blaðið - 03.08.2007, Page 26
34
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007
blaöiö
450 kR í bfðl GlUr s allar sýBiogar næpfctap neð rsulul
REGIlBOGinn
samÆkiMmm
kl. 3:40-5:50- 8-10:10
GEORGIA RULES
kl. 5:30-8-10:30
HARRY POTTER 5
kl. 2-5-8-10:10
HARRY POTTER 5
HARRY POTTER 5
ld.2-5-8 VIP
EVAN ALNIIGHTY
kl.2-4-6
SHREK3
SHREK8M fr
OCEAN'S 13
ld. 10:10
/ KRINGLUNNI
NANCYDREW
GEORGIA RULES
HARRY POTTER 5
SHREK 3 M/ ÍSL TAL
kl. 3:50-6-8:10-10:20
Kt. 8-10:30
ld. 5:20-8-10:40
kl. 4 - 6
/ AKUREYRI
SHREK3 iSLTAL kl, 6
NANCY DREW kl. 8-10
HABHY P0TTER 5 kl. 6
GE0RGIA RULES kJ.9 '
NANCYDREW jkJ.6-8-10
SIMPS0NS jld 6-8-10
Nýtt í bíó
PLANET TERR0R kl. 8 oq 10.20-POWER 16
SIMPS0N enskttaJ kl. 4,6,8og 10 L
SIMPS0N aerekö kl. 4 og 6 L
1408 kl. 8 oq 10 16
SHREK 3 tslenskt tal kl. 4 og 6 L
HASKÓLABÍÓ
SIMPS0N enskttal kl. 6,8 og 10 L
SIMPSÖN felenskta kl.6 L
DEATH PR00F kl. 8og 10.40 16
PLANETTERROR i kl. 8 og 10 16
SIMPSONenskttal kl. 6.8 oq 10 L
SIMPS0N íslenskt taJ |ld.6 L
mnmmmms®
SAMbio.is .
C575 8900
ÓVÆNTASTA
STELPUMYND
ÁRSINS !
Emma Roberts
NancyI
DREW i
Yngsti oo klArasti j
EINKASPÆIARI HEIMS ER NÚ |
MÆIT A HVfTA TIALDtD.
Byoot A HINUM PRABÆRU I
Nancy Drew bókum. J
PLANETTERR0R kL520.8og10.40 16
SIMPSON enskttal kL 620,8.30 og 10.30 L
DEATHPR00F kl. 520,8 og 10.40 16
DIE HARD4.0 kl. 5.20,8 og 10.40 14
SmtíRH^BÍÓ
SIMPSON enskttal kl. 4,6,8 og 10 L
SIMPS0N LÚXÚS kl. 4,6,8og 10 L
SIMPSON (slenskttal kl. 4, 6,8 og 10 L
EVAN ALMIGHTY kl. 4. 6,8 og 10 L
DIE HARD4.0 kl. 5,8 og 10.45 14
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Ég veit ekki betur en að það standi til að sýna
myndina á erlendum hátíðum. Þannig að
myndin kemur til með að fara víða og er aldrei að
vita nema ég verði að gay iconi í Evrópu.
íslensk stuttmynd um samkyrihneigða glímukappa
Ekki einfaldur djókur
Apparat Organ Quartet á
tónleikum Mynduðu þetta
sama merki á Airwaves-tón-
leikum á síðasta ári og má sjá
fjölda gesta gera eins þelm til
sarnlætis. Mynd/AuöurSigurbergsdól
Merkjasendingar á tónleikum
Hver apar eftir hverjum?
Á tónlistarsíðunni www.pitchfork-
media.com má sjá myndir af franska
dúettnum Daft Punk, en þeir héldu
tónleika í Seattle í Bandaríkjunum
þann 28. júlí síðastliðinn. Á mynd-
inni má sjá meðlimi Daft Punk gera
ákveðið merki á milli laga með hönd-
unum sem mynda einskonar þrí-
hyrning. Aðdáendur íslensku sveitar-
innar Apparat Organ Quartet kunna
að hafa séð meðlimi bandsins gera
slíkt hið sama á tónleikum sínum
og nú er spurning hver er að apa
eftir hverjum eða hvort að böndin
hafi tekið höndum saman og séu að
senda óræð skilaboð til tónlistarunn-
enda um gjörvállan heim.
Daft Punk Meðlimir dúettsins mynduðu
unyætt merki átónleikum í Seattle i júlL>
síöaaUiönufn.j-jQ g0 tu/5£ /jþTdf;
Nú styttist óðum í Alþjóð-
lega kvikmyndahátíð en
hún fer fram í Reykjavík
dagana 27. september
til 7. október næstkom-
andi. Fjöldi góðra mynda
verður í boði á hátíðinni
líkt og undanfarin ár og
verður íslenskum stutt-
myndum gert hátt undir
höfði.
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@bladid.net
Fimm islenskar stuttmyndir, og
ein erlend með íslenskum aðalleik-
ara, verða frumsýndar á hátíðinni
auk þess sem úrval vandaðra stutt-
mynda af liðnu ári verður sýnt.
Aðstandendur kvikmyndahátíðar
segjast finna fyrir miklum áhuga er-
lendra blaðamanna á íslenskri kvik-
myndagerð og vilja bregðast við með
þvi að sýna nýja gæðaframleiðslu.
Kvikmyndin Bræðrabylta er
meðal þeirra íslensku stuttmynda
sem sýndar verða á hátíðinni.
