blaðið - 03.07.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 03.07.2007, Blaðsíða 4
t'xmm 20 MATUR ÞRIÐJUDAGUR 3. JULi 2007 blaöió HAVANA-BOLLUR MEÐ KÓRÍANDERSÓSU OG KÚSKÚS • 600 g nautahakk ' •2egg • 5 msk. • 1 stói laukui, smátt saxaðui • 2 msk. hveiti (má sleppa) • olía til steikingai • salt og pipai Blandið saman nautahakki, eggjum, , lauk og hveiti og búið til deig (eí deigið er mjög blautt gæti verið gott að bæta Örlítið meira af hveiti út í). Bragðbætið með salti og pipar. Mótið litlar bollur og steikið á pönnu, í góðri olíu í nokkrar mín. Sósa: • 2 dósii hiein jógúit • 4 msk. kóiíandeipestó íiá Sacla Blandið jógúrt og pestói vel saman og berið fram með bollunum. Beiið íiam með kúskús og ieisku salati. með saWmetum og kanfl VQOIS -(=*■ I_I +-< I SÆLKERAFERÐ UM FRAKKLAND Gullfalleg og eiguleg bók með 135 uppskriftum að hamtngfurmi áfranska visu. Nýtt ogferskt hráefiti, franskur matur ogfrðnsk vín sem krydda hamingju- leit okkar og stœkka sjóndeildarhringinn. Bon appetit! Bókaútgéfan Selke www.aalkaforleg.le Sklpholt SOC 's'qrænmeti sérmerkt þér! Margrét Guðnadóttir lÍLStakona Grillaður lax með pistasíum Margrét Guðnadóttir, listakona og eigandi Kirsuberjatrésins, er mjög mikill matgæðingur. Á sumrin eru matarboðin ófá þar sem Margrét eldar fyrir vini og ættingja. „Eg hef mjög gaman af því að elda en það er árstíðarbundið hvaða hráefni ég nota í eldamennskuna. Á sumrin GRILLAÐUR LAX FYRIR4 1 kg laxaflak 1 teskeið salt 'h sítróna 1 krukka mangó-chutney 140 g pistasíur 'h rauð paprika 'U Camembert-ostur 1 matskeið smátt saxað eða rifiö ferskt engifer nota ég mikið af laxi og silungi, það er svo létt, ferskt og sumarlegt. Uppáhaldssumarmaturinn minn er grillaður lax, það er svo auðvelt að elda hann. Hann er mjög bragð- góður og hentar vel ef maður er með matarboð,“ segir Margrét. Hún segir jafnffamt að fint sé að gera laxinn tilbúinn fyrr um daginn og grilla hann svo um kvöldið. „Eg byrja alltaf á því að smyrja tvöfaldan álpappír með olíu. Legg laxinn á pappírinn og strái salti yfir hann. Ég raspa síðan engifer yfir laxinn og met bara hversu mikið þarf. Sítrónan er svo kreist yfir. Þetta er smurt með mangó-chutneysósu og ég strái síðan pistasíum yfir. Cam- embert-ostur er skorinn niður í litla ferninga og honum dreift á flakið og sömuleiðis paprika, smátt skorin. Þegar búið er að setja allt hrá- efni á laxinn er hann tilbúinn á grillið. Passa þarf að elda fiskinn ekki of mikið. Best finnst mér að bera laxinn fram með kartöflum og sýrðum rjóma með graslauk," segir Margrét og bendir á að það sé einnig hægt að setja laxinn í eldfast mót og elda í ofni. „Þessi uppskrift klikkar aldrei. Það er langbest að hafa þetta auðvelt og þægilegt yfir sumar- tímann. Þó að uppskriftin sé ekki flókin kemur það alls ekki niður á gæðunum eða bragðinu. Sumarsalat og salatsósa Á sumrin er tilvalið að vera með léttan og góðan mat á boðstólum. Margir prófa sig áfram með ýmiss konar salatrétti. Salöt eru mjög hentug sem meðlæti en þau eru líka frábær sem aðalréttur. Hér að neðan má finna uppskrift að kjúk- lingasalati og einnig salatsósu sem væri mjög góð með þessu salati. KJÚKLINGASALAT Meö hnetum 3 bollar af kjúklingi niður skornum 3 laukar þunnt sneiddir 2 stilkar sellerí þunnt skornir 'h bolli af hnetum, til dæmis furuhnetur, léttristaðar 1 bolli af sýrðum rjóma 'U bolli sítrónusafi 2 matskeiðar fersk stein selja 'h teskeið af salti • 'M teskeið af ferskum pipar Blandið saman kjúklingi, lauk, selleríi og hnetum í stóra skál. Blandið síðan afganginum af hráefninu saman við. Gott er að bera salatið fram með salatsósu. GÓÐ SALATSÓSA 3 matskeiðar af balsam ediki 1 matskeið af rauðvínsediki 1 teskeið af Dijon-sinnepi 1 hvítlauksrif % bolli af ólífuolíu, sérstak lega gott að nota jómfrúar olíu (extra virgin) salt og pipar Blandið saman balsamediki og rauðvínsediki, sinnepi og hvítlauk í matvinnsluvél. A meðan vélin er ígangi, bætið þá við ólífuolíu. ílokin má bragðbæta með salti og pipar. Þessa salatsósu má geyma í kæli f allt að eina viku. En munið að hrista salatsósuna vel fyrir notkun.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.