blaðið - 03.07.2007, Page 2
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitíngahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús - hótel - mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Ekta
Sœlgætifiskur
ursjonum
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is
GU11kistan- Frakkastíg 10 - Sími: 551 -3160.
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbltskinnar og bita
ÉáÉá*éÉá>éöléÉáÉ áfcnfcd
SJALFLIMANDI HNIFAPAR
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum i skúffum.Einning sjálflímandi filt tilað
klæða skúffúr og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfúr-
plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og idýfúlög til að hreinsa.
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
SOMABAKKAR
PANTAÐU í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
^ j " ý.
i" “vV, í 2^1^ SL k
18
MATUR
ÞRIÐJUDAGUR 3. JULI 2007
blaðiö
Gott í góða veðrinu
Pitsa á grillið
Hver vill ekki fá sér ekta ítalska
pitsu sem steikt hefur verið á
glóðum á grillinu? Pitsuna er einnig
hægt að baka í ofni.
Pitsabotn
25 g þurrger
8 dl hveiti
2 tsk. salt
3 Vi dl vatn
3 msk. olía
Tómatsósa
2 hvítlauksrif
2 msk. ólífuolía
í rauður chili, takið fræin frá
í tsk. þurrkað óreganó
í tsk. þurrkað basil
2 dósir niðursoðnir tómatar
í msk. rauðvínsedik
1 Vi tsk. salt
í tsk. pipar
í tsk. sykur
Fylling
300 g parmaskinka
200 g gráðaostur
2 tómatar
2 msk. ferskt óreganó
íoo g ruccula
Pitsubotn
1. Blandið saman geri, hveiti og
salti í stóra skál. Hellið helmingnum
af vatninu og olíu saman við og
hrærið með trésleif. Bætið síðan
vatni í eftir þörfum. Deigið á að vera
mjúkt og gott að vinna með það.
2. Hnoðið deigið vel í 5-10 mínútur
á borði sem hveiti hefur verið stráð
yfir. Setjið síðan í skál sem hefur
verið smurð að innan með olíu.
3. Breiðið plastfilmu yfir skálina
og látið deigið hefast þar til það
verður tvöfalt að stærð.
Tómatsósan
1. Saxið hvítlaukinn mjög smátt
og steikið hann í olíu á pönnu. Bætið
við fínt söxuðu chili, óreganó, basil
og niðursoðnu tómötunum.
2. Látið sósuna malla í 30 mínútur.
Bragðbætið hana með ediki, pipar
og sykri.
Sósan geymist í viku í kæliskáp
en hún má ekki frjósa.
Þannig er pitsan grilluð
1. Skiptið deiginu í fjóra parta.
Búið til hringlaga pitsu úr hverjum
parti, um það bil 3 mm að þykkt.
2. Leggið pitsubotninn á heitasta
stað á grillinu. Látið standa þar til
botninn er orðinn gylltur. Penslið
hann þá með olíu, snúið honum við
og lækkið hitann.
3. Smyrjið þunnu lagi af tómat-
sósu á grilluðu hliðina, stráið bitum
af gráðaosti yfir, leggið parmaskink-
una ofan á og tómata í þunnum
sneiðum. Dreifið óreganó yfir.
Einnig má bæta við osti eftir smekk.
4. Lokið grillinu og látið pitsuna
vera á því þar til osturinn er bráðn-
aður. Leggið ruccula-salat ofan á
pitsuna áður en hún er borin fram.
Gott er að dreypa ólífuolíu yfir.
Mikilvægi kalsíums
Nauðsynlegt fyrir skrokkinn
Tilþess að tryggjaheilbrigði okkar
langt fram eftir aldri er mikilvægt
að við leggjum snemma grunninn
að heilbrigðum lífsstíl. Líkaminn
þarfnast ýmissa næringarefna til að
geta vaxið og dafnað og því er mikil-
vægt að við neytum fæðu sem veitir
okkur þessi efni. Kalsíum er stein-
efni sem styrkir bein og tennur og
tryggir það að allt gangi vel fyrir sig
með vöðva og taugar. Dagleg neysla
kalsíums getur styrkt beinin allt
þar til fólk verður 30 til 35 ára en þá
hafa beinin náð hámarksstyrkleika
sínum.
Eftir 35 ára aldurinn fer styrkleiki
beinanna dvínandi og því er mikil-
vægt að kalsíumneysla hafi verið góð
fram að því. Annars getur fólk átt á
hættu að fá beinþynningu. Kalsíum
er að finna í mörgum mismunandi
fæðutegundum. Mjólk og mjólkur-
afurðir innihalda mikið af kalsíum
og ættu því tvö mjólkurglös á dag
að tryggja heilbrigði beina og tanna.
Fyrir þá sem þjást af mjólkuróþoli
verður hins vegar að leita annarra
leiða til að nálgast hið heilsusam-
lega steinefni. Til dæmis er hægt að
neyta sojamjólkur, jógúrts og osta
sem eru með viðbættu kalsíum og
svo er líka mikið af kalsíum í græn-
meti á borð við spínat og spergilkál.