blaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 22
30
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007
blaóió
LÍFSSTÍLLVEIÐI
veidi@bladid.net
'wesiffl Við Jón Ingi Ágústsson erum með þetta
saman og ætlum að bjóða upp á veiði-
ferðir til Taílands í vetur, þama er hægt að
veiða í uppistöðulónum fína fiska.
LAUGARDAGAR
ORÐLAUSTÍSKA
Auglýsingasíminn er
Merkið sem þú treystir
Veiðimenn kvarta ekki við Grímsá
F^OmWBUPr
Vænn lax Erla Björg
Guðrúnardóttur með lax
úr Grímsá í Borgarfirði. ||
Laxveiðin að glæðast
„Laxveiðin mætti vera aðeins betri
en veiðimenn kvarta ekki mikið og
halda áfram að kasta og kasta, fisk-
urinn kemur. Og hann er aðeins að
mæta í árnar. „Þetta er allt í lagi
hérna, það er komið töluvert af laxi
í ána,“ sagði Jón Þ. Júlíusson um leið
og lax stökk fyrir neðan veiðihúsið í
Grímsá, það var alveg logn og fiskur
víða að sýna sig.
„Vatnið hefur aðeins aukist en ekki
mikið, það mætti rigna meira hérna,“
sagði Jón og var að ræða við erlenda
veiðimenn sem voru að koma í hús,
þeir höfðu fengið einn lax.
GRÍMSÁ
►
►
►
Grímsá er í Borgarfirði
Hún er ein vinsælasta lax-
veiðiá landsins
Fallegt veiðihús er við
Grímsá, teiknað af Ernest
Schwiebert, sem er mikill
veiðimaður og kom oft til
veiða í ánni
►
í veiðihúsinu er fyrsta
flokks matur fyrir veiði-
menn
►
Grímsá stendur í afar fal-
legu landslagi
„Við fengum 14 punda lax í gær
og það eru koma upp laxar á hverri
vakt,“ sagði Sigurður Fjeldsted, stað-
arleiðsögumaður við ána.
„Það komu nokkrir laxar á land
í morgun,“ sagði Sigurður og gekk
með blaðamanni að Laxfossi, þar
sem hann gaf sig á tal við erlendan
veiðimann sem var við veiðar í foss-
inum. Hann hafði ekki fengið neitt.
Sigurður er að skipuleggja veiði-
ferðir til Taílands og þegar blaða-
maður forvitnaðist um þær sagði
hann að til stæði að fara þangað í
vetur.
„Við Jón Ingi Ágústsson erum
með þetta saman og ætlum að bjóða
upp á þessar veiðiferðir í vetur,
þarna er hægt að veiða í uppistöðu-
lónum fina fiska. Það er víða góð
veiði. Ég held að íslenskum veiði-
mönnum eigi eftir að líka vel við
þessar ferðir," segir Sigurður og það
stekkur lax fyrir neðan Laxfossinn.
Það er greinilegt að líf í áni.
Góð silungsveiði víða
Bleikjan skilar sér aftur
Það hefur víða verið góð silungs-
veiði og bleikjan er að skila sér aftur,
eftir frekar mörg mögur ár.
Hilmar Ólafsson og fleiri voru á
silungasvæðinu í Miðfjarðará fyrir
skömmu og veiddu vel. Fengu þeir
félagar sautján fiska, frá einu upp í
fjögur pund, bæði bleikjur og urriða.
Einn kola fengu þeir líka.
Vænar bleikjur hafa verið að veið-
ast í Eyfjarðará og alþingismaður-
inn, Kristján Þór Júlíusson, veiddi
átta punda bolta þar fyrir fáum
dögum.
Veiðimenn sem voru í Hvolsá og
Staðarhólsá veiddu vel af bleikju og
líka veiðimenn sem voru í Miðá í
Dölum, neðarlega í ánni.
Af Efri-Haukadalsá í Dölum, sem
hefur á erfitt uppdráttar í veiðinni,
hefur lítið frést af veiði. Veiðimenn
sem veiddu þar fyrir skömmu, lentu
í óskemmtilegri reynslu. Þegar þeir
ætluðu að hefja veiðiskapinn, var
ósinn þvergirtur með netum. Lítið
gekk í veiðinni, enda aðstæður mjög
erfiðar á staðnum og erfitt að koma
færinu út í fyrir DRASLI.
t V
Góð veiði Páll Ársæll með væna sjó-
bleikju úr Sandhólmahyl í Miðfjaröará.
Vantar þig veiðileyfi? www.svfr.is er málið!
Úrval veiðileyfa - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu
Fréttir, greinar, fróðleikur og margt fleira