blaðið - 05.09.2007, Síða 19
SKEYTIN INN
Allt of mikil
pressa er
á ungstirn-
inu Leo Messi
að mati annars
leikmanns sem
vart er orðinn
þurr á bak við eyru heldur. Ekki
er oft tekið sérstakt mark á Vic-
tor Valdez markverði enda hefur
hann lítið til málanna að leggja
oftast nær en nú hittir hann
nagla á haus. Messi hefur nefni-
lega ekki alveg verið með sjálfum
sér undanfarið en til þess arna
er Barcelona með 20 sálfræðinga
og 40 nuddara og guð má vita
hvað meira. Þeir ná greinilega
ekki að peppa strákinn f gang.
Dennis
Bergkamp
sem nýtur
nú daglega lífsins
með mokka og
pönnsur í Amst-
erdam eftir að
ferlinum lauk varð þess heiðurs
aðnjótandi að vera valinn í
heiðursklúbb ensku knattspyrn-
unnar en BBC stóð fyrir því
meðal stuðningsmanna boltans.
Eldri kappar á borð við Ray Cle-
mence, Ray Wilkins lutu f gras
fyrir Hollendingnum auk Paul
Scholes sem talinn var líklegur.
Sjúkraþjálfar-
ar Barcel-
ona senda
Samuel Eto'o
tóninn í þar-
lendum miðlum.
Eto'omeiddist
um daginn og verður aft ur frá
fram að jólum eins og í fyrra.
Vilja þeir kenna því um að Eto '0
kom sér í form á ný með sínum
eigin þjálfurum á Mallorca og
vildi enga hjálp frá sérþjálfuð-
um Börsunga. Kannski það sé
ástæðan fyrir nýju meiðslunum.
AfonsoAlves
var valinn
leikmaður
ársins í Hollandi
í vikunni en
Brasilíumaðurinn
hamraði bolta
í netmöskvana 34 sinnum í 31
leik með Heerenveen á síðasta
tímabili. Þangað kom hann frá
Malmö á sínum tíma og var
iðinn við kolann þar líka. Gamla
brýnið Philip Cocu og annar
Brassi, Alex, komu næstir í valinu.
Talsverð tíð-
indi berast
úrherbúð-
um Chelsea en
Michael Ballack
var ekki valinn í
Meistaradeildar-
hóp þeirra blákæddu. Ástæðan
er sögð meiðsli en Ballack er að
ná sér og hefði að öllu óbreyttu
getað verið klár í slaginn í
þrjá leiki í riðlakeppninni hið
minnsta. Sérstaklega blóðugt er
að Chelsea tilnefndi aðeins 23
leikmenn en mátti tilnefna 25.
LAUGARDAGAR
510 3744
[ÐLAUSLIFIÐ
Undirbúningur fyrir landsleiki íslands
Áfall á áfall ofan hjá Eyjólfi
Því nær sem dregur landsleik íslands og Spánar því
meira veikist íslenska liðið, því að þeir Brynjar Björn
Gunnarsson og Helgi Sigurðsson hafa dregið sig úr
hópnum vegna meiðsla. Þá er enn stórt spurningar-
merki með Eið Smára Guðjohnsen en að líkindum getur
hann tekið einhvern þátt.
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari valdi 22 leik-
menn í hópinn fyrir leikina gegn Spáni um helgina og
gegn N-írlandi á miðvikudaginn í næstu viku. Hyggst
hann ekki bæta við mannskap í stað þeirra Brynjars og
Helga en vandséð er hver á að fylla f skarð Brynjars.
Þá er annar íslendingur, Heiðar Helguson sem
reyndar var ekki valinn í landsliðið nú, einnig meiddur
og verður frá í sjö til átta vikur hið minnsta. Er þetta
eðlilega leiðinlegt fyrir Heiðar enda hjá nýjum klúbbi og
hann hefur lengi glímt við smávægileg meiðsl.
Spænska landsliðið Hingað kemur
liðið með alia sína bestu leikmenn
og þeir eru staðráðnir í að vanmeta
ekki nokkurn skapaðan hlut á Laug-
ardalsvellinum um helgina.
