blaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 30
38
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007
blaðið
ir
FÓLK
folk@bladid.net
Löggan er ekki búin að
vinna eitt eða neitt og Jón
H.B. Snorrason er enginn
James Bond. Ég mun áfrýja.
Tapaði Goldfinger fyrir James Bond, aftur?
Ásgeir Öm Davíðsson, befur þekktur sem Geiri
á Goldfinger, hefur misst leyfið fyrir nektarsýn-
ingar á súlustaðnum Goldfinger, en í samnefndri
kvikmynd lét Auric Goldfinger lífið í seríunni um
njósnara hennar hátignar, James Bond.
HEYRST HEFUR
Sjónvarpsfréttamaðurinn
Baldvin Þór Bergsson flutti
sérkennilega frétt í sjö-fréttum
Sjónvarps á miðvikudagskvöld.
Þar fjallaði hann um tekjuhæstu
íslendingana er birtust á lista
Frjálsrar verslunar og Mannlífs
og tók fram við Boga Ágústs-
son, sem var með Baldvini í
útsendingunni, að Bogi væri
á lista tímaritanna. Varð Bogi
hálfvandræðalegur en Baldvin
var hvergi banginn og braut í
framhaldinu tvær meginreglur
blaða- og fréttamanna,
þegar hann sagðist
sjálfur vera á listanum
og ekki par ánægður
með það. Það hefur
sjaldan þótt við
hæfi að fjölmiðla-
fólk flytji fréttir
af sjálfu sér, hvað
þá lýsi yfir eigin skoðun á frétt,
sérstaklega á meðan það fjallar
um hana...
Nafnleysi í bloggheimum hefur
löngum verið mörgum netverj-
anum þyrnir í augum. Nú hefur
hulunni verið svipt af einum
alræmdasta, kaldhæðnasta,
grófasta og fyndnasta nafnlausa
bloggaranum, sjálfri Mengellu.
BÁ vefnum malbein.net
og mengella.blogspot.
com kemur fram að
það er Ólafur Sindri Ól-
afsson sem býr að baki
Mengellu en fátt er vitað um
hann annað en að hann stóð sig
með prýði í tölvunarfræðideild
Háskólans í Reykjavík í fyrra...
Það er ekki tekið út með sæld-
inni að vera Ámi Johnsen þess
dagana. Núhefur Þjóðhátíðar-
nefnd í Eyjum ekki lengur áhuga
á þjónustu Árna sem kynnis á
hátíðinni og segir Árni pólitík
spila þar inn í. Nefndin segir
það rangt og segir ástæðuna
framkomu Árna árið 2005 þegar
hann sló Hreim Heimisson,
söngvara Lands og sona. Aðrir
muna eftir atviki milli hans og
Páls Óskars Hjálmtýssonar og
segist nefndin ekki geta borið
ábyrgð lengur á gjörðum Árna
sem kynnis. Þó má fastlega
búastvið að Árni leiði,
Brekkusöng sem
áður, enda kemst
enginn með tærnar
þar sem Árni hefur
gítarinn, ekki
einu sinni Róbertl
Marshall...
Margrét Helga Ögmundsdóttir er í róðraliði Oxfordháskóla
Leitaöi að líkamsrækt
Margrét Helga Ögmunds-
dóttir er doktorsnemi í
lífefnafræði við Oxford-
háskóla í Englandi. Hún
ákvað að prófa róður sér
til heilsubótar og endaði
í aðalliði skólans, sem
keppir árlega við erkióvin-
ina í Cambrigde háskóla, í
heimsfrægri róðrakeppni.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
„Ég hafði verið að leita mér að
hentugri líkamsrækt til að stunda
og villtist inn á kynningu á róðri í
mínum háskólagarði. Það er gífur-
lega sterk hefð fyrir róðri hérna í
skólanum og því ákvað ég að slá til
og prófa“ segir Margrét sem fann sig
vel í þessari íþrótt því eftir aðeins
sex mánuði komst hún í aðallið skól-
ans. Má segja að þetta sé í genunum
því faðir hennar er Ögmundur Jón-
asson, alþingismaður.
„Jú,jú, hann hefur oft lent í
þungum róðri í pólitíkinni og er að
mínu mati besti ræðarinn í sinni
deild! Annars var kærastinn minn
róðramaður í Harvard-háskóla í
Bandaríkjunum þegar hann var þar
við nám, þannig að hann hvetur
mig áfram í þessu. Innan skólans
KONAN
Margrét er 26 ára gömul
Hún útskrifaðist sem líf-
efnafræðingur frá Háskóla
íslands 2006
Margrét vinnur að verkefn-
um sínum allt árið og fæst
nú við rannsóknir á tengsl-
um insúlín-boðleiðarinnar
við krabbamein
eru 39 garðar og er hver garður með
sitt eigið róðralið. Ég hóf keppni
með mínum garði, sem heitir Christ
Church, en í apríl hóf ég æfingar
með aðalliði skólans. Það er ofboðs-
legur rígur milli garðanna þegar
þeir keppa sín á milli, en rígurinn
á milli Oxford og Cambridge er auð-
vitað heimsþekktur."
Oxford á harma að hefna
„Síðasta keppnin var núna 7.
maí þar sem Cambrigde vann,
bæði í karlaflokknum og kvenna-
flokknum. Við eigum því harma að
hefna. Það kom mér reyndar rosal-
ega á óvart hversu mikill rígur og
keppni er í þessu. En þetta er fyrst
og fremst frábær hreyfing og ofboðs-
lega skemmtilegt. Fyrst voru þetta
sex æfingar í viku en núna eru þetta
tíu æfingar í viku og maður þarf að
vakna eldsnemma á morgnana til að
æfa. Við æfum bæði í bátum á ánni
en einnig eru æfingar í landi, hlaup
og slíkt. Síðan er auðvitað róðra-
vélin alltaf vinsæl. Þetta er mikil
tækni sem þarf að læra og allt bygg-
ist þetta á þéttum og jöfnum takti.
Þetta eru átta manna bátar sem ég
keppi í, og þar er hver og einn með
eina ár. Síðan er sá léttasti látinn
stýra og hvetja hina áfram.“
Árlega horfa um 120 milljónir
manna um allan heim á þessa elstu
og frægustu róðrakeppni heims í
sjónvarpi, sem fer fram á hverju
sumri á Thames-ánni. Um 250.000
manns fylgjast með á bökkum ár-
innar og hvetja sitt lið. Keppnin var
fyrst haldin árið 1829 og hefur Cam-
bridge haft oftar vinninginn, 79
sigrar, meðan Oxford hefur unnið
73 sinnum. En skyldi Margrét hafa
íhugað atvinnumennsku eða
Ólympíuleika?
„Ekki mikið, nei. Reyndar eru til
atvinnumenn í þessu og hafa skól-
arnir haft nokkra í sínum röðum.
Til dæmis í síðustu aðalkeppni sat
ein hollensk stelpa fyrir aftan mig,
sem einnig var silfurverðlaunahafi
á síðasta Heimsmeistaramóti. Ég
veit bara ekki hvernig landslagið
er í þessu heima á íslandi, hvort
einhverjir klúbbar eru starfræktir
að ráði, en það gæti verið gaman að
halda þessu áfram.“
„Terror er ekki íslenzkt vandamál. Hér þarf
engar sérsveitir. En við búum við vanda öl-
æðis. Nótt sem nýtan daga vaða drykkjurút-
ar um samfélagið. Þeir slást hver við annan
og slást upp á annað fólk. Stela bílum og
keyra á 150 km hraða. Fara vopnaðiri
kjörbúðir og hræða unglinga við afgreiðslu-
störf. Þessi vandræði stafa afmeðvirkni
samfélagsins. Áfengi er talið vera þátturí
tilverunni, þótt önnur fíkniefni séu bönnuð.
Útlendingar em famirað taka eftir, að
viðhorf okkar em kmmpuð. Venjulegu fólki
finnst ilagi að drekka öl daglega og fara
vikulega á skallann. Það er meinið. “
Jónas Krístjánsson
jonas.is
Rétt og rétt
„Bloggararnir Björn Bjarnason og Sig-
urður Kári Kristjánsson, ráðherra og
alþingismaður, halda þvífram að það sé
einsdæmi að stjórnmálaflokkur haldi jafn
miklu fylgi isvo langan tíma þrátt fyrir að
vera samfellt í ríkisstjórn. Þetta er ekki
rétt og skal þeim bent á Zimbabwe sem
dæmi þar sem Robert Mugabe ræður
rikjum. Þar fær hann meirihluta atkvæða
kosningar eftir kosningar en lífskjörin i
landinu versna og versna og verðbólgan
mælist nú um 4000 prósent ilandinu. “
Jón magnússon
jonmagnusson.blog.is
Egó ráðherrans
„Hvað segir maður um þingmann sem
er fyrsti flutningsmaður 16 frumvarpa á
síðasta kjörtirhabili og þar af 4 sinnum
um sama málefni? Á hverju þingi lagði
hann fram frumvarp um þetta hugðarefni
sitt, það er fjórðung allra frumvarpa sem
þingmaðurinn hefurlagt fram íeigin nafni.
Er ekki hægt að segja óhikað, að málið
sé viðkomandi þingmanni hjartans mál?
En hvað á maður svo að halda, ef sami
þingmaður verður ráðherra og lætur það
verða eitt sitt fyrsta verk að gefa það út
að hann ætli ekki að beita sér fyrir viðkom-
andi máli? Er rökrétt að draga þá ályktun
að stjórnmálamaðurinn sé hugsjónalaus
eiginhagsmunapotari sem er bara ípólitík
fyrir eigið egó? “
Friðjón R. Friðjónsson
fridjon.eyjan.is
BLOGGARINN...
Ölæði
Su doku
2 4 1 9
3 5 2
7 6 3
7 9 3 4
5 9 1 7
4 6 5 8
4 1 2
9 3 5
7 8 4
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upþ eru gefnar.
Er ekki kominn tími á að
börnin fari í háttinn?
9-30
O LaughingStock Inlematlonal IncTdlst. by UnHed Medla, 2004
HERMAN'
eftir Jim Unger