blaðið - 03.07.2007, Blaðsíða 8
24
MATUR ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2007
blaöið
Muurikka-pönnur
Enn ein snilldin
frá Finnlandi
Það er margt sniðugt sem frændur
vorir í Finnlandi hafa fært okkur.
Nokia-farsímar, Valmet-dráttar-
vélar, skrímslarokksveitin Lordi að
ógleymdum Finlandia-vodkanum.
Það má með sanni segja að Finnar
séu einstaklega hugmyndarík þjóð
og nú er enn ein nýjungin frá Finnum
komin á Islandsmarkað en það er
hin magnaða Muurikka-panna.
Þessar pönnur er hægt að kynda
upp jafnt með gasbrennara, kolum
eða yfir opnum eldi og er því hægt
að elda á þeim hvar sem er. „Þú
getur sett þær á hlóðir og eldað og
steikt á þeim alveg jöfnum höndum
kjöt, fisk eða grænmeti, bakað
pönnukökur, flatkökur og skonsur,“
segir Þorsteinn Fjalar Þráinsson,
umboðsaðili hinna mögnuðu
Muurikka-panna.
Hann segir ennfremur að Muu-
rikka-pönnurnar séu gríðarlega
vinsælar úti í Finnlandi. „Þetta er
eiginlega jafn vinsælt og sánaböð.“
Hið merkilega við Muurikka-pönn-
urnar er einmitt það að þær eiga
ættir sínar að rekja til sánabaðanna.
,Þegar Finnarnir fara í gufu þá leiða
þeir vatnið í járndunk sem múraður
er inn í vegg og svo er eldur þar
undir og gufan fer inn í vegg. Svo
með tíð og tíma þá tærðist járnið
og þá fóru menn að nota toppinn á
kútnum til að elda.“ Það var svo í
kringum 1970 sem farið var að fram-
leiða þessar vörur undir vörumerk-
inu Muurikka.
Þorsteinn segir að nú þegar hafi
þessar pönnur fengið góðar við-
tökur og nefnir sem dæmi að Múla-
kaffi hafi fjárfest í stærstu Muu-
rikka-pönnunni og það sé mikil
ánægja með hana á þeim bænum.
,Þetta er mjög skemmtileg græja og
má eiginlega segja að þetta sé vara
sem selji sig sjálf, þegar fólk kynn-
ist þessu og prófar þetta þá verður
það yfirleitt yfir sig hrifið.“ Segja
má að matur sem eldaður er á svona
pönnu minni mjög á hefðbundinn
grillmat fyrir utan eitt mikilvægt
atriði. „Það eru margir sem tala
um að þeir fái loksins grillmat sem
er ekki með brunabragði því þú ert
ekki að kveikja í matnum.“
Muurikka-pönnurnar fást í
mörgum mismunandi stærðum,
allt frá pönnum sem eru 26 senti-
metrar í þvermál yfir í jatti-pönn-
una sem er metri í þvermál. Þor-
steinn segir að vinsælasta pannan
sé sú sem er 48 sentimetrar en hún
hentar vel fyrir 4 til 6 manna fjöl-
skyldu. Hann bendir einnig á að
með öllum minni pönnunum sé
hægt að fá burðarpoka sem rúmar
bæði pönnuna og gasbrennara
þannig að auðvelt er að ferðast með
þær.
Þessar prýðispönnur eru meðal
annars seldar í verslunum El-
lingsen bæði í Reykjavík og á Ak-
ureyri en allar nánari upplýsingar
er hægt að nálgast á heimasíðunni
www.muurikka.is.
Gerðu það gott með Season All
'McCornu^k
McCorniick'
l|||ir-'MrCortn
eason
I