Bændablaðið - 22.03.2005, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 22. mars 2005 15
STALDREN
FÓÐURBLANDAN HF.
Korngarðar 12 Rvík.
FB Selfossi
FB Hvolsvelli
Bústólpi Akureyri
Sími 570 9800
Fax 570 9801
www.fodur.is
Komum í veg fyrir smit,
notum viðurkennd
sóttvarnarefni.
STALDREN er borið undir bú-
fénað. Einstök samsetning
náttúrulegra efna veldur því að
efnið er skaðlaust mönnum og
dýrum en stórskaðlegt sýklum
og annari óáran.
Þann 2. mars sl. afgreiddi
skipulags- og byggingarnefnd
Snæfellsbæjar 38 lóðum undir
íbúðarhús, fiskvinnsluhús og
frístundahús. Nefndin úthlutaði
lóðum í öllum hverfum sveitar-
félagsins undir 3 einbýlishús, 10
parhús og 2 stór fiskvinnsluhús-
næði. Einnig voru samþykktar
skipulagsbreytingar vegna frí-
stundabyggðar fyrir 5 hús í
Staðarsveit og fyrir 16 hús á
Hellnum. Að lokum var sam-
þykkt breytt aðalskipulag fyrir
Ólafsvík í samræmi við óskir
um nýtt og breytt deiliskipulag
fyrir ýmis svæði innan þéttbýl-
iskjarnans.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, segir að skortur
hafi verið á íbúðarhúsnæði í Snæ-
fellsbæ. Auðvelt hafi verið að
selja og nú hefur íbúðaverð hækk-
að mjög ört. Fólk sér það líka að
það getur byggt 200 fermetra hús
í Snæfellsbæ fyrir 20 til 23 millj-
ónir með öllu en það kostar 40
milljónir að byggja samskonar
hús í Reykjavík. Hann segir að
næg atvinna sé í Snæfellsbæ sem
er að sjálfsögðu forsenda þess að
fólk setjist að og byggi sér hús.
Síðast en ekki síst bendir hann á
hvað það sé miklu auðveldara fyr-
ir ungt fólk að byggja sér hús nú
en verið hefur.
,,Við erum líka að fá okkar
fólk til baka sem hefur menntað
sig í tengslum við sjávarútveginn.
Sem dæmi get ég nefnt þrjá pilta
sem fóru og lærðu vélstjórn og
fengu allir yfirvélstjórastarf á
fiskibátum hér að námi loknu.
Góðar stöður sem gefa góð laun,“
sagði Kristinn.
Varðandi þessar 16 lóðir sem
úthlutað var á Hellnum sagði
hann að þar væru Norðmenn að
byggja lítil og gamaldags sumar-
hús. Húsin verða smíðuð í Noregi
og síðan flutt að Hellnum. Krist-
inn sagðist ekki vita hvort þeir
ætluðu að leigja húsin út eða selja
þau. Norðmennirnir eiga þetta
land sem húsin munu standa á
sem er hluti af Brekkubæjarland-
inu.
Kristinn sagði að bæjarstjórn
væri að bíða eftir að ganga frá
ábúðarsamningi og þegar því er
lokið verður úthlutað 39 sumar-
húsalóðum á Arnarstapa. Hann
segir að mikið sé spurt um slíkar
lóðir þar vestra enda hafi orðið
mikil breyting fyrir Snæfellsnesið
með tilkomu Hvalfjarðargang-
anna.
,,Það má eiginlega segja að
eftir að göngin komu sé Snæfells-
bær kominn þar sem að Borganes
var fyrir Hvalfjarðargöngin. Það
tekur ekki nema tvo tíma að aka
að Arnarstapa úr Reykjavík og í
ár verður öll leiðin undir bundnu
slitlagi. Við finnum mikið fyrir
því hvað Snæfellsnes hefur al-
mennt séð mikið aðdráttarafl fyrir
ferðamenn og það hefur aukist
með tilkomu þjóðgarðsins. Það
eru því nokkrir samverkandi þætt-
ir sem valda þessum uppgangi hjá
okkur,“ sagði Kristinn Jónasson.
Aldrei jafn mikið
byggt í Snæfellsbæ Fjós eru okkar fag
Landstólpi ehf.
Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson
s: 4370023 / 8694275 s: 4865656 / 8989190
Mikið úrval tæknibúnaðar í fjós:
Weelink - fóðrunarkerfi
o www.weelink-systems.nl
Básamilligerðir og átgrindur
o www.dcedrachten.nl
Básadýnur
o www.promatltd.com
Steinrimlar
o www.appelbeton.nl
Flórsköfukerfi
o www.dairypower.ie
Uno Borgstrand náttúruleg loftræsting
o www.uba.se
Kjarnfóðurbásar og kálfafóstrur
o www.urbanonline.de
Propydos - súrdoðabrjótur
o www.propydos.nl
Plastgrindur í gólf
o www.carfed.ch
Þráðlausar eftilitsmyndavélar
o www.lynx-systemes.com
Fjósbyggingar - Hönnun og ráðgjöf
Nú stendur sem hæst undirbún-
ingur fyrir aðalfund Landssam-
bands kúabænda, en hann verð-
ur haldinn á Hótel Selfossi dag-
ana 8. og 9. apríl nk. Að sögn
Snorra Sigurðssonar, fram-
kvæmdastjóra LK, gengur und-
irbúningurinn vel. „Það er þó
þannig í ár að flest aðildarfélög
okkar funda óvenju seint og því
munum við vita með stuttum
fyrirvara hverjir verða þingfull-
trúar í ár. Þetta gæti komið
nokkuð niður á undirbúningi
fulltrúanna fyrir fundinn, ef við
værum ekki með heimasíðu með
öllum upplýsingum og gögnum.
