blaðið - 05.09.2007, Side 1
167. tölublað 3. árgangur
Miðvikudagur
5. september 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKr''°IS!
íbúðin lekur
(var Guðmundsson útvarps-
maður keypti sér nýja íbúð
fyrir nokkrum árum en situr
nú uppi meðgalla-
gripsem enginn
vill gangast
við eða taka
Allt í drasli
Eva Ásrún Albertsdóttir
hefur tekið við starf i
Heiðars Jónssonar snyrtis
í þáttunum Allt í drasli
og verður í tiltektum í
vetur ásamt Margréti
Sigfúsdóttur.
FÓLK 38
KOLLA29
Milljón fyrir glæp
Guðrún Vilmundardóttir hjá
Bjarti stendur fyrir leit að
réttu sakamálasögunni
en hún á að vera í anda
Dan Brown og verður
ein milljón króna í verð-
laun fyrir þá réttu.
Betri heilsa fyrir um
120 KR.
Á DAG
Fitness ort
Tilboásverð 17900 Gildirút 31.12.07
I C E L A N I)
S P A & F i T N E S S
Bekkir sameinaðir
vegna manneklu
■ Ekkert í lögum bannar sameiningu ■ Foreldrar, kennarar og skólastjórar áhyggjufullir
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Áheyrnarfulltrúar foreldra, kennara og skóla-
stjóra í menntaráði Reykjavíkurborgar lýstu yfir
áhyggjum sínum á fundi ráðsins í vikunni vegna
manneklunnar í grunnskólum. Sameina hefur
þurft bekki vegna kennaraskorts í grunnskólum
Reykjavíkur, að því er Þorgerður Diðriksdóttir,
formaður Kennarafélags Reykjavíkur, greinir frá.
„Þetta er ekki gert á faglegum forsendum,
heldur til að bregðast við kennaraskorti," segir
Þorgerður sem kveðst hafa fengið þessar upplýs-
ingar hjá trúnaðarmönnum. Hún vill ekki greina
frá því hvar hefur þurft að grípa til þessara ráð-
stafana en kveðst gleðjast yfir því að foreldrar
KENNARASKORTUR
► Nákvæmar upplýsingar um fjölda
leiðbeinenda í grunnskólum liggja ekki
fyrir fyrr en eftir næstu mánaðamót.
► Skólastjórar í grunnskólum Reykjavík-
ur óskuðu eftir að auglýst yrði eftir
sjö kennurum um síðustu helgi, sam-
kvæmt upplýsingum frá grunnskóla-
skrifstofu borgarinnar.
skuli bregðast við ástandinu í skólunum.
SAMFOK, Samband foreldrafélaga og foreldra-
ráða í grunnskólum Reykjavíkur, hefur sent full-
trúum í foreldraráðum grunnskólanna bréf þar
sem spurt er meðal annars hvort fjölgað hafi
verið í námshópum vegna skorts á kennurum
og hvort sérkennari, deildarstjóri eða náms-
ráðgjafi hafi verið settur í almenna kennslu og
hvort starfsmannamálin hafi verið rædd á fundi
foreldraráðs.
Bergþóra Valsdóttir, framkvæmdastjóri SAM-
FOKS, hefur enn ekki fengið mörg svör en af þeim
sem hún hefur fengið má ráða að ástandið í grunn-
skólunum sé mjög mismunandi. „Ég held að í
sumum skólum séu starfsmenn að gefast upp.“
Auður Stefánsdóttir, skrifstofustjóri grunn-
skólaskrifstofu Reykjavíkur, segir að í lögum um
grunnskóla sé ekkert ákvæði um hámarksfjölda
í hverjum bekk.
Mjólka fimmfaldar
framleiðslugetuna
Mjólka hefur ákveðið að auka fram-
leiðslugetu sína allt að fimmfalt á
næstu árum. Tvö sveitarfélög koma
til greina fyrir nýja úrvinnslustöð
fyrirtækisins. Framkvæmda-
stjórinn segir nýjar vöruteg-1 yj
undir væntanlegar. •
Einfalda þarf
flókið kerf i
Einfalda þarf almannatrygginga-
kerfið. Það er gríðarlega flókið,
segir Sigurður Grétarsson, trygg-
ingafulltrúi hjá lífeyristrygginga-
sviði Tryggingastofnunar. Starfs-
mennirnir þurfi kennslutil
að botna í kerfinu. • JL
Lömbin þagna á Selfossi
„Unrium 600 skrokka í dag"
Sláturtíðin er hafin og koma lömbin vel undan sumri eins og sjá má á þessum vænu skrokkum. Kjartan Gunnar
Jónsson, starfsmaður sláturhúss Sláturfélags Suðurlands á Selfossi, sagði í samtali við Blaðið í gær að þann daginn
hefðu 600 skrokkar verið unnir í sláturhúsinu. „Það er allt að fara á fullt hjá okkur núna, en eftir miðja næstu viku
reiknum við með því að framleiðslan nái hámarki."
Netlögga á
hálftíma fresti
Netlögga heilsar nú kín-
verskum netnotendum á hálf-
tíma fresti til að minna þá á
að skoða ekki heimasíður sem
hafa ekki verið samþykktar af
yfirvöldum. Teiknuðu lögreglu-
mennirnir Jing og Cha birtast
í sérstökum sprettigluggum
með skilaboð um að bannað
sé að skoða grunsamlegar
heimasíður sem hvetja til
leikja, svindls, pólitísks óstöð-
ugleika og sjálfstæðis Tíbets
og Taívans.
í glugganum er einnig slóð á
heimasíðu þar sem hægt er að
tilkynna um „óheilbrigðar“
heimasíður. aí
ÆSS'
NEYTENDAVAKTIN m i
Kellogg’s kornflögur 750 g. Ti*
Verslun Krónur
Krónan 299
Nettó 329
Spar Bæjarlind 375
Nóatún 377
Hagkaup 388
Kjarval 425
Upplýsingarfrá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
IUt USD 64,68 0,51 ▲
!g|g GBP 130,06 0,14 ▲
DKK 11,82 0,42 ▲
• JPY 0,55 0,13 ▲
H EUR 88,05 0,42 A
GENGISVÍSITALA 119,39 0,42 ▲
I ÚRVALSVÍSITALA 8.283,00 0,08 A
| VEÐRIÐÍDAG
1
TILBOÐSLINA BILALANDS B&L
L
Komdu og kíktu á tilboöslínu Bílalands B&L, gott úrval á staönum
Bílaland B&L - Grjóthálsi 1 - 575 1230 - bilaland@bilaland.is - www.bilaland.is