blaðið - 09.12.2006, Page 32
32 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2006
blaðið
XJOTIJM JOMXM
...NED GÓÐRIISÓK
4-
UPPÁHALDS ÍSLENDUVGASA6M
Hér vekja útímalegur texti og dramatískar
Ijósmyndir Jóhannesar Eiríkssonar Njálu
eftirminnilega til lífs á nýrri öld. Margslungin,
æsispennandi örlagasaga sem snertir streng
í brjósti allra Islendinga.
ÍSIÆNSK TÍSKA EK I‘I\STÖK
Við eigum svo margt annað en ísienska
lopapeysumynstrið. Draumabók þeirra sem
vilja skapa og tileinka sér nýstárlega
hönnun og prjónaskap.
VIÐ EKIJM SAMFÉLAGID
Einstök bók um landið
okkar, þjóðarsálina,
umhverfismálin og
stöðuna í heiminum.
Steingrímur J. Sigfússon
lætursig allt varða og
vekur okkur til
unar.
SÖLKUKOM
Leyfum barninu í okkur að njóta jólanna.
Bach í Hallgrímskirkju
Schola cantorum og Björn Steinar Sólbergsson orgel-
leikari flytja jólasálma og sálmaforleiki eftir J.S. Bach i
Hallgrímskirkju sunnudaginn 10. desember klukkan 17.
Ka fjölskyM«aa
Spilað með land
sitt og þjóð
ugmyndin fæddist
þegar ég dvaldi með
fjölskyldu minni i
sumarbústað. Það
rigndi mikið og ég
hafði verið töluvert innandyra að
spila ýmis borðspil við eldri son
minn. Þá kom mér í hug að það
gæti verið spennandi verkefni að
búa til alíslenskt borðspil,“ útskýr-
ir Árni Stefánsson, höfundur spils-
ins Draumaeyjan - Sjálfshjálpar-
spil handa spenntri þjóð. Spilið
er innblásið af metsölubók Andra
Snæs Magnasonar, Draumaland-
inu, en spilið gengur út á að móta
atvinnuuppbyggingu og framtíð
íslensku þjóðarinnar. Leikmenn
geta byggt upp stjóriðju, sjávarút-
veg, landbúnað, þekkingariðnað
eða ferðaiðnað eða blandað öllu
þessu saman. Á vegferðinni eru
ýmis ljón á veginum en leikmenn
geta meðal annars lent í fjandsam-
legum yfirtökum, illvígum nátt-
úruöflum og erfiðum mótherjum.
„Eins og margar góðar hugmyndir
þá fékk þessi að liggja dágóðan
tima ofan í skúffu. Þegar Andri
Snær, minn gamli skólafélagi,
sendi frá sér Draumalandið þá
datt mér í hug hvort ekki væri gam-
an að gera spil sem tengdist bók-
inni og þeirri hugsun sem í henni
býr. Þessi tenging gekk prýðilega
upp og í haust var spilið tilbúið
til framleiðslu eftir að hafa farið í
gegnum töluverðar prófanir."
Allt landið undir
Árni er nýráðinn framkvæmda-
stjóri vörustjórnunarsviðs hjá 01-
íufélaginu, Bílanausti og ísdekk
og fylgist vel með þjóðmálaumræð-
unni. Aðspurður segist hann vera
mjög hrifinn af bók Andra Snæs
en spilinu sé þó ekki ætlað að vera
innlegg í pólitíska baráttu. „Það
var mjög meðvitað hjá okkur að
spilið boðar ekki neina sérstaka
pólitík heldur eru leikmenn með
landið undir og eiga valið um það
hvernig þeir vilja byggja upp lífið
á eyjunní. Þeir geta byggt virkjun
eða stofnað þjóðgarð, rekið harða
virkjanastefnu eða verndað náttúr-
unna. Það ræðst af mótherjunum,
umhverfinu og ýmsu öðru hvern-
ig þeim reiðir af en þeir eiga alveg
jafn mikla möguleika á því að
vinna spilið hvort sem þeir fara út
í þekkingariðnað eða stóriðju."
Hugmynd dagsins er veru-
leiki morgundagsins
Jón Páll Halldórsson, yfirhönn-
uður hjá Latabæ, sá um alla graf-
íska hönnun á spilinu en það var
framleitt af einum virtasta spila-
framleiðanda Evrópu. Árni segir
að þeir sem prófað hafa að spila
Draumaeyjuna hafi kallað það
einskonar Islands-matador og ein-
hverjir líktu því við blöndu af Cat-
an og Hættuspilinu. „Við vildum
gera skemmtilegt fjölskylduspil
sem hefði sterka tíðarandateng-
ingu og væri jafnframt mjög vand-
að. Við reyndum að rata meðalveg-
inn milli heppni og hugvitssemi.
Spilið þarf að vera það áhugavert
að leikmenn vilji spila það aftur
en það má ekki vera það flókið að
krakkar ráði ekki við að spila en
við miðum við að níu ára börn geti
spilað það skammlaust." Árni seg-
ir skemmtilegt hvernig hugmynd-
ir sem virðast fjarlæg framtíð
verða í einu vetfangi að veruleika
við réttar aðstæður. „f spilinu geta
leikmenn reist sérstök mannvirki
sem hafa ákveðna eiginleika. Þar
í flokki er til dæmis geimferða-
áætlun og heimstískuhús sem
framleiðir aðeins föt úr sauðar-
gærum og fiskroði. Eftir að spilið
fór í framleiðslu birtist frétt um
íslenska hugvitsmenn sem skutu
á loft eldflaug. Þessir piltar gætu
verið upphafsmenn íslensku geim-
ferðaáætlunarinnar. Svo var líka
frétt um íslending sem selur Nike-
fiskroð til að nota í hátískuíþrótta-
skó. Þetta er skemmtilegt og sýnir
okkur að hugmynd dagsins í dag
er veruleiki morgundagsins.“
hilma@bladid.net
Vox feminae syngur Maríu til dýrðar
Kvennakórinn Vox feminae
hefur nú sent frá sér sína þriðju
geislaplötu. Hún er helguð heilagri
guðsmóður og ber titilinn Ave
Maria. Þar er að finna fimmtán
lög og ljóð sem samin hafa verið
í gegnum aldirnar til dýrðar Mar-
íu guðsmóður, meðal annars eftir
Schubert, J.S. Bach, Mozart og
Sigvalda Kaldalóns. Maríuljóðin
hafa fýlgt kórnum í þau þrettán ár
sem kórinn hefur starfað og voru
meðal annars í farteskinu þegar
kórinn vann til silfurverðlauna í
áttundu alþjóðlegu kórakeppninni
í kirkjulegri tónlist sem haldin var
1 Vatíkaninu árið 2000.
Margrét Pálmadóttir hefur frá
upphafi stjórnað kórnum en hún
hlaut meðal annars íslensku fálka-
orðuna fyrir frumkvöðlastarf sitt
í íslensku tónlistarlífi. 1 tilefni af
útgáfu plötunnar heldur Vox fem-
inae tónleika í Þjóðmenningarhús-
inu sunnudaginn 10. desember
klukkan 16.