blaðið


blaðið - 14.08.2007, Qupperneq 6

blaðið - 14.08.2007, Qupperneq 6
22 HEILSA ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 blaóiö LAUGARDAGAR ORÐLAUSLÍ Auglýsingasíminn er 510 3744 blaöi&= Myndlykill sem kostar ekki krónu Sjónvarp Símans Þaö er Síminn'* ^börn 6-A0ára. ans - styrtóngay inaWtíemumtun ■ ^EVF/ ^ LAt40* Skráningadagur veröur þann 15. ágúst frá 9-14 Ný haust námskeið hefst 20.ágúst fuil af nýum timum m|. .................. fvrir fjöskilduna þina _ Mæörafimi® • Bumbufimi® Meðgöngujóga • Snillingafimi® • Hreyfifimi® • Gþ-fimi® Sport erobik • Salsa Leikfimi • Rope Yoga • Capoeira Foreldrafræöslu • Einkaþjálfun • ABC Music & Me® WWW.HREYFILAND.IS | 577 2555 | Stangarhyl 7 | 110 Reykjavik Fæðugagnagrunnur á heimasíðu Matís Sýnir næringarefni í matvælum Gagnagrunnurinn ísgem geymir upplýsingar um efnainnihald í um 900 fæðutegundum og hann er nú aðgengilegur á heimasíðu Matís Eftir Sigrúnu Mariu Einarsdóttur sigrun@bladid.net Ólafur Reykdal verkefnastjóri hjá Matís segir að þessi gagnagrunnur geymi upplýsingar um næringarefni í matvælum sem eru á íslenskum markaði. „Það er alveg nýtt á ís- landi að hægt sé að finna svona ýt- arlegar upplýsingar á Netinu. Með því að hafa upplýsingarnar á Netinu er hægt að uppfæra gagnagrunn- inn mun hraðar en ella. Fólk getur slegið inn nafn á fæðutegund og þá fundið það sem til er. Fyrir fólk sem finnst þetta vera flókið eða vill bera saman fæðutegundir er búið að taka saman sérstaka töflu og þar fær hver fæðutegund eina línu sém gerir samanburð auðveldari.“ Efla gagnagrunninn Gagnagrunnurinn hefur verið í smíðum frá árinu 1987 en er nýlega Innihald í matvælum (i 100g) Kcal Gosdrykkur með sykri 43 Gosdrykkur með sætuefnum 0 Epli 48 Eplasafi, hreinn 52 Pitsa með hakki og pepperóní 240 kominn á Netið. Ólafur segir að stefnan sé að fjölga fæðutegundum í gagngrunninum. „Ætlunin er að efla þessa starfsemi og veita al- menningi, atvinnulífi og sérfræð- ingum enn betri aðgang að þessum gögnum. Við erum að vinna í því að bæta gögnin, setja inn ný gögn og afla nýrra gagna.“ Ólafur segir að það hafi komið sér á óvart hve áhugi fólks á gagnagrunn- inum hafi verið mikill og það séu ýmsir aðilar sem styðjast við þessi gögn. „Þetta skiptir máli fyrir svo marga. Almenningur vill afla sér upplýsinga um fæðuna sem er neytt. Einnig eru margir sem þurfa að forðast ákveðnar fæðutegundir eða neyta þeirra í takmörkuðu magni. Til dæmis út af háþrýstingi eða syk- ursýki þarf fólk að velja sérstakar fæðutegundir. Margar konur glíma við járnskort og járnrík fæða er til Fita Prótein Kolvetni Sykur Salt 0 0 11 11 0 0 0 0 0 0 0,3 0,3 11 8 0 0,1 0,1 13 13 0 9 13 28 0 1 dæmis blóðmör, lifur og dökkt kjöt. Járn er einnig hægt að fá úr jurta- afurðum eins og baunum, hnetum og ýmsu grænmeti og ávöxtum. í atvinnulífinu er alltaf verið að þróa nýjar vörur og þá þarf fólk að vita um samsetningu á hráefnum og fæðutegundum. Því markmiðið er að þróa betri vörur sem eru heilsu- samlegri.“ Nú er mikil vakning í þjóðfélaginu um heilsusamlegri mat og fólk vill vita hvað er í fæð- unni sem er neytt og Ólafur tekur undir það og segir að fleiri leiti nú eftir þessum upplýsingum en áður. Hér að neðan má sjá efnainnihald í völdum fæðutegundum. 1 töflunni er birt meðalsamsetning. Munur getur verið á samsetningu eftir framleiðendum og geta neytendur oft valið milli vara með mismiklu af fitu, sykri eða salti. Heym ehf. Hægt aö upplifa heyrnarskerðlngu í hermi KYNNING Heyrn ehf. er ný heyrnarþjónusta í Hlíðarsmára u í Kópavogi. Þar er veitt sérhæfð þjónusta til að bæta úr heyrnarskerðingu. Eigandi Heyrnar er Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrn- arfræðingur sem starfar einnig hjá fyrirtækinu. Heyrn býður upp á nákvæmar heyrnarmælingar með hátæknimælitækjum, en þær ásamt hljóðumhverfi þess heyrnarskerta eru grundvöllur að vali og still- ingum heyrnartækja. Virkni heyrn- artækja er sniðin til með nýjustu tölvutækni og látin falla að heyrn- arriti og hljóðumhverfi þess sem notar tækin. Skilningur á heyrnarskerðingu Til þess að njóta til fullnustu þess sem heyrnartæki hafa upp á bjóða er mikilvægt að notendur þeirra átti sig á því hvers eðlis heyrnarskerð- ing þeirra er. Þá er einnig mikilvægt að aðstandendur heyrnarskertra geri sér grein fyrir hvernig það er að vera heyrnarskertur. Til þess að hjálpa aðstandendum að setja sig í spor heyrnarskertra notast Heyrn við hermi þar sem heyrnarskerðing viðkomandi er spiluð fyrir aðstand- endur. „Það er óneitanlega betur til þess fallið að auka skilning manna á heyrnarskerðingu að upplifa hana með þessum hætti heldur en að sjá línurit á tölvuskjá með oft tor- skildum táknum fyrir leikmenn," segir Ellisif. Minni tæki og minni fyrirhöfn Nútímaheyrnartæki eru smekk- leg og lítið áberandi. Heyrn selur heyrnartæki frá ReSound sem er einn stærsti framleiðandi heyrnar- tækja í heiminum. „Nýjustu tæki ReSound velja ekki hljóð fyrir not- andann eins og eldri gervigreindar- heyrnartæki gerðu með þeim af- leiðingum að notandinn missti oft af hljóðum sem hann hefði viljað heyra. Fullkomnustu heyrnartækin efla hins vegar heyrn á eðlilegan hátt þannig að notandinn er með- vitaður um sitt hljóðumhverfi," út- skýrir Ellisif. Vanda vel valið Það þarf enga tilvísun til að fá heyrnargreiningu og ráðgjöf heyrnar- fræðings en þurfi viðkomandi lækn- isaðstoð er honum vísað til háls-, nef- Ellisif Björnsdóttir Býður upp á ná- kvæmar heyrnarmælingar hjá Heyrn ehf. og eyrnalæknis. „Ég legg áherslu á fagmennsku, persónulega ráðgjöf og góðan tíma til að leiðbeina við notkun heyrnartækja,“ segir Ellisif. Þeir sem vilja kynna sér nánar starfsemi Heyrnar geta kíkt á heima- síðu fyrirtækisins, www.heyrn.is, eða haft samband í sima 534-9600.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.