blaðið - 28.02.2007, Side 3
blaðið MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007
19
Siðmennt býður einnig upp á borgaralega nafngjöf og útför.
Borgaralegferming:
Siðferðisleg
Með því að fermast eru ungmenni
að staðfesta skírnarsáttmála sinn og
vinna um leið trúarheit. Sumir ung-
lingar eru ekki reiðubúnir til þess að
vinna trúarheit og vilja því ekki fara
í gegnum hina kirkjulegu fermingu.
Því geta valdið margar ástæður,
sumir hafa aðra trú eða trúa á guð
á annan máta. Það breytir ekki því
að fermingin er félagsleg athöfn og
því vilja ungmennin fermast líkt og
jafnaldrarnir.
Samtökin Siðmennt hafa frá árinu
1989 staðið fyrir borgaralegum ferm-
ingum. Jóhann Björnsson hefur frá
Ómar Ragnars-
son, fréttamaður
„Ég fermdist árið 1954 og þetta hefur
ekki breyst mikið síðan nema bara að
gjafir eru orðnar miklu stærri núna.
Það er nú þannig að þegar árin líða
þá gleymir maðúr kannski fermingar-
gjöfum sem maður ætti að muna eftir
en mér er það alltaf minnisstætt að
frændi minn, Ingólfur Guðbrandsson,
gaf mér orðabók. Ég held að það hafi
verið ensk-islensk orðabók og þetta
var mjög óvenjuleg gjöf á þeim tíma.
Þess vegna situr hún í minninu því
hann var með þessu að senda mér
skilaboð um gagnsemi þekkingarinnar.
Að þetta væri það sem koma skyldi
og að þetta væri það sem hann vildi
að ég stefndi á. Ég reyndi það eins og
ég gat þó að ég færi ekki á nákvæm-
lega þá braut sem hann hélt því ég
fór á listabrautina. Þetta ár, 1954, frá
fermingu og fram á haust skín alveg
í minningunni því þetta var alveg ein-
stakt ár. Ég var í sveit og þurfti þar að
ganga til allra verka og á tímabili var
bóndinn í burtu. Þetta sumar var mikið
erfiðissumar en þá er þetta kannski
bara sumarið í minningunni. Það má
segja að þetta hafi verið sumarið sem
ég varð að manni."
%
etfnunqctfmijnclin
Hrefna Hallgríms-
dóttir, leikkona
„Móður minni þykir alveg óskaplega
vænt um fermingarmyndina af mér og
myndi helst vilja
fá að hafa hana
í ramma inni í
stofu. Hún fær
þó bara að hafa
hana í ramma
inni í svefnher-
bergi. Núna
þegar svona
hæfilega langt
er liðið frá, þá finnst mér hún dálítið
krúttleg en í mörg ár gat ég bara ekki
horft á hana. Mér fannst ég bara
eitthvað svo Ijót á myndinni. Þetta var
eitthvað svo hallærislegt, ekki ferm-
ingin sem slík, heldur bara ég sjálf á
fermingardaginn. Greiðslan á þessum
tíma var náttúrulega alveg ótrúlega
ömurleg, ég vona svo sannarlega að
þessi tíska komi aldrei aftur."
i
J
vitund
1997 séð um fermingarfræðslu fyrir
ungmenni sem fermast borgara-
legri fermingu. „Borgaraleg ferm-
ing er valkostur fyrir þá sem af ein-
hverjum ástæðum kjósa að fermast
ekki kirkjulega en vilja samt ferm-
ast, þetta er jú félagsleg athöfn."
Jóhann segir að borgaralegar
fermingar hafi notið mikilla vin-
sælda á Norðurlöndunum og þá sér-
staklega í Noregi. „Fyrirmyndin er
fengin erlendis frá en þetta er mjög
vinsælt í Noregi þar sem þetta er
búið að vera í áratugi. Þegar þetta
byrjaði þá skoðuðum við hvernig
þetta hefði gengið þar fyrir sig og
síðan höfum við þróað þetta svo-
lítið með okkar hætti.“ Hann segir
að gaman sé að sjá hversu vel íslensk
ungmenni hafa tekið borgaralegu
fermingunni. Fyrsta árið voru 16
sem tóku þátt en í fyrra voru 130 og
í ár verða í kringum 114 ungmenni
sem fermast.“
Fermingin er í raun útskrift
þeirra sem ganga í gegnum nám-
skeið Siðmenntar. Námskeiðið sjálft
hefur notið viðurkenningar. „1 ár
vorum við tilnefnd til Samfélags-
verðlauna Fréttablaðsins fyrir nám-
skeið í flokknum framlag til æsku-
lýðsmála." Jóhann segir að tilgangur
námskeiðsins sé m.a. að kveikja
gagnrýna hugsun hjá ungmenn-
unum. „Við erum að leggja rækt við
umhugsunarvirkni nemenda, að
þau velti fyrir sér hlutunum. Það
er kannski ekki mikið um beina
kennslu að ræða, sambærilega því
sem er í skólum, við erum meira að
vekja þau til vitundar og ábyrgðar á
eiginlífiogsamborgarasinna. Nám-
skeiðið hefur siðferðislegt inntak,
það er rætt um hluti svo sem sam-
skipti, fordóma og umhverfi með
svolítið siðferðislegum gleraugum."
Fermingargjöf frá o
Við gefum 5.000 kr
upp í fermingarrúm.
□
Opið alla virka daga frá kl. 8-18 og á laugardögum frá kl. 10-14.
RB-rúm Dalshrauni 8 220 Hafnarfirði Sími 555 0397 rbrum@rbrum.is www.rbrum.is
RÚM
Stofnað 1943
Eftir þínu höfði:
RB-rúmin og gaflar eru sérsmíðuð eftir þínum
óskum. Þú ræður lengd, breidd, hæð, fótum og
lit á gafli og botni.
RB-rúm er í heimssamtökunum ISPA, sem eru gæðsamtök fyrirtækja
sem sérhæfa sig í framleiðslu og hönnun springdýna.
ú nnn
e
Úrval fylgihluta:
Rúmteppi, púðar, pífur,
sængurverasett, dýnuhlífar,
náttborð og fleira.