Orðlaus - 01.02.2006, Side 46
Steingeitin passar best við fólk í: Hrútsmerkinu og Meyjunni.
Frægt fólk í bogamanninum: Mel Gibson, Brad
Pitt, Tiger Woods, David Bowie.
Happatölur:19, 30, 40
Steingeitur eru jarðbundnar og skipulagðar manneskjur. Þær eru raunsæjar og
standa fast á sínu. Fólk í þessu merki er jafnframt varkárt og lítið gefið fyrir
miklar og róttækar breytingar. Eins á steingeitin það til að vera feimin og hlé-
dræg og missir sjaldan stjórn á skapi sínu. Til þess að viðhalda orku sinni þarf
steingeitin að búa við öryggi og skipulag og hún gerir sitt besta til þess að
viðhalda góðu sambandi við fólkið í kringum sig.
Ljón
24. júlí - 23. ágúst
Meyja
24. ágúst - 23. september
ílvog
24. september - 23. október
Sporðdreki
24. október - 22. nóvember
Þú fagnar nýja árinu með gleði í hjarta
vegna þess að þú sérð fram á lok tímabils
sem hefur verið langt og strangt. Árið sem
er nýgengið í garð byrjar hægt og rólega
hjá þér þannig að njóttu þess að slappa af
með fjölskyldu og vinum. Að vísu biða þin
óunnin verk á heimilinu en ekki láta þessi
verkefni vaxa þér í augum heldur byrjaðu
bara hægt og rólega. Skipulegðu fram í
tímann og hafðu jafnvægi á milli vinnu og
skemmtunar. Ekki hafa of miklar áhyggjur
af fjárhagnum vegna þess að þú getur verið
viss um að staða þín fari að vænkast. Njóttu
þess að hafa gaman og hver veit nema
skemmtilegt ferðalag sé á næsta leiti.
Það hafa orðið kaflaskil í lífi meyjunnar.
Breyttar aðstæður kalla á meira skipulag
og aukið sjálfsálit. Ekki efast um sjálfa/n þig
vegna þess að þú ræður vel við þau verkefni
sem bíða þín. Gættu þess að taka ekki að
þér of mörg verkefni og farðu nú að sleppa
fram af þér beislinu af og til. Þú hefur haft
miklar áhyggjur af nánum ættingja en góð-
ar fréttir eru handan við hornið. Spennandi
verkefni bíða þín og þú átt eftir að kynnast
skemmtilegu fólki. Þín bíðurferðalag til stór-
borgar þar sem þú munt hitta góða vini og
skemmta þér konunglega.
Þú þarft að taka mikilvægar ákvarðanir á ár-
inu og ýmislegt sem hefur verið að vefjast
fyrir þér fer að skýrast. Ekki hafa of miklar
áhyggjur, þetta reddast allt saman eins og
alltaf. Þú ert að hressast eftir tímabil lægðar
og þú finnur mikinn mun á þér. Lífið á eftir
að leika við þig um leið og þú hefur tekið
ákvarðanir varðandi ýmis mál og það getur
vel verið að þú flytjist búferlum þegar líða
tekur á árið. Gamlir vinir koma skemmtilega
á óvart og þú finnur mikinn stuðning frá öll-
um í kringum þig. í ástamálunum verður þú
að taka málin í eigin hendur og passaðu þig
á því að kenna ekki maka þínum um allt sem
fer úrskeiðis.
Undanfarnir mánuðir hafa ekki verið þinn
mesti gleðitími. Sambandsslit og önnur
leiðindi hafa látið á sér kræla og þú þarft
virkilega að fara að vinna úr þínum málum.
Ræktaðu sjálfa/n þig og áður en þú veist af
verður nýtt ævintýri í startholunum. Þú ert
frábær manneskja og átt aðeins það besta
skilið. Gefðu þér góðan tíma til þess að
hugsa um í hvaða átt þú vilt fara og varastu
að fara út i samband með manneskju sem
þú berðekki miklar tilfinningar til. Skemmtu
þér með vinum þínum og einbeittu þér að
náminu. Eftir því sem liður á veturinn áttu
eftir að kynnast nýrri hlið á sjálfri þér.
Bogmaður
23. nóvember - 21. desem
&
4ÉK Steingeit
22. desember - 20. janúar
Vatnsberi
núar -19. febrúar
MjBaiEaBaSBaBfiffigflgaH
Fiskar
20. febrúar - 20. mars
Það er skemmtilegur tími framundan hjá
þér. Nýtt ár og spennandi tækifæri. Þú rifjar
upp gömul kynni með góðum vini og hver
veit nema það samband þróist í eitthvað
meira spennandi. Þín bíður skemmtilegt
ferðalag á árinu og draumar verða að veru-
leika. Forðastu fólk sem reynir að notfæra
sér þig og ekki fara yfir um ef þú þarft að
sýna ákveðni í samskiptum við aðra. Varastu
að hafa of miklar áhyggjur af smámunum
vegna þess að það tekur of mikla orku frá
þér, einbeittu þér frekar að einhverju já-
kvæðu og uppbyggilegu. Farðu út á meðal
fólks og lyftu þér upp, passaðu samt að fara
ekki yfir strikið.
