Bændablaðið - 02.12.2008, Blaðsíða 13

Bændablaðið - 02.12.2008, Blaðsíða 13
13 Bændablaðið | þriðjudagur 2. desember 2008 nomuseum Northern Europe, ENE, sem gengur út á að yfirfæra kana- dískt viðskiptalíkan fyrir hand- verksfyrirtæki til landa Norður- Evrópu. Þátttökulönd fyrir utan Ísland eru Noregur, Norður-Írland, Írland, Færeyjar og Kanada. Kanadamenn eru tilbúnir að miðla af þekkingu sinni en sam- eiginlega er farið yfir hvernig best verður að því staðið. Þetta við- skiptalíkan hefur verið í þróun undanfarin 20 ár og í dag eru starf- andi 50 slík fyrirtæki á austurströnd Kanada með um 500 starfsmenn. Heildarvelta fyrirtækjanna er um þrír milljarðar króna og árlega koma um sjö hundruð þúsund gest- ir í heimsókn. Gert er ráð fyrir að ENE-verkefnið taki þrjú ár og að í hverju þátttökulandi verði valin í það minnsta tvö fyrirtæki. Á Íslandi hafa fyrirtækin Gusta Design á Djúpavogi, sem framleið- ir töskur og fylgihluti úr fiskroði og hreindýraskinnum, og fiskvinnslu- fyrirtækið Bestfiskur á Hornafirði, sem framleiðir m.a. sólþurrkaðan saltfisk, verið valin til verkefnisins og er þróunarvinnan þegar hafin. Verkefnið hefur fengið fjárhagsleg- an stuðning víða, m.a. frá NORA, Norrænu Atlantsnefndinni, og Slow Food-samtökin hafa einnig lýst yfir stuðningi við verkefnið. Íslenski stuðningshópurinn sam- anstendur af Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði, Menningar- miðstöð Hornafjarðar, Þekkingar- neti Austurlands, Handverki og hönnun og hönnunardeild Lista- háskóla Íslands. Markmiðið er að varðveita hefðbundið handverk, mæta þörfum samtímans fyrir menningar-, fræðslu- og ferðaþjón- ustuafurð og gera um leið eigendur fyrirtækjanna fjárhagslega sjálf- stæða. Munurinn á Hagleikssmiðju og öðