt er Sigmar B. Hauksson formaður Skotvís Félagið hyggst leggja aukna áhersiu á fræðslu um meðferð villi- bráðar á næsta ári. og stöðugt frost geta þær hangið í tvær til þrjár vikur. Velur fæðu af kostgæfni „Rjúpan safnar fæðunni í sarp og þegar við látum fuglinn hanga fer safinn og bragðið af gróðrinum í kjötið. Auk þess er ensími í rjúpun- um sem gerir það að verkum að þær úldna ekki á sama hátt og önnur villibráð,“ segir Sigmar. Þegar fuglinn er búinn að hanga er hann yfirleitt látinn í frysti og seg- ir Sigmar að best sé geyma rjúpur í fiðrinu. Sigmar segir að menn ættu að var- ast að þvo fuglinn upp úr vatni held- ur þerra af honum með klút eða eld- húsrúllu vegna þess að mikið bragð sé í blóðinu. „Það sem einkennir rjúpuna er þetta mikla villibráðarbragð sem kemur úr þeim gróðri sem hún étur. Hún étur lyng og ber og annað slíkt, er mjög kræsin og velur fæðuna af mikilli kostgæfni og það má segja að hún kryddi sig sjálf,“ segir Sig- mar að lokum. Kleifarvatn á Veiöikortiö Kleifarvatn er meðal þeirra veiði- svæða sem bætast við Veiðikortið á næsta ári en handhafar kortsins geta veitt endurgjaldslaust í um 30 vötnum víðsvegar um landið. Kleifarvatn er stutt frá höfuðborg- arsvæðinu og hefur verið vinsælt meðal fjölskyldufólks. Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefur staðið fyrir ræktunarátaki í Kleifarvatni og á þessu ári var um 10.000 ársgömlum urriðaseiðum sleppt í vatnið. Til stendur að halda sleppingum áfram næstu ár. önnur vötn sem bætast við kortið á næsta ári eru vatnasvæði Selár, Svínavatn í Austur Húnavatnssýslu, Mjóavatn og Kleifarvatn í Breiðdal, Kleifarvatn Vatniö verðurá Veiöi- kortinu á næsta ári. Haugatjarnir og þrjú vötn á Mel- rakkasléttu. Á móti kemur að Langavatn á Skaga, Torfdalsvatn á Skaga og Sandvatn verða ekki innan Veiði- kortsins árið 2007.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.