Það eru miklar breytingar framundan hjá
þér. Þú gerðir miklar fjárfestingar í lok ársins
og búferlaflutningar bíða þín. Ekki stressast
of mikið upp yfir þessu og mundu að það er
alltaf erfitt að breyta til. Atvinnutilboð mun
berast þér sem þú munt taka fegins hendi
enda felur það í sér ný og skemmtileg tæki-
færi sem þú vilt ekki missa af. Góðir vinir
koma heim eftir langa fjarveru og þú hefur
mikið að spjalla um. Samskipti þín við þína
nánustu eru mjög góð en varastu að ætlast
til of mikils af fólkinu í kringum þig. Ef þú
ert ekki í sambandi þá er rétti tíminn til þess
að fara að litast um.
Loksins ertu búin að leysa úr þínum deilu-
málum og getur farið að slappa af og njóta
lífsins. Haltu stórt partý og bjóddu öllum
sem þér þykir vænt um, þér veitir ekki af
að skemmta þér í góðra vina hópi. Reyndu
að temja þér jákvætt hugarfar og ekki gera
stór mál úr smámunum. Ástarmálin ganga
upp og niður og þú verður að fara taka mál-
in í þínar hendur. Vertu óhrædd/ur við að
stíga fyrsta skrefið og ef hlutirnir ganga
ekki upp þá þýðir ekkert að láta það draga
sig of mikið niður. Farðu líka að átta þig á
því að þú átt skilið allt það besta.
Það eru breytingar í vændum á nýja árinu
sem þú munt taka fagnandi. Gættu þess þó
að vaða ekki blindandi út í eitthvað sem þú
hefur ekki hugmynd um hvernig mun ganga
fyrir sig. Til þess að hlaða batteríin hefur þú
þörf fyrir einveru og láttu það eftir þér að
vera heima í rólegheitum, þú ert ekki að
missa af neinu þó að þú dragir þig stundum
í hlé. Þú hefur átt ánægjulegar stundir með
fjölskyldunni um jólin og vertu dugleg/ur
að rækta sambandið við alla áfram. Þú hef-
ur átt erfitt með að skuldbinda þig og þarft
að læra að taka áhættur I ástamálum.
Hrútur
21. mars - 20. apríl
Naut
21. apríl - 21. maí
KB
Tvíburar
22. maí - 21. júní
Krabbi
22. júní - 23. júlí
Þú ert heillandi manneskja og þú hefur svo
sannarlega fundið þig í því sem þú ert að
gera þessa dagana. Þér gengur vel og þú
hefur mikla hæfileika á þínu sviði. Það fer
að rætast úr ástamálunum og hafðu ekki
of miklar áhyggjur þó að þetta gangi ekki
nákvæmlega upp eins og þú vilt. Hafðu í
huga að engir tveir eru eins og það getur
verið mjög erfitt að kenna gömlum hundi
að sitja. Farðu varlega með peningana þína
og mundu að þeir vaxa ekki á trjánum. Það
er allt í lagi að leyfa sér stundum hitt og
þetta en varastu að sleppa þér algerlega í
kaupgleðinni.
Það er búið að vera mjög mikið að gera hjá
þér á síðasta ári en vonandi fer að hægjast
um. Þú ert búin að vera mjög þreytt/ur og
þarft að fara að læra að slappa af. Það er
allt í lagi að viðurkenna það fyrir sjálfum
sér að maður getur ekki verið allt í öllu og
stundum langar mann bara til þess að vera
heima. Þú ert nýbúin/n að fá launahækkun
sem kemur sér sérstaklega vel og hagur þinn
fer svo sannarlega að vænkast. Ekki gleyma
þínum náriustu og gefðu þér tíma til þess að
vera með þeim í rólegheitum.
Þú ert búin að vera í rólegheitum á framandi
slóðum með fjölskyldunni. Það getur verið
svolítið erfitt að byrja aftur eftir góðan tíma
en reyndu að gera það besta úr hverjum
degi. Ekki gleyma þér í þinni fullkomnunar-
áráttu og gefðu þér tíma til þess að hitta
vini þína og njóta þeirra samvista. Lyftu þér
upp og ekki hika við að kynnast nýju fólki.
Njóttu þess að hafa gaman og ekki vera stöð-
ugt með samviskubit yfir öllu og engu. Það
þjónar engum tilgangi. Sýndu hvað í þér býr
og taktu gagnrýni ekki of nærri þér. Gættu
þess að hlusta á sjónarmið annarra vegna
þess að þú gætir lært eitthvað nýtt.
Þú hefur verið að kafna í verkefnum og svo
verður áfram eitthvað fram eftir nýja árinu.
í vor fara þó hlutirnir að hægjast í kringum
þig og þú getur farið að slappa aðeins af og
njóta þess að vera ekki með allar hendur full-
ar. Gættu þess að hlaða ekki á þig of miklum
verkefnum. Þú ert gjörn/gjarn á að láta fólk
vaða yfir þig þannig að þú þarft að fara að
læra að vera ákveðnari. Taktu áhættur og
leyfðu örlögunum að ráða ríkjum. Þú munt
njóta samvista góðra vina og þá verður mik-
ið spjallað og að mörgu komist. Njóttu þess
að vera þú sjálf/ur.
46