Orðlaus

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Orðlaus - 01.02.2006, Qupperneq 26

Orðlaus - 01.02.2006, Qupperneq 26
Sértrúarsöfnuðir eru af ýmsum toga og líklega ekkert nema gott um þá flesta að segja. Hins vegar berast reglulega fréttir af mjög undarlegu hátterni eins og fjöldasjálfsmorðum eða hóp- ferðum sem eru farnar í þeim tilgangi að ná geimskipi sem á að flytja ferðalanga til annarrar plánetu. En um hvað snýst þetta og hvað veldur því að fjöldi fólks lætur glepjast af einhverju sem flestir telja vera hina mestu þvælu? Sértrúarsöfnuðir eða svokallaðir cult-hópar byggjast oft á tótalisma sem kannski mætti kalia einræðis- hyggju eða að minnsta kosti líkja við þess háttar hugmyndafræði þar sem hópur fólks fylgir ákveðn- um leiðtoga í einu og öllu. Meðlimir cult-hópa taka orðum leiðtogans líkt og um orð Guðs sé að ræða og efast ekki um eða gagnrýna þá stefnu sem hann boð- ar, enda er ekki óalgengt að fólk sé „heilaþvegið" við inngöngu, en ákveðnar aðferðir eru notaðar til þess að hafa áhrif á þankagang einstaklinga í öfgakenndum trúar- hópum. Leiðtoginn í svona öfgahópum hefur oftar en ekki algert vald yf- ir félagslegu umhverfi fylgjenda sinna og eru þá gerðar þær kröfur að viðkomandi slíti öll sín tengsl við fjölskyldu og vini þannig að söfnuðurinn verður þeirra eina fjölskylda. Eins er þess krafist að einstaklingar lifi samkvæmt ákveðnum reglum og iðki trú sína af fullum krafti. Söfnuðurinn hef- ur þannig algjöra stjórn yfir sam- skiptum hvers og eins en litið er á sjálfræði sem ógn við heildina og er það talið grafa undan styrk hópsins. Þessari stjórn yfir meðlim- um safnaðarins er viðhaldið meðal annars með landfræðilegri ein- angrun þar sem einstaklingar kom- ast ekki ferða sinna án þess að fá leyfi frá yfirboðurum safnaðarins og í sumum hópum er jafnvel um líkamlegar hömlur að ræða. og er þeim kennt að líta heiminn nýju Ijósi þar sem skýr mörk liggja á milli hins góða og slæma og þess rétta og ranga. Þeir sem efast um boðskap leiðtogans hafa fyrirgert tilverurétti sínum innan hópsins og er fólk jafnvel tekið af lífi fyrir að efast um kennisetninguna. Hvers konar fólk gengur í sértrú- arsöfnuði? I kjölfar fjöldasjálfsmorðs Hea- ven's Gate hópsins í Bandaríkjun- um árið 1997 vöknuðu upp ákveðn- ar spurningar varðandi þetta og telja flestir að þeir sem ganga í svona hópa séu veikir á geði. Það sem kemur hins vegar mjög á óvart er að yfirleitt er þetta heilbrigt fólk en rannsóknir hafa sýnt fram á að í flestum tilvikum eru 2/3 hlutar safnaðarmeðlima andlega heilbrigðir að minnsta kosti áður en þeir ganga til liðs við þessa söfnuði. Um 1/3 hluti eru lík- legir til þess að hafa þurft að kljást við sjúkdóma á borð við þunglyndi og kvíða eða hafa orðið fyrir per- sónulegum missi og eru að leita sér að haldreipi í lífinu. Aðeins um 5-6% eiga við alvarlegar geðrask- anir að stríða áður en þeir ganga í sértrúarsöfnuð en svona trúarregl- ur sækjast yfirleitt ekki eftir fólki sem glímir við geðraskanir eða aðrar fatlanir heldur leggja meiri áherslu á að freista þeirra einstak- linga sem geta látið af hendi rakna ýmist peninga eða aðrar eignir