blaðið - 03.11.2006, Page 40

blaðið - 03.11.2006, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 blaðið Darri er á leiðinni til Los Angeles jStundura nræðir pacTmjaað vera leiiQiri Darri Ingólfsson er 27 ára og starf- ar sem leikari í London. Hann útskrifaðist frá Arts Educational School of Acting árið 2003 og hefur síðan þá starfað þar í borg. Hann hefur tekið að sér stöku verkefni hér á landi og lék til að mynda í stórmyndinni Flags of Our Fathers á móti Ryan Phillippe á síðasta ári. Nú er hann staddur hér á landi og hefur undanfarið fyllt skarð Atla Rafns Gíslasonar í leikrit- inu Sitji guðs englar í Þjóðleikhúsinu. Darri fer hins vegar aftur út á laugar- dagsmorgun til London. Hann mun þó ekki staldra lengi við í London því Darri hefur sett stefnuna á Los Angeles þar sem hann mun reyna fyrir sér sem leikari næstu misseri. Hvað varð til þess að þú ákvaðst og lœra og starfa í Lond- on? „Ég var alltaf á leiðinni til Banda- ríkjanna en fór af forvitni til Lond- on í prufu i leiklistarskóla og komst strax inn,” segir hann. Darri er ánægður með að lífið hafi tekið þá stefnu að hann hafi farið í nám í Bretlandi í stað Bandaríkjanna. „Líf mitt fór á þennan veg, ég var kominn til London til að læra og síð- an vatt lífið upp á sig. Ég eignaðist vini og fékk vinnu strax við lok skól- ans. Ég var auðvitað ekkert að drífa mig í burtu þegar verkefnin komu inn, það hefði verið heimskulegt.“ Darri ólst upp í Garðabænum og gekk í Verzlunarskóla Islands og Fjölbraut í Garðabæ. Hann segist hafa verið eirðarlaus og ekki haft lund í sér til að dvelja langdvölum á skólabekk. „Ég ætlaði alltaf að verða skurðlæknir en áttaði mig svo á því að ég myndi aldrei endast svo lengi í skóla. Ég hefði ekki meikað það. Ég stakk af til London til að læra leiklist þegar ég var enn í framhalds- skóla og sé ekki eftir þeirri ákvörð- un.” Darra hefur gengið vel að fá verkefni í London og segir þau hafa verið fjölbreytt hingað til. „Þetta hef- ur skipst nokkuð jafnt og ég hef feng- ið hlutverk í kvikmyndum og leikið á sviði.” Hann er ánægður með að hafa landað hlutverki deyjandi her- manns í stórmyndinni Flags of Our Fathers sem tekin var upp að hluta á íslandi síðasta sumar. Hvernig var að vinna við Flags of Our Fathers undir stjórn Clints Eastwood? „Það var frábært og minnti mig á af hverju ég er leikari. Þetta var ein- stök reynsla. Ég kynntist Clint East- wood svo sem ekki mikið. Hann leik- stýrði mér í þessari senu sem ég lék í en ég get sagt að hann er þægilegur í umgengni, hann vann sína vinnu og leyfði öðrum að vinna sína. Það er svo gaman að vinna með öllum þess- um fagmönnum og finna að maður getur treyst þeim til að gera það sem þeir eiga að gera. Maður hefur engar áhyggjur og það eina sem ég þurfti að hugsa um var leikur minn.” Darri segist vona að hlutverkið hjálpi sér að fá verkefni í Bandaríkj- unum. „Þá helst af þeirri ástæðu að hlutverkið gæti komið mér inn í stéttarfélag leikara í Bandaríkjun- um sem ég verð að vera hluti af til að fá frekari vinnu. Hlutverkið get- ur þannig opnað mér margar dyr.” Hefurðu séð myndina? „Myndin hefur ekki enn verið sýnd. Ég var ekki með umboðsmann þegar ég fékk hlutverkið þannig að ég ætla bara að bíða og setjast inn í bíósalinn og sjá. Maður situr með hnút í maganum og bíður og vonar. Senan mín gæti orðið nokkur sek- úndubrot eða ekki neitt.” Darri segir BlaWFrikki ,Ef ég væri ekki leikári væri ég ef til vill kokkur eða ljósmyndari," se(gir Darri Ingólfsson leikari. hlutverk sitt hafa innihaldið nokkr- ar línur. „Ég leik deyjandi hermann í myndinni á móti Ryan Phillippe. Ég ligg særður og bíð dauðans og persóna Ryans reynir að koma mér til bjargar.” Gerðist eitthvað eftirminni- legt á tökustað ífyrra? „Einn tökudaginn sást til norður- ljósa á himni. Þá var brugðist skjótt við og slökkt á öllum græjum og tækjum. Öll vinna stöðvaðist um stund og kyrrð og hljóð skapaðist meðan þeir sem unnu við myndina virtu fyrir sér norðurljósin hlykkj- ast um himininn. Það hefur kostað sitt að slökkva á öllum græjum og stöðva vinnu, þeim fannst þetta þess virði og það fannst mér æðis- legt. Síðan byrjuðum við að vinna aftur skömmu seinna eins og ekkert hefði í skorist.” Þarf leikari að eiga hugsjón- ir? „Ég held að hann þurfi þess ekki beint en mín persónulega skoðun er sú að ég held að allir listamenn beri ábyrgð. Leikarar, listamenn og í raun ættu allir að vita hvaða völd þeir hafa til að hafa áhrif. Rappar- ar eru gott dæmi um hversu mikil áhrif tjáning listamanns getur haft á heila kynslóð.” Hvernig er týpískur dagur hjá þértLondon? Darri segir daga sína aldrei vera eins. „Það er erfitt að hafa fast form á lífi sínu þegar maður vinnur sem leikari. Stundum hræðir það mig en þá þarf ég að minna mig á að ég valdi þetta sjálfur. Ég datt ekki inn í þetta. Ef ég á frídag lít ég venjulega í ræktina og fer svo annaðhvort á röltið eða skýst á vespunni í bæinn með vinum mínum. Þar sem ég bý er frábær matarmarkaður og þang- að finnst mér gaman að fara til að kaupa eitthvert góðgæti sem ég elda svo handa mér og vinum mínum.” Er erfitt að sjá sér farborða sem leikari? Er baráttan hörð í London? „Ég má ekki kvarta því ég veit um fólk sem hefur ekki fengið hlutverk í langan tíma. Ég hef verið heppinn. Ég hef líka oft bjargað mér með auka- vinnu sem er vel borguð og tekur stuttan tíma.” Darri segir aukavinn- una geta verið að einhverju leyti skemmandi fyrir sálina en maður verði að líta á björtu hliðarnar. „Ég hef ferðast mikið um England vegna þessarar vinnu og hitt alls kyns fólk. Oft þegar maður er að vinna einhverja vinnu þá festist maður í henni og þeim heimi sem er í kring- um hana. Það er gott að líta út fyrir leiklistarheiminn til að missa ekki tengsl við raunveruleikann.” dista@bladid.net viðlal

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.