blaðið - 22.02.2007, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2007
blaöiö
Tilkynnt um fækkun í herliði innrásarríkja í írak:
Bretar og Danir heim
■ Bretar fækka um 1.600 í herliði sínu í írak ■ Danir munu auka þátttöku sína í Afganistan
Tyrkland:
Hús hrundi
í Istanbúl
Tveir létust og á þriðja tug
slasaðist þegar fimm hæða
bygging hrundi í Istanbúl í
Tyrklandi aðfaranótt gærdags-
ins. Húsið var á lista borgaryf-
irvalda yíir byggingar sem til
stóð að rífa af öryggisástæðum.
Sjónarvottar segja að það hafi
orðið mörgum til lífs að starfsmenn
og gestir kaffihúss á jarðhæð hafi
gert öðrum í byggingunni viðvart
með hrópum og með því að hringja
dyrabjöllum og kasta steinum í
glugga eftir að þeir tóku eftir þvi
að byggingin byrjaði að hristast.
Eftir Atla fsleitsson
atlii@bladid.net
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, kynnti í gær áætlun sína
um að fækka í herliði Breta í Irak
á næstu mánuðum. Blair sagði að
hermönnum yrði mjög bráðlega
fækkað um 1.600 og vonandi fimm
hundruð til viðbótar í lok sumars.
Um 7.100 breska hermenn er nú að
finna í írak. Anders Fogh Rasmus-
sen, forsætisráðherra Danmerkur,
tilkynnti skömmu siðar að allir
danskir landgönguliðar í Irak verði
sendir heim fyrir lok júlimánaðar
næstkomandi.
Bretar aðstoði til 2008
Blair sagði að herlið Breta myndi
áfram vera í írak fram á næsta ár,
meðal annars til að aðstoða íraka
við að tryggja öryggi við landa-
mærin að Iran. Breskir hermenn
hafa fyrst og fremst verið staðsettir
i borginni Basra í suðurhluta Iraks
og sagði Blair borgina enn vera
ótrygga, en að það væri „í höndum
íraka sjálfra að skrifa næsta kafla
sögu sinnar“. Morðum og mann-
ránum hefur fækkað mikið undan-
farið. Betur hefur tekist að tryggja
öryggi í þessari næststærstu borg Ir-
aks en víða annars staðar í landinu.
Breski forsætisráðherrann kynnti
áætlanir sínar fyrir George Bush
Bandaríkjaforseta á þriðjudaginn. Á
sama tíma og Bretar og Danir hafa
tilkynnt um fækkun í herliði sínu,
vinna bandarísk stjórnvöld að því
að senda 21.500 manna liðsauka til
höfuðborgarinnar Bagdad og viðar
í þeirri viðleitni að stöðva blóðugar
árásir uppreisnarmanna í landinu.
Talsmaður Bush-stjórnarinnar sagði
i gær Bandaríkjamenn einnig hafa
það að markmiði að koma stjórn ör-
yggismála í hendur Iraka sjálfra og
fækka í herliði Bandaríkjahers (írak.
Bretar skapi vandann
Sir Richard Dannatt, yfirmaður
OPINN
FUNDUR
Kl. 17.00
Allir
velkomnir.
KONUR í BARÁTTUHUG
Framsögur
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar
Katrín Júlíusdóttir, Helga Vala Helgadóttir
Örsögur úr baráttunni
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Kristrún Heimisdóttir,
Valgerður B. Eggertsdóttir og Guðný Hrund Karlsdóttir
Kynlegir fjölmiðlar
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri Króníkunnar
(' .y Lára Stctánsdóttir, Akureyri r. Steinunn Vaidis Óskarsdóttir, Reykjavlk Anna Krístin Gunnarsdóttir, Sauóárkróki
Asta R. Jóhannesdóttir, Reykjavík
Katrín Júlíusdóttir.Kópavogi
Jóhanna Sigurðardóttir, Reykjavík
Meintir gallar á viögerð:
Húsfélagið
borgar ekki
Fyrirtækið Fjalir ehf. hefur
stefnt húsfélaginu að Mið-
vangi 2-8 i Hafnarfirði fyrir
að greiða ekki fyrir umbeðnar
múrviðgerðir og verður málið
tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjaness í dag.
„Það komu fram gallar á
viðgerðinni og húsfélagið
neitar að greiða. Það er
ágreiningur um hversu miklir
þessir gallar eru,“ segir Sig-
mundur Hannesson, verjandi
húsfélagsins.
Hann hefur beðið um að
matsmenn verði dómkvaddir
til að meta hina meintu galla.
„Málinu verður þá frestað þar
til matið kemur.“
Kynferðisofbeldi gegn 5 ára stúlku:
Sýknaður vegna ungs aldurs
Piltur var í gær sýknaður í Hér-
aðsdómi Vesturlands af kynferðis-
legu ofbeldi gegn 5 ára stúlku. Pilt-
urinn fullyrti að ofbeldið hefði átt
sér stað sumarið 2003 þegar hann
var 14 ára en menn verða sakhæfir
15 ára gamlir. Játaði pilturinn að
hafa sett getnaðarlim sinn í munn
stúlkunnar þar sem þau voru stödd
saman í hlöðu.
Stúlkan greindi frá kynferðisbrot-
inu í fyrra eftir að hafa heyrt auglýs-
ingu þar sem fjallað var um kynferð-
islega áreitni gegn börnum. Minnti
stúlkuna að ofbeldið hefði átt sér
stað sumarið 2004. Skömmu fyrir of-
beldið hafði pilturinn greint frá því
að hann væri að verða 15 ára, að sögn
stúlkunnar. Þvi er ekki talið sannað
að hann hafi framið ofbeldið 2004.
Reykjavík:
Bensínfóturinn
þungur
Sautján ára gömul stúlka var
stöðvuð fyrir of hraðan akstur í
Ártúnsbrekku rétt eftir miðnætti
á þriðjudag þar sem bíll hennar
mældist á 130 kílómetra hraða.
Stúlkan fékk bílpróf fyrir fjórum
mánuðum og má búast við sekt
upp á sextíu þúsund krónur.
Piltur, sem einnig er sautján
ára gamall, var stöðvaður
skömmu síðar á Hafnarfjarð-
arvegi en hann mældist á 120
kílómetra hraða. Má hann búast
við sömu sekt og stúlkan.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu er mikið um hraðakstur
þessa dagana. Gott veður þyngi
bensínfótinn.
Braut gegn fimm ára stúlku
Pilturinrt var sýknaður þar sem
hann er talinn hafa verið of ungur.
Hann var hins vegar dæmdur til að
greiða stúlkunni 300 þúsund krónur
í miskabætur auk dráttarvaxta.
Pilturinn var einnig ákærður
fyrir að hafa slegið mann hnefa-
högg í andlitið og slasað sumarið
2005 utandyra á dansleik úti á
landi. Hann var sýknaður af lík-
amsárásarkæru þar sem brotaþoli
átti upptökin að átökunum.