Í fyrra brugðum við á það ráð að
setja upp sérstaka heimasíðu
fyrir aðalfundarfulltrúa, þar
sem þeir geta hlaðið niður öllum
þingskjölum, drögum að álykt-
unum og þess háttar. Þetta spar-
aði mikinn tíma og auðveldaði
allan undirbúning þingfulltrúa.
Í ár verður þetta með mjög svip-
uðu sniði, enda allir fulltrúar
með tölvupóst og aðgengi að ver-
aldarvefnum.“
Fjölmörg hagsmunamál
í deiglunni
Að sögn Snorra má búast við
mörgum málum á fundinum í ár.
„Já það er viðbúið að ýmis mál
verði tekin fyrir eins og venja er,
en væntanlega munu nú helstu
hagsmunamál greinarinnar, svo
sem ófrágengnir hlutar í nýgerðum
mjólkursamningi, málefni lána-
markaðarins, menntun og rann-
sóknir og fleira því tengt verða til
umfjöllunar“, sagði Snorri.
Fundurinn í beinni!
Sú nýbreytni verður á aðalfundin-
um í ár að honum verður sendur út
á netinu þannig að allir eiga að
geta fylgst með framvindu fundar-
ins. „Landssamband kúabænda
hefur frá stofnun þess reynt að
starfa í eins nánum tengslum við
kúabændur landsins og hægt er og
hafa aðalfundir félagsins ávallt
verið opnir. Nokkuð misjafnt er
eftir fundarstað hve aðsókn kúa-
bænda, sem ekki eru fulltrúar, hef-
ur verið mikil á fundinn og því
ákváðum við að gera okkar til þess
að færa fundinn til félagsmanna
okkar í stað þess að vænta nærveru
þeirra á staðnum. Með þessu móti
geta allir áhugasamir um málefni
nautgriparæktar fylgst nokkuð ná-
ið með framvindu fundarins og
haft samband við fulltrúa sína til
að koma á framfæri skoðunum sín-
um eða athugasemdum við um-
fjöllunarefni fundarins. Það má því
segja að með þessu séum við að
virkja fulltrúalýðræðið enn frekar
og er það vel“, sagði Snorri að lok-
um. Þess má geta að eftir sem áður
eru kúabændur og aðrir áhugasam-
ir um nautgriparækt velkomnir til
að fylgjast með störfum þingsins,
sem eins og áður segir verður
haldinn á Hótel Selfossi.
Aðalfundur Landssambands
kúabænda framundan
Ein stærsta ferðakaupstefna í
heimi – ITB - var haldin fyrir
skömmu í Berlín. Íslenskir
ferðaþjónustubændur tóku
þátt í kaupstefnunni. Á sýning-
unni voru Scandinavian Travel
Award - Skandinavísku ferða-
verðlaunin - veitt fyrirtækjum
og áfangastöðum í fimm flokk-
um. Ferðaþjónusta bænda
hlaut verðlaun fyrir bestu sölu-
vöruna í ferðaþjónustu og var
forsenda valsins umhverfis-
stefna samtakanna. Í öðru sæti
í þeirra flokki var Legoland í
Billund í Danmörku og í þeim
þriðja Ferðamálaráð Värma-
lands í Svíþjóð.
Marteinn Njálsson, formaður
Félags ferðaþjónustubænda var
viðstaddur afhendinguna en Sæv-
ar Skaptason framkvæmdastjóri
skrifstofunnar tók á móti verð-
laununum. Afhending verðlaun-
anna vakti mikla athygli – bæði á
Íslandi og Ferðaþjónustu bænda.
Verðlaunin fengu ferðaþjónustu-
bændur vegna umhverfisstefnu
Fb – og félagsstarfs í umhverfis-,
ímyndar- og gæðamálum.
„Þessi verðlaun er afrakstur
vinnu sem byggir á samstarfi
Ferðaþjónustu bænda, Félags
ferðaþjónustubænda og Háskól-
ans á Hólum,” sagði Marteinn og
bætti því við að ásamt vinnu í
umhverfismálum hefði markvisst
verið unnið að gæðamálum og
ímyndarmálum ásamt breyting-
um á flokkunarkerfi gistingar.
„Verðlaunin vöktu mikla athygli
á Íslandi sem áfangastaðar og
munu samstarfsaðilar okkar í
ferðaþjónustu á Íslandi njóta at-
hyglinnar með okkur. Ennfremur
beina þau athygli að sveitum
landsins og bændum sem nú hafa
fengið alþjóðlega viðurkenningu
á sinni vöru,” sagði Marteinn.
Þess er skemmst að minnast að
Ferðaþjónusta bænda fékk „Um-
hverfisverðlaun Ferðamálaráðs
2004“ og Gæða og gestristni við-
urkenningu Uppsveita Árnes-
sýslu, „Uppsveitabrosið“ haustið
2004.
Scandinavian Travel Award
til Ferðaþjónustu bænda
Ferðaþjónustu-
bændur funda
Aðalfundir Ferðaþjónustu
bænda verða þetta árið haldnir
á Hótel Heklu, Brjánsstöðum.
Aðalfundur Ferðaþjónustu
bænda hf. verður haldinn
mánudaginn 4. apríl kl. 10.00
og aðalfundur Félags
ferðaþjónustubænda
þriðjudaginn 5. apríl kl. 10.00.
www.bondi.is