Byggja trúarhof
Kínverskir skipuleggjendur
Ólympíuleikanna ætla að
bæta nýju mannvirki við þau
fjölmörgu sem reisa skal og
hafa risið vegna leikanna á
næsta ári. Er þar um trúarhof
að ræða sem þykir stórmerki-
legt í landi þar sem mikið
ríkiseftirlit er haft með öllum
trúarlegum samkomum. Um-
rætt hof mun sameina undir
einu þaki griðastað fyrir flesta
þá sem leita vilja styrks eða
huggunar í trú sinni meðan á
leikunum stendur.
Skráðu þig á spennandi námskeið sem byggir á því sem kemur
fram í myndinni og bókinni „The Secret" - Leyndarmálinu:
Bob Proctor's
The Goal Achiever
Purpose -> Vision -> Goals -> Success
Fyrirlesari: Oddmund Berger, framkvæmdastjóri LifeSuccess Nordic
etta skemmtilega og líflega námskeið sem nú er haldið í annað sinn á íslandi, færir þér
hagnýt ráð og hnitmiðaðar hugmyndir til að öðlast það sem þú sækist eftir á öllum
sviðum lífsins, hvort heldur sem það er í starfi eða einkalífi. Það byggir á því sem fjallað
er um í myndinni „The Secret" Levndarmálinu og kennir þér hvernig þú getur virkjað Aðdráttar-
lögmálið (The Law of Attraction) til að láta draumana rætast - miklu fyrr en þig grunar!
Hvar: Háskólabíói, salur 2.
Hvenær: Laugardagur 8. september 2007.
Tími: Kl. 09:30 -17:00
Á þessu námskeiði lærir þú að brúa bilið á milli þess að setja þér markmið og koma þeim síðan í framkvæmd. Þú
lærir hvernig allt sem þú gerir og hugsar hefur áhrif á líf þitt og örlög. Þú lærir að skapa þér spennandi framtíðarsýn,
setja þér áhugaverð markmið og forgangsraða síðan daglegum verkefnum.
Meðal þess sem þú lærir er:
Að ákveða á kerfisbundinn hátt hvað það er sem þú
raunverulega vilt og þráir og síðan sett þér viðeigandi markmið
sem hjálpa þér að láta draumana rætast.
- Að koma auga á hindranir og hemla í eigin lífi og umhverfi og
eytt áhrifum þeirra þannig að þú verðir óstöðvandi.
- Að forgangsraða markmiðum, hvort sem þau eru 5 eða 5000!
- Að koma auga mikilvægasta markmiðið - markmið #1
- Að skapa þér spennandi og sigursæla framtíðarsýn.
Fyrirlesarinn Oddmund Berger er framkvæmdastjóri LifeSuccess Nordic. Hann var hér síðast á ferð í lok maí og var
þá með fjölsótt Goal Achiever námskeið sem hátt í þrjúhundruð þátttakendur sóttu. Námskeiðið er eftir Bob Proctor
úr mvndinni ..The Secret" en hann hefur á 45 ára ferli sínum sem fyrirlesari verið með námskeið sem hundruðir
þúsunda þátttakenda um allan heim, hafa sótt.
Námskeiðsgjald: Kr. 15.995 TILBOÐ: Kr. 12.995 (Gildir til 6. september) Takmarkaður fjöldi, bókaðu í dag!
Hópafslættir: 3+1 FRÍTT (25% afsláttur) og 7+3 FRÍTT (30% afsláttur).
Innifalið: Námskeiðsgögn og penni (allt nema veitingar).
Fjölmörg stéttarfélög og starfsmermtasjóöir endurgreiða félagsaöilum sínum námskeiÖsgjaldið að hluta eÖa í
heild. AthugaÖu máliö hjá þínu félagi.
Skráning og nánari upplýsingar: www.stjornandinn.is
Skráning með tölvupósti: stjornandinn@stjornandinn.is
Símaskráning: 846-0149
Stjornunarfélag Islands