blaðið - 09.12.2006, Blaðsíða 16
VIÐ FELLSMULA
GOLFLAMPAfí
OPIÐ ALLA DAGA
laugard. 10:00-17:00
sunnud. 11:00-17:00
Mörkinni 6, Sími 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá k 1. 10-16
Sunnudaga frá kl. 13-17
GÓLFLAMPI. TVÖFALDUR
Litir: Kopar, gylltur og stál
GÓLFLAMPI
Litir: Gylltur og kopar
Minkapelsar *
Kanínupelsar *
Ullarkápur
Úlpur A
Jakkar
Ullarsjöl
Húfur og hanskar
HANN SAGÐI
MJÓLK í MATVÖRUVERSLANIR?
Ég man þá tíð, þegar Mjólkursamsalan rak sérstakar
» mjólkurtúðir í Reykjavík, en mér er enn óskiljanlegt,
hvers vegna sá háttur varþá hafður á.“
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON I FRÉTTABLAÐINU UM FRUMVARP
A ÞINGI UM SÖLU LÉTTS ÁFENGIS I MATVÖRUVERSLUNUM.
16 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2006
blaðið
'
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra:
Ég varaði við þessu
■ Mikill skaði ■ Hvalkjötssöluna á hreint ■ Enginn dans á rósum
íslenskur matur í banda-
rískum lúxusverslunum
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Þetta er áfall. Ég var búinn að
vara við þeirri ákvörðun að hefja
hvalveiðar og ég hef haft af þessu
áhyggjur. Það lá fyrir að uppbygg-
ingarstarfið í sölu íslenskra landbún-
aðarafurða gat beðið hnekki,” segir
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra um viðbrögð bandarisku
verslunarkeðjunnar Whole Foods
Market, WFM, við hvalveiðum Is-
lendinga í atvinnuskyni. Verslun-
arkeðjan hefur ákveðið að hætta
markaðssetningu íslands sem vöru-
merkis þótt islenskar vörur verði
seldar áfram.
„Það sýnir náttúrlega fyrst og
fremst að þeir meta þessar vörur
mikils og að neytendur vilja kaupa
þær. I þvi liggur von. En nafn Is-
lands er nafn hreinleikans. Þetta
er mikill skaði fyrir okkur,” leggur
landbúnaðarráðherra áherslu á.
í bréfi til Einars K. Guðfinnssonar
sjávarútvegsráðherra lýsir einn for-
stjóra verslunarkeðjunnar, sem
er í frem
verslana
lífrænaraf-
urðir og
afurðir
Ifítum ekkert
um söluna á
hvalkjöti
Guðni Ágústsson
landbúnaöarráðherra
framleiddar með sjálfbærum hætti,
yfir áhyggjum sínum af því að engar
ákvarðanir hafi verið teknar um
frekari hvalveiðar.
„Auðvitað eru þeir einnig að velta
fyrir sér hvað verður um framhald
hvalveiðanna. Við vitum ekkert um
söluna á þessum afurðum enn og
það þarf að fá það á hreint sem allra
fyrst hvort menn séu að selja þessa
kjötvöru af hvalnum,” segir Guðni.
Hingað til hafa
íslenskar vörur
verið seldar í 30
verslunum WFM
af þeim 180 sem fyr-
irtækið á í
Bandaríkjunum. Stefnt hefur verið
að því að fjölga verslununum í 300
fyrir árið 2010. Forsvarsmenn versl-
unarkeðjunnar óttast að breytist
afstaða íslands til hvalveiða ekki
muni eftirspurn eftir íslenskum
vörum í verslunum þeirra minnka.
„Það var búið að segja okkur að
auðvelt væri að flytja miklu meira
af lambaköti út,” segir Sigmundur
Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norð-
lenska, eina fyrirtækisins sem selt
hefur lambakjöt til Bandaríkjanna.
,Þetta hefur ekki verið neinn dans á
rósum og verður enn erfiðara þegar
ein ákvörðun sviptir öllu af borðinu
í einu vetfangi. Við höfðum vissar
áhyggjur af viðbrögðunum við hval-
veiðunum,” segir hann.
I upphafi þing-
fundar í gær gagn-
rýndu þingmenn
stjórnarandstæð-
unnar Einar K. Guð-
finnssonsjávarútvegs-
ráðherra vegna þess
skaða sem hvalveiðar
Islendinga yllu á
markaðsstarfi á er-
lendum vörum
erlendis.
Grein Guöna í Blaðinu 4. nóvember
Deilur um húsgrunn í Garðinum:
Vann fullnaðarsigur í málinu
„Ég vonaðist eftir fullnaðarsigri
fyrir Hæstarétti og það gekk eftir.
Þetta er hundrað prósent sigur fyrir
mig þar sem honum er gert skylt að
greiða allan kostnað," segir Unnar
Már Magnússon framkvæmdastjóri.
Fyrirtæki hans var fengið til að reisa
húsgrunn fyrir Sigurð Gíslason skóla-
stjóra og þegar því verki lauk var Sig-
urður ósáttur með þá upphæð sem
rukkuð var. Ekki náðust sáttir milli
þeirra og því fór málið fyrir dóm-
stóla. Nýverið féll dómur í Hæstarétti
og er Sigurði gert skylt að greiða að
fullu þá upphæð sem Unnar Már fer
fram á.
„Hann hefur reynt að skemma
mannorð mitt með þessari árás sinni.
Dómurinn staðfestir sigur minn og
ég hef heyrt í fleiri verktökum sem
hafa lent í þessum sama manni,“
Sigraði í Hæstarétti UnnarMár
Magnússon vann mál fyrir Hæstarétti
eftir að verkkaupi haföi sakað hann
um að rukka of háa upphæð fyrir verk.
Verktaki rukkaði
þrefilda upphæð
■ Blaðið 31. október
segir Unnar Már. „Það virðist vera
einhver ferill hjá viðkomandi og nær
að skoða þau mál betur. Mér er sagt
að hann hafi oft reynt að fara með
mál fyrir dómstóla og iðulega tapað.“