blaðið - 11.01.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 11.01.2007, Blaðsíða 10
íSólsfrun Clsgríms l5 CJsgrímssonar Sðnbúð 3, 210 Garðabcc Sími: 334 1 133 Vöruhönnun LHÍ SíBA FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2007 blaðið Antíksalan Klassísk húsgögn og áhugi á íslenskum menningararfi að leita í sífellu út fyrir landstein- ana. „Því þar erum við íslendingar langsterkust.” Annað verkefni sem Sigríður minnist á er lýsislampi hannaður og útbúinn af Ólafi Frey Halldórs- syni. „Lampi sá er endurhannaður og seldur m.a. á Þjóðminjasafninu. Hann er þó sem betur fer lyktarlaus.” 28 I HEIMILI & HÖNNUN Franskur bekkur/kista Þetta húsgagn er allt í senn stóll, bekkur og kista. Stíllinn er siðgotneskur og var ríkjandi í Evrópu á síðari hluta 19. aldar. Andlit munka eru á örmum og stól- baki. Mikla skurðlistarkunn- áttu þarf í verk sem þetta. Klæðningar og viðgerðir á gömlum húsgögnum Franskt borðstofusett Borðstofusett þetta inni- heldur borð, fjóra stóla og skenk sem marmaraplötur eru ofan á og hurðir ávalar. Settið var hannað í kring- um 1900 og er í art deco- stíl sem var þá ríkjandi. Mjög fallegt og vandað er til allra smíða. Franskt spilaborð Borð þetta var skorið sérstakiega fyrir Frakkakonung íkringum 1850 og er sérgert spilaborð. Mjög vandaðar höfrunga- skreytingar eru á fótum þess, skúffur á hliðum þess og er borðið skorið út úr eik. Spilaborðið ætti að koma til dæmis briddsáhugafólki vel sem og öðru spilaáhugafólki. Við Listaháskóla Islands er hægt að nema vöruhönnun sem er þriggja ára BA-nám. Vöruhönnun hefur verið kennd frá árinu 2001 og árlega útskrifast 9 nemendur. Sigríður Sig- urjónsdóttir, prófessor í vöruhönnun við LHÍ, gaf upplýsingar um námið, nýjustu stefnur í íslenskri vöruþróun og eftirminnileg verk nemenda. „Það áhugaverðasta sem er að ger- ast í hönnun í dag er aukinn áhugi á íslenskum menningararfi,” sagði Sigríður og bætti við að rómantísk stemning hefði undanfarin ár gert vart við sig í þjóðfélaginu. Áhrifin láta ekki á sér standa hjá nemum LHÍ og eru þeir í auknum mæli að sækja hugmyndir að vinnu sinni til íslenskrar menningarsögu. „í raun má segja að nemendur taki menning- ararfinn og söguna inn í nútímalega hönnun.” Þegar talið beinist að verkefnum nemenda í vöruhönnun minnist Sig- ríður á verk Róshildar Jónsdóttur. „Hún vann leikföng úr fiskbeinum sem annars hefðu líklega endað í ruslinu. Leikföng hennar eru í takt við tímann, t.d. bjó hún til nútímaleg geimskip og skrímsli sem krakkar tengja sig við.” Sigríður bætti við að mikill áhugi sé fyrir því að leita að hráefnum innanlands, í stað þess Antíksalan að Skúlatúni 6 hefur í þrjú ár selt antíkhúsgögn og listmuni. Það eru hjónin Ragnar Bernburg og Berta Kristinsdóttir sem sjá um reksturinn. Aðallega flytja þau inn frá Frakklandi og Danmörku og eru húsgögnin 150-200 ára gömul. Mörg þeirra eru afskaplega vandlega útskorin, sannkölluð listaverk. Antíkhúsgögnin eru klassísk og tímalaus húsgögn með karakter. Leikföng úr fiskbeinum eftir Róshildi Jónsdóttur Listaháskólinn hefur verið í góðu samstarfi við Þjóðminjasafnið og hefur til dæmis fengið aðstöðu til námskeiðshalds þar. A því námskeiði kafa nemar ofan í menningararfinn og fá þaðan hugmyndir að nýjum vörum fyrir nútímafólk. „í náminu í vöruhönnun gætir mikillar fjölbreytni og nemendur horfa í sífellu í kringum sig og spyrja sig hvað ísland hafi upp á að bjóða.” Samstarf við bændur er nýfarið af stað auk þess sem nemendur hafa bæði unnið með íslenskum og er- lendum fyrirtækjum. LHÍ og HR hafa unnið saman að þróun og mark- aðssetningu vara og er það samstarf í miklum blóma. „Síðasta verkefni LHl og HR snerist um það að kort- leggja íslenska hönnunargeirann og finna virðisauka í öllu ferlinu.” Nem- endur nýttu sér margs konar leiðir, notuðu t.d. sölukvöld sem fengu ein- staklega góðar viðtökur. Ekki skortir hæfileika til hönn- unar hjá íslensku þjóðinni og eins og Sigríður bendir réttilega á „er heill hafsjór af hugmyndum og spennandi tækifærum í hönnunargeiranum." Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Neysluvatnshitarar Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar. Við erum sérfræðingar í öllj sem við kemur rafhituc ✓ Rafhitun Kaplahrauni 7a • Hafnarfirði Sími: 565 3265 • Fax: 565 3260 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhrtun.is STEYPUSÖGUN KJARNABORUN MÚRBROT \567-757Q} Þakrennukerfi á öll hús -- allsstadar n BLIKK AS - FUNI Smiðjuvegi 74 - Sími 515 8700 funi@funi.is - www.funi.is IGLÝ blaðiðB SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.