Myndin fjallar um tvo samkyn-
hneigða glímumenn sem eru
bændur í afskekktri sveit og fella
hugi saman, en það eru þeir Halldór
Bræðrabylta Fjallar um
samkynhneigða glímukappa
sem búa í afskekktri sveit
Gylfason og Björn Ingi Hilmarsson
sem fara með aðalhlutverkin og
Grímur Hákonarson sem leikstýrir.
Tekur sig vel út í glímubúning
„Við leikum glímumeistara sem
eru hommar, sem er mjög fyndin
hugmynd," segir Halldór Gylfason
leikari. „En það er ekki bara það
sem myndin snýst um heldur er heil-
mikið í lífi þessara manna sem gerir
myndina áhugaverða, þannig að
þetta er ekki bara sá einfaldi djókur
að það séu þarna tveir glímumenn
hommar heldur eru þeir að kljást
við sitt eigið líf fyrir utan að halda
sambandinu leyndu. Við Björn Ingi
leikum sem sagt tvo menn sem búa
á sveitabæjum. Annar er bóndi með
fjölskyldu en hinn býr hjá mömmu
sinni, en ég leik þann mann, og svo
gerist ýmislegt sem veldur miklum
breytingum. En það má segja að
Bræðrabylta sé blanda af gaman og
drama og það koma þarna nokkur
atriði þar sem maður veit ekki hvort
maður á að hlæja eða gráta.“
Þar sem glímuíþróttin skipar
stóran sess í myndinni þurftu aðal-
leikararnir að læra nokkur tök. „Við
þurftumauðvitaðaðlæraglímunaað-
eins en þetta var mjög skemmtilegt
æfingatímabil, við fórum á glímuæf-
ingar og þurftum að tileinka okkur
tæknina til að gera þetta trúverðugt.
Það var mjög gaman og glímugæj-
arnir sem kenndu okkur voru alveg
frábærir. En þetta er íþrótt sem ég
væri til í að æfa, flott sport og þræl-
erfitt. Það þarf mikinn kraft og út-
hald og mikla lipurð. Fyrir utan það
hvað glímubúningarnir eru fallegir
og aðsniðnir. Enda tekur karlmanns-
líkaminn sig vel út í glímubúningi,“
segir Halldór og hlær.
„En Bræðrabylta er mjög skemmti-
leg mynd og hefur hún nú þegar
vakið athygli ytra og ég veit ekki
betur en að það standi til að sýna
hana á erlendum hátíðum. Þannig
að myndin kemur til með að fara
víða og er aldrei að vita nema ég
verði að gay iconi í Evrópu.“
Saumlaus og létt fylltur (BCD skálum
á kr. 2.350,- buxur í stfl á kr. 1.250,-
Fylltur push up haldari ( BC skálum á
kr. 2.350,- buxur I stíl á kr. 1.250,-
Flottur blúnduhaldari I BC skálum á
kr. 2.350,- buxur I stll á kr. 1.250,-
Halldór Gylfason leikari
Leikur annað aðalhlutverkið
í stuttmyndinni Bræðrabyltu
Blaöiö/Sverrir
Ekki alit
sem sýnist
Þær sögur ganga nú fjöllunum
hærra að samband Brads Pitts
og Angelinu
Jolie hangi á
bláþræði og að
sambandsslit
séu á næsta
leiti. Ný-
legt rifrildi
parsins gefur
sögusögnum
óneitanlega byr
undir báða vængi, en Angelina
mun hafa fleygt vínglasi í andlit
Brads eftir mikil öskur og læti.
Vinur parsins sagði Style Magaz-
ine að neistinn væri enginn í
sambandinu. „Þau gera ekki
hvort annað hamingjusamt og
rómantíkin er farin. En þau vilja
halda saman vegna barnanna.“
Vill eðlilegt
uppeldi
Fyrrverandi eiginmaður Britney
Spears, Kevin Federline, segist
vilja að synir
sínir upplifi
eðlilegt líf
án áreitis
fjölmiðla og
almennings.
Eins og frægt
er orðið skildu
þau Britney og
Kevin í vikunni
og hefur forræðisdeila staðið
yfir síðustu vikur. Lögmaður
Kevins fullyrðir að drengirnir
verði lausir við áreiti fjölmiðla
þegar þeir verði hjá honum. „Það
verður ekki fundin mynd af Kev-
in með börnin á almannafæri.
Hann einbeitir sér nú að því að
verða eins gott foreldri og mögu-
legt er.“
Spice Girls
til Bagdad
Fyrirhuguð tónleikaferð Spice
Girls hefur nú tekið nýja og
óvænta stefnu.
Kryddpíunum
fannst erfitt að
gera upp við sig
hvaða fjórtán
tónleikastaði í
heiminum þær
ættu að velja
og leyfðu þær
aðdáendum
þess vegna að velja eina borg.
Eftir mikla atkvæðagreiðslu á
netinu trónir Bagdad á toppnum.
Sennilega eru Kryddpíurnar
hissa á niðurstöðunni.
Lindsay leitar
til Fergie
Lindsay Lohn mun hafa slegið
á þráðinn til
söngkonunnar ,
Fergie tveimur / V \
dögumáðuren iL i
hún var hand- Kt&í' ]
tekin. Ástæðan ® jjjt d
ku vera sú að
Lindsay vill
fá Fergie til
að semja fyrir tœ&t M fe
sig lag á fyrirhugaða plötu, en
óþekktarormurinn hyggst hefja
vinnslu plötunnar á næstu miss-
erum. Móðir Fergie staðfesti
þetta í vikunni og sagði greini-
legt að Lindsay liti upp til Fergie
sem tónlistarmanns og væri hrif-
in af laginn Big Girls JDon'tCry.