blaðið - 14.08.2007, Síða 5

blaðið - 14.08.2007, Síða 5
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 HEILSA 21 Móðir Jörð Lífrænt er bara betra Með árunum hafa lífrænt ræktuð matvæli notið sífellt meiri vinsælda og ekki að ástæðulausu. Að Valla- nesi á Fljótsdalshéraði er starfrækt fyrirtækið Móðir Jörð sem sérhæfir sig í framleiðslu á hvers konar vörum úr lífrænu hráefni. „Við sér- hæfum okkur í lífrænni ræktun á kartöflum, grænmeti og síðan framleiðslu á tilbúnum grænmetis- buffum sem eru seld frosin. Þá fram- leiðum við líka nuddolíur sem eru með íslenskum jurtum. Auk þess erum við með bygg, bankabygg og byggmjöl," segir Eymundur Magn- ússon, bóndi að Vallanesi. Eymundur byrjaði sinn búskap fyrir næstum þrjátíu árum en eftir um tíu ára búskap breyttust áhersl- urnar í búskapnum. „Ég byrjaði 1979 að búa og var þá fyrst með hefð- bundinn búskap, kýr og kálfa. Það var svo 1989 sem ég skipti yfir í líf- ræna ræktun og i þann farveg sem við erum í núna. Þetta hefur verið að smá þróast og aukast, bætast við tegundir." Spurning um gæði Aðspurður um hvers vegna líf- ræn matvæli séu svo vinsæl segir hann að það snúist fyrst og fremst um gæðin. „Það koma margir neyt- endur til mín og segjast ekki geta borðað neitt annað því það er svo al- gengt að fólk sé með eitthvert óþol eða ofnæmi. Þarna ertu bara með algjörlega hreina náttúruna þannig að það komast engin aukefni að sem geta verið ofnæmisvaldandi. Svo er það bara þannig að þeir sem smakka lífrænt ræktað vilja bara ekkert annað eftir það. Það er svo miklu bragðmeira og bragðsterkara og svo geymist þetta líka betur, þar sem þetta vex hægar og hefur því meiri kjarna.“ Nú er sá árstími þegar fólk fer að langa í nýjar kartöflur og Ey- mundur er búinn að gefa sínum viðskiptavinum mjög nákvæma tímasetningu. „Ég var búinn að lofa kartöflunum 14. ágúst klukkan þrjú en ég er eiginlega búinn að fresta því til klukkan hálf fjögur af því að það er búið að vera svo þurrt.“ Þeir sem vilja kynna sér betur vör- urnar frá Móður Jörð geta nálgast þær víða en þær fást meðal annars Bakverkir Bakverkir eru hvimleiðir verkir sem margir þurfa að glíma við. En bakverkir eru eitt algengasta heilsufars- vandamál á Vesturlöndum. Bakverkir stafa sjaldnast af al- varlegum sjúkdómum. Fæstir sem eiga við bakvandamál að stríða eru með brjósklos eða klemmda taug og langflestir ráða við bakverki sína sjálfir. Sem betur fer lagast bakverkir oftast af sjálfu sér innan nokkurra vikna eða mánaða án þess að fólk þurfi að leita sér aðstoðar. Margir þurfa þó að fá aðstoð lækna, sjúkraþjálf- ara, hnykkjara og nuddara til að fá bót meina sinna. Það er mjög margt sem fólk getur sjálft gert tii að fyrirbyggja bakverki. Því fyrr sem fólk með mjóbaksverki byrjar að hreyfa sig því fyrr lagast þeir. Það getur til dæmis verið gott að ganga, synda, dansa og fara í líkamsræktina. Feit börn skrópa frekar í síðustu viku kynntu banda- rískir vísindamenn nýja rann- sókn sem sýnir fram á að börn sem glíma við offitu mæti verr í skólann en þau sem eru í eðli- legri þyngd. Yfir 180 skóladaga tímabil kom í ljós að krakkar í eðlilegri þyngd misstu að jafn- aði 10,1 dag úr skóla, of þungir krakkar misstu 10,9 daga en börn sem glímdu við offitu voru mest fjarverandi eða í 12,2 daga. Það vakti hins vegar at- hygli rannsakenda að þau börn sem voru undir meðalþyngd misstu minnst eða 7,5 daga að meðaltali. Rannsakendur halda þvi fram að fjarvistir þeirra barna sem glíma við offitu sé ekki endilega hægt að rekja til heilsukvilla því það er ekki fyrr en síðar á ævinni sem fylgifiskar offitunnar fara að gera vart við sig. „Þau skrópa í skólanum af því að þau vilja ekki lenda í einelti eða láta uppnefna sig,“ sagði Andrew B. Geier, forsvarsmaður rannsóknarinnar. Heilsa Matur Böm&Uppeldi Heimili&Hönnun Húsbyggjandinn Viðskipti&Fjármál Vinnuvélar Bílar Konan Árstíðabundin sérblöð í verslunum Hagkaupa, Melabúð- inni, Fjarðarkaupum og svo heilsu- verslunum á borð við Yggdrasil og Heilsuhúsið. Hafðu samband og fáðu gott pláss fyrir auglýsinguna þína í viðeigandi sérblaði Auglýsingasímar: Katrín 510-3727 Kolbrún 510-3722 Stöð 2, Sýn, Sýn 2, Rúv og Skjárþinn í bestu mögulegu myndgæðum ] Sjónvarp Simans Það er Síminrv'

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.