blaðið - 14.08.2007, Page 1

blaðið - 14.08.2007, Page 1
blaðiö Að svara tölvupósti með farsímanum þegar þú bíður eftir að komast á teig á fyrstu holu ÐlackBerry HEILSA AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@BLAOID.NET ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST Góö öndun bætir heilsu 18 Skólatöskur oft of þungar 18 Mjúk en styrkjandi leikfimi 20 Sílíkon og sjálfsvíg 21 Lífræn gæðavara 21 Fæðugagnagrunnur á Netinu 22 Lífræn gæðavara 21 Fæðugagnagrunnur á Netinu Einstök heymartæld Bylting fyrir heyrnarskerta KYNNING Heyrnartækni býður nú upp á einstök heyrnartæki sem eru sann- kölluð bylting fyrir heyrnarskerta. Heyrnartækin sem um ræðir heita Epoq en þau eru fyrstu og einu heyrnartækin á markaðnum í dag sem hægt er að tengja þráðlaust við önnur tæki eins og farsíma. Með Epoq opnast nýr heimur fyrir heyrn- arskerta þar sem nú er m.a. hægt að nota heyrnartækin til að hlusta á samtal í farsíma eða tónlist úr öðrumtækjum. Epoq-heyrnartækin eru ekki bara með framúrskarandi hljómgæði því þau eru líka fyrstu heyrnartækin sem tala saman. Al- gengt er að heyrnarskertir þurfi heyrnartæki í bæði eyru og Epoq er því frábær kostur fyrir þessa einstak- linga þar sem tækin skiptast stöðugt á upplýsingum sín á milli og sam- hæfa þannig stillingar hverju sinni. Epoq-heyrnartækin eru alveg sjálf- virk og nota gervigreindartækni til að meta hvaða stillingar henta við ólíkar aðstæður. Frá því að Epoq var sett á markað í byrjun júní hafa viðtökurnar verið frábærar. Jón Arnar Magnússon var einn af fyrstu viðskiptavinum Heyrnartækni sem fengu sér Epoq- heyrnartæki. Starfs síns vegna notar Jón Arnar mikið tölvur og því fékk hann sér einnig Epoq Streymi til að geta hlustað þráðlaust á hljóð úr tölvunni, farsímanum og öðrum tækjum. Jón Arnar er mjög ánægður með tækin og segir að þau virki vel. Hann segist finna mikinn mun á því að nota Epoq og með Epoq Streymi getur hann m.a. talað áhyggjulaus i farsímann þegar hann er að keyra. Heyrnartækni er fyrsta einka- rekna heyrnartækjastöðin og hefur síðan árið 2001 boðið upp á heyrnar- tæki frá Oticon, dönskum heyrnar- tækjaframleiðanda sem er leiðandi í þróunheyrnartækja. Heyrnartækni kappkostar að bjóða viðskiptavinum sínum upp á bestu heyrnartækin á markaðnum hverju sinni, einstaka þjónustu og góða eftirfylgni eftir að tækin hafa verið afhent. Hjá Heyrnartækni starfar hópur starfsfólks með mikla reynslu af þjónustu við heyrnarskerta. Má þar nefna heyrnar- og talmeinafræð- inga, hjúkrunarfræðing og heyrn- artækjasérfræðing. Heyrnartækni er til húsa í Glæsibæ, Álfheimum 74, en er einnig með útibú á 18 stöðum á landsbyggðinni. Nánari upplýs- ingar er að finna á www.heyrnarta- ekni.is.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.