eða eru i aðstöðu til þess að leggja og breytingar verða á mataræði og svefnmynstri. Söfnuðir setja ákveðin skilyrði og höft á lífshætti meðlima sinna og er þetta gert í innan hans. Bera fer á nýrri hug- myndafræði sem heltekur hugs- anir viðkomandi og er notuð til útskýringar á öllu og engu jafnvel þó að útskýringar af þvi tagi eigi -f Bandaríl um 4 millj unum eru yfir 3,000 sértrúarsöfnuðir með samtals nir meðlima. Þessir hópar falla í 4 grunnflokka: 1. Trúarlegir söfnuðir eru þeir sem við heyrum oftast um. 2. Hópar sem bjóða fólki upp á kostnaðarsöm fræðslu- og þroskanámskeið þar sem helsti tilgangurinn er sjálfsbirting í einhverju formi. 3. Grúppur sem myndast í kringum fjármálastarfsemi eins og til dæmis vörupýramídar, 4. Flokkar sem tengjast stjórnmálum á einn eða annan hátt líkt og Nasistaflokkurinn eða aðrir pólitískir öfgahópar. 26 Sumir þessara hópa eru öfgahóp- ar eða svokallaðir killer-cults sem eru leiddir áfram af leiðtoga sem hefur heimsendaspár í hávegum og krefst þess að hafa algert lík- amlegt og kynferðislegt vald yfir fylgjendum sínum. Krafa er gerð um hreinlífi safnaðarmeðlima mikla rækt við málstaðinn. Hvað einkennir fólk sem hefur gengið í sértrúarsöfnuð? Ýmsar breytingar eiga sér stað eftir að fólk gengur í svona cult- hópa. Dramatískar breytingar verða gjarnan á trú og gildum þeim tilgangi að brengla eðlileg hugsanaferli þannig að það verð- ur mjög erfitt fyrir einstaklinga að vinna á gagnrýninn hátt úr þeim upplýsingum sem berast þeim. Fólk hættir að geta tekið ákvarð- anir án þess að ráðfæra sig við leiðtoga hópsins eða aðra gúrúa engan veginn við. Hvaðgerirsértrúarsöfnuðihættu- lega? Það fer eftir því um hvers konar hóp er að ræða, þar sem þessir hópar eru af mörgum stærðum og gerðum, hafa mismunandi markmið og aðferðir. Sumir hópar leggja áherslu á að afla peninga og öðlast völd yfir einstakling- um innan hans. Hættan við þessa hópa liggur í því að oftar en ekki er lygum og svikum beitt og er gerðkrafaumtakmarkalausafylgi- spekt. Eins er töluverð hætta fólg- in í því þegar meðlimir hópsins eru neyddir til að gefa söfnuðinum all- ar sínar eignir og sparifé. í öfgahópum er þess krafist af fólki að það loki á samskipti við ættingja og vini sem tilheyra ekki flokknumenþettaveldurþvíaðvið- komandi þarf að treysta enn meira á söfnuðinn sem hann tilheyrir og aðrir meðlimir koma í staðinn fyrir fjölskyldu og vini. Þar af leiðandi verður erfiðara að snúa bakinu við félagsskapnum vegna þess að það er ekki að neinu að snúa. Safnaðarmeðlimir þurfa að fylgja leiðtoganum án þess að efast um eitt né neitt, fylgja þarf ákveðn- um reglum og skilyrðum sem út- rýma sjálfstæði, gagnrýnni hugs- un og hinum frjálsa vilja. I verstu tilvikunum er hópurinn líkamlega og andlega einangraður frá samfé- laginu. Brjálæði leiðtogans verður norm sem er meðtekið af meðlim- um safnaðarins þannig að enginn gagnrýnir eða efast um aðferð- ir hans og eftir því sem fjölgar í söfnuðinum myndast sterk heild í kringum hugmyndir eins manns sem aðrir eru jafnvel tilbúnir til að verja fram í rauðan dauðann.

x

Orðlaus

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.