blaðið - 21.09.2007, Qupperneq 3
blaöió
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007
FERÐALÖG
19
í salsa
á Kúbu
María Sigrún Hilmarsdóttir
sjónvarpsmaður
„Staðurinn sem mig dreymir
um að heimsækja er Kúba.
Þangað hef ég aldrei komið en
lengi langað. Mér er sagt að
Kúba geti breytt þröngsýnum efa-
semdamönnum í áhættusækna
salsadansara, svo þetta hlýtur að
vera skemmtilegur staður. Það
sem heillar mig mest við Kúbu
er gamli tíminn enda er gaman
að sjá á myndum hvað fólkið
þar er glatt og í litríkum fötum.
Þjóðfélagið á Kúbu hefur að
mestu staðið í stað síðan Castro
tók við völdum um miðbik síð-
ustu aldar. Fréttir af veikindum
Castro gefa í skyn að það styttist
í að hann kveðji þennan heim og
þá mun sennilega margt breyt-
ast þarna á skömmum tíma. Svo
það er um að gera að drífa sig.
Ég leyfi mér stundum að
láta mig dreyma um ferðalag
til Kúbu, ef ske kynni að ég
myndi einhvern daginn rífa mig
upp í skammdeginu á Islandi
sem nú fer að ganga í garð og
verja tveimur góðum vikum í
skemmtilegum félagsskap á þess-
ari fallegu eyju í Karíbahafinu.
Ég held nefnilega að á Kúbu sé
hægt að upplifa slatta af menn-
ingu í bland við kæruleysislegt
sólstrandarlíf sem mig er farið
að þyrsta í. Ég gæti vel hugsað
mér að leigja fallegt dömuhjól
með körfu og ferðast um eyjuna
á því. Ég myndi vera nokkra
daga í höfuðborginni Havana og
svo nokkra daga í vellystingum
við sjávarsíðuna í Varadero. Þar
ku vera einstaklega fallegt. Svo
myndi ég innsigla hvern dag
með ísköldum mojito og góðri
salsasveiflu á skemmtilegum
stað. Kæmi svo heim á Klakann
sólbrún og sæl með góðar minn-
ingar í farteskinu sem ég myndi
oft rifja upp og brosa með sjálfri
mér.“
DRAUMASTAÐURINN?
Náttúrufegurö
á Mývatni
Hilrnir Snær Guðnason leikari
„Draumastaðurinn er Mývatn.
Þar á fjölskylda konu minnar bú-
stað og þar er yndislegt að vera,
að veiða fisk og dóla sér. Það sem
heillar mig mest er þessi kyrrð
og náttúrufegurð sem má finna
á Mývatni,“ segir Hilmir Snær
sem fer til Mývatns að minnsta
kosti einu sinni á sumri.
Frí sem breytir lífinu
Tollarar finna ýmislegt á ferðalöngum
Eðla í brjóstahaldara
Það er margt sem leynist inn-
anklæða á ferðamönnum en sem
betur fer eru fæstir þeirra með eitt
stykki græneðlu á iði í brjósta-
haldaranum. Það átti þó við um
rússneska konu sem var stöðvuð
af öryggisvörðum á flugvellinum
í Blackpool. Lögreglumaður á flug-
vellinum fann eðluna þegar hann
sá eitthvað hreyfast undir kjól kon-
unnar. Konan var því stöðvuð og
eftir að öryggisvörður fann eðluna
viðurkenndi konan að eðlan væri
í hennar eigu. Konan á ekki yfir
höfði sér kæru en hún samþykkti
fúslega að eðlan yrði flutt í dýra-
garðinn í Blackpool.
Græneðla Eölan sem leyndist í brjósta-
haldara rússneskrar konu lifir sennilega
ágætis lífi í dýragarðinum.
Það er ekki lengur nægilegt
að fara í frí til framandi landa
heldur þarf fríið að fela í sér
einhvers konar umbreytingu sam-
kvæmt vefmiðli CNN. Sífellt fleiri
kjósa að fara í frí sem auk þess
er kennsla í jóga, hugleiðslu eða
slökun. Sölumenn slíkra fría lofa
ekki einungis slökun og vellíðan
heldur allsherjar umbreytingu.
Ferðamenn virðast vilja meira
en einungis frábæran stað til að
dvelja á og skemmtun og því hafa
ferðir þar sem jóga er stundað
aukist verulega undanfarin ár.
Markaðsfyrirtækið Ypartnership
kannaði viðhorf vel stæðra ferða-
langa og í ljós kom að 30 prósent
viðmælenda töluðu um að jóga
væri uppáhaldsdekurmeðferðin.
Um 60 prósent völdu nudd sem
uppáhaldsdekurmeðferð.
EINN SMELLUR ER
ALLTSEM ÞARF
Kynningaráskrift/
Áskrifendaþjónusta
FÁÐU ÞÉR KYNNINGARÁSKRiFT AÐ MORGUNBLAÐINU
Nú gefst þér kjöriö tækifæri til að kynnast þeim þægindum sem fylgja áskrift aö
Morgunbtaðinu. Þú getur skráö þig með einum smelli á mbl.is og fengið ókeypis
áskrift f einn mánuð.
Áskrifendur Morgunblaðsins hafa aðgang að margvíslegri þjónustu og fríðindum.
Kíktu á mbl.is og kynntu þér hvað er í boði:
BLAÐ DAGSINS
Askrifendur hafa ókeypis aðgang að blaói dagsins á PDF
SMÁAUGLÝSINGAVEFUR
10 ókeypis smáaugtýsingar á vefnum á 30 daga fresti
GAGNASAFN
5 ókeypis greinar á 30 daga fresti
MYNDASAFN
3 myndir með 50% afslætti á 30 daga fresti
Fáóu þér áskrift og njóttu ávinningsins!
fltagmtiifiitofr
- meira fyrir áskrifendur