blaðið - 29.11.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006
blaðið
INNLENT
UMFERÐIN
Átta ökumenn stungu af
Sjötíu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögregi-
unnar í Reykjavík um helgina. Átta sinnum höfðu
ökumenn stungið af eftir árekstur. Flest óhöppin
voru minniháttar og töluvert var um hraðakstur í
umferðinni, samkvæmt vef lögreglunnar.
REYKJAVÍK
Ók vísvitandi á bíl
Ökumaður ók bíl sínum ítrekað og vísvitandi á annan
bíl sem var mannlaus og kyrrstæður á bílastæði. Af
þessu hlutust nokkrar skemmdir, en eigendur bílanna
þekkjast og hafa átt i deilum. Lögreglan uþþlýsti málið
fljótt og örugglega.
HÉRAÐSDÓMUR
Landsvæði ekki þjóðlenda
Héraðsdómur Suðurlands hefur staðfest ákvörðun óbyggða-
nefndar um að viðurkennt sé að lönd Dalajarða, Heiðarjarða,
Kerlingardals, Höfðabrekku og Hjörleifshöfða innan tilgreinds
eignarlands í Mýrdalshrepþi séu ekki þjóðlenda. Miða eigi við
stöðu jökuls eins og hann var samkvæmt lögum 1. júlí 1998.
Umhverfisráð:
Tilbúið að beita
þvingunum
Karlmaður slasast illa:
Dróst marga metra
með kraftdreka
Umhverfisráð fól í gær umhverf-
issviði að neyta allra ráða og, ef
með þyrfti, þvingunarúrræða
tii að koma í veg fyrir áfram-
haldandi hávaða frá þyrluflugi
á Reykjavíkurflugvelli. Var
bókunin samþyldct samhljóða.
Ibúar í grennd við flugvöUinn
hafa kvartað undan hávaða í
tengslum við flutning Þyrlu-
þjónustunnar innan vallarins.
írak:
Þungvopnaðir
asnar á ferð
íraskir og bandarískir her-
menn stöðvuðu sex asna á
landamærum íraks og írans
fyrir nokkru og komust að því
að þeir báru mikið magn vopna.
Með ösnunum voru tveir menn
sem komust á brott. Banda-
ríkjamenn hafa sakað írana
um að vopna uppreisnar- og
hryðjuverkamenn í landinu.
Meðal þeirra vopna sem asn-
arnir báru voru 56 sprengjur.
■ Brotnaði illa í lendingunni ■ Voru að æfa sig á túni ■ Haldið sofandi á gjörgæsludeild
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Reynsla og yfirvegun varð manni
til lífs eftir að hann missti stjórn á
kraftdreka með þeim afleiðingum
að hann dróst marga metra áður en
hann hafnaði loks við skurðbakka.
Maðurinn fékk þungt högg á síð-
una í lendingunni og slasaðist al-
varlega. Vinur hans sem varð vitni
að slysinu segir sterka vindhviðu
hafa valdið því að manninum varð
fótaskortur með fyrrgreindum af-
leiðingum. Hann segir höggið hafa
verið gríðarlegt.
Missti fótanna þegar sterk vindhviða tók í
kraftdrekann Varað æfa sig með vini sínum
þegar slysið varð. Myndin tengist ekki fréttinni.
Voru að prófa kraftdrekana
„Við vorum búnir að vera þarna
dágóða stund og æfa okkur með
drekana. Svo kemur skyndilega sterk
vindhviða og hann virðist hafa misst
fótanna," segir Björn
Óskar Einarsson raf-
virkjameistari. Hann
ásamt vini sínum Ás-
geiri Sæmundssyni
var að æfa sig með kraft-
dreka á túni við Svignaskarð
í Borgarfirði síðastliðinn sunnudag
þegar slysið átti sér stað.
Kraftdrekar þeir sem hér um
ræðir líkjast seglum og eru notaðir
til að draga menn á skíðum en að
sögn Björns voru þeir einungis að
prófa drekana og ekki búnir skíðum.
„Við vorum að æfa okkur kyrrstæðir.
Við höfum notað svona áður fyrir
mörgum árum en búnaðurinn er
orðinn miklu fullkomnari í dag.“
Björn segist sjálfur hafa orðið var
við að vindurinn væri byrjaður að
taka í og því hafi hann látið sinn
kraftdreka síga niður. „Ég var eitt-
hvað um hundrað metra frá honum
og sá ekki nákvæmlega hvað gerð-
ist. Það er svolítill kraftur í þessu
þegar tekur í og drekinn virðist
hafa dregið hann áður en hann
lendir loks í skurðbakkanum.
Miðað við áverka var þetta gríðar-
lega mikið högg.“
llla brotinn
Að sögn Björns var honum strax
ljóst að vinur hans hafði slasast
illa og hringdi hann því úr farsíma
sínum í Neyðarlínuna.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Borgarfirði barst til-
kynning um slysið laust eftir hádegi
og var sendur sjúkrabíll á staðinn.
Eftir að búið var að meta meiðslin
var ákveðið að keyra beint á gjör-
gæsludeild Landspítalans.
Þar gekkst Ásgeir undir skurða-
gerð vegna innvortis blæðinga en
við höggið höfðu fjölmörg rifbein
brotnað illa.
Bæði Björn og Ásgeir hafa starfað
sem björgunarsveitarmenn og
þekkja því báðir hvernig bregðast
á við í erfiðum aðstæðum. „Ég
fór eftir því sem'mér hefur verið
kennt. Það varð honum til lífs að
við mátum stöðuna rétt og héldum
ró okkar,“ segir Björn.
Samkvæmt upplýsingum frá gjör-
gæsludeild Landspítalans er Ásgeiri
haldið sofandi og í öndunarvél og er
líðan hans stöðug.
PAULAUSTER
Eg var að leita að rólegum stað til að deyja á
JEiDhver mælti með Brooklyn
, AHRIFARIKOG HEILLANDI
SKALDSAGA EFTIR EINN VIRTASTA
OGVINSÆIASTAHOFUND
BANDARIKIANNA
.Stútfull af skemmtilegum sögum..
★ ★★★★ Blaöiö
„Ef þú vilt láta þér líða verulega vel
skaltu lesa Bresti í Brooklyn'
Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
könnun sem feroast upp og mður allan
tilfinningaskalann... Morgunblaðið
BJARTUR
Dauði Litvinenkos í Bretlandi:
Pútín krafinn svara
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að hann
myndi ekki leyfa neinum hugsan-
legum hagsmunum Bretlands á
alþjóðavettvangi að hafa áhrif á
rannsóknina á dauða Alexanders
Litvinenkos, fyrrum njósnara rúss-
neskra stjórnvalda, sem talið er að
hafi verið byrlað eitur. Forsætisráð-
herrann sagði að hann myndi jafn-
framt taka málið upp við Vladímír
Pútín Rússlandsforseta þyrfti þess.
Litvinenko dó síðastliðinn
fimmtudag eftir alvarleg veikindi
sem eru rakin til inntöku á geisl-
virka efninu polonium 210. Litvin-
enko hélt því fram áður en hann
gaf upp öndina að útsendarar rúss-
neskra stjórnvalda hefðu byrlað
sér eitur. Stjórnvöld í Moskvu hafa
vísað þeim ásökunum á bug.
Þeir sem þekktu Litvinenko
segja að hann hafi verið að rann-
saka hugsanlegt misferli rúss-
neskra stjórnvalda varðandi Yu-
kos olíufyrirtækið sem var áður
í eigu auðkýfingsins Mikhails
Khodorkovskys.
Myndin tengist ekki fréttinni
Maður berar sig:
Ógnaði konu
í strætóskýli
Maður var tekinn nálægt
barnaskólanum í Laugalæk
þar sem hann beraði kynfæri
sín fyrir framan unga konu.
Konan, sem fædd er 1989,
stóð í strætóskýli þegar maður-
inn kom að henni. Hún hljóp í
burtu og hringdi í lögregluna.
Hún gat ekki gefið greinargóða
lýsingu á manninum fyrir utan
að hann væri dökkklæddur. Lög-
reglan veit ekki hver var á ferð en
bendir foreldrum á að brýna hætt-
una fyrir börnum sínum. Skólinn
sendi einnig bréf heim með börn-
unum til að vara foreldrana við.
Lögreglan þarf haldbær-
ari lýsingar á manninum
til að hafa uppi á honum.