blaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 4
FERMINGAR
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÖAR 2007
en þau eru orðin 14 ára.
blaðið
Búin að fá
fyrstu gjöfina
Helga Björk Vigfúsdóttir mun
fermast sumardaginn fyrsta, 19.
apríl, í Fríkirkjunni. Hún, líkt og
jafnaldrar hennar, hefur verið
í fermingarfræðslu í vetur og
segir að hún hafi lært margt af
því. Henni finnst sem tilgangur
fræðslunnar sé fyrst og fremst
að hjálpa unglingunum að skilja
hvernig þau sjái trúna fyrir sér
og er ekki í neinum vafa um
hvernig hún sér hana fyrir sér.
„Ég sé trúna fyrir mér sem eitt-
hvað sem getur hjálpað fólki að
koma skipulagi á líf sitt.“
Hún neitar því ekki að það sé
kominn spenningur í vinkvenna-
hópinn varðandi fermingardag-
inn en segir að talið snúist ekki
um pakka eða gjafir heldur um
aðeins gagnlegri hluti. „Við
tölum aðallega um hvernig
fermingargreiðslu við ætlum
að hafa, hvernig við ætlum að
mála okkur og svoleiðis." Hún
segist ekkert vera farin að
hugsa út i fermingargjafirnar
en bætir því þó við að fyrsta
fermingargjöfin sé þegar komin
í hús. „Ég er reyndar búin að fá
eina fermingargjöf en ég fékk
hest frá mömmu. Mig er búið að
langa lengi í hest og þetta var
draumafermingargjöfin."
Auglýsingasíminn er
510 3744
i n rr.iw
Fermingartískan 2007:
Fjölbreytt tíska og
einstaklingssmekkur ráðandi
Eva Dögg Sigurgeirsdottir
Segir að krakkarnir séu ófeimnir
við að fyigja sfnum eigin smekk.
MyndÆggeit
'3sm
Eitt af því sem fylgir fermingunni
er fermingartískan. Margir sem líta
yfir farinn veg og staðnæmast við
fermingarmyndina sína hugsa ef
til vill eitthvað á borð við: „Hvað
var ég að hugsa?“ Fermingartískan
er margbreytileg og margslungin.
Blaðið leitaði til Evu Daggar Sig-
urgeirsdóttur til að forvitnast um
hvað það er eiginlega sem ræður
fermingartískunni.
Eva Dögg hefur um árabil fylgst
vel með tískustraumum landsins og
er fermingartískan þar engin undan-
tekning. Hún segir að hún sjái skýra
þróun á fermingartískunni ef litið
er til síðastliðinna ára. „Mér finnst
eins og þetta sé aðeins að breytast
núna. Það virðist vera sem bæði for-
eldrarnir og krakkarnir séu farnir
að hugsa aðeins meira um að geta
nýtt fötin lengur. Hérna áður fyrr
þegar maður var að fermast þá var
þetta bara meira eins og búningur,
það voru blúndukjólar sem allir voru
meira og minna í. Þetta var svolítið
einsleitur hópur en í dag geta allir
fundið eitthvað við sitt hæfi. Mér
finnst alveg frábært að unglingar
vita alveg hvað þeir syngja og vita
alveg hvað þeir vilja. Það er gaman
að sjá hvað tískan er rosalega breið
og mismunandi og hvað það virðist
vera allt í gangi í þessu.“
Eva segir að strákarnir séu allir
að koma til hvað varðar fermingar-
fötin. „Það er gaman að sjá hvað
strákarnir eru farnir að þora að
fara í liti, fara í teinótt og vilja jafn-
vel vera í hvítum jökkum.“ Hún
segir að hvað stelpurnar varðar
þá séu þær farnar að fylgja sínum
eigin smekk meira og séu ekki eins
mikið í því að herma eftir hinum.
„Það er svo gaman að sjá hjá stelp-
unum að þær í rauninni fara i allt,
hvort sem það eru kjólar úr Rokk
og Rósum eða kjólar frá Karen
Millen. Þetta fer bara mikið eftir
týpum og mér finnst það gott hvað
þær eru komnar með sjálfstæðan
smekk snemma. Þessi aldur hefur
alltaf verið í því að fylgja næsta
manni en mér finnst það ekki eins
áberandi í dag. Þau þora að fara ót-
roðnar slóðir og ég ber mikla virð-
ingu fyrir þeim.“
Það er óhætt að segja að fermingar
séu heljarinnar bransi hér heima og
má segja að engin þjóð komist með
tærnar þar sem við erum með hæl-
ana. Það sem fylgir þeirri aðstöðu
er að fermingartískan verður að
miklu leyti til hér innanlands án ut-
anaðkomandi áhrifa. Eva segir að
það sé augljóst hver leggi línurnar
í fermingartískunni. „Ég myndi
segja að sú sem leggur línurnar
í fermingartískunni sé ótvírætt
Svava í 17. Hún er manneskjan sem
hefur átt þetta, bæði með versl-
unum sínum Retro og 17. Svo eru
núna aðrar verslanir farnar að taka
þátt í þessu. Það sem er áberandi
frá henni er svona mix-and-match-
tíska. Það er ekki einhver ein dragt
sem þú verður að vera í, þú getur
blandað saman og kannski keypt
þér pils við hana, seinna meir, og
notað bolinn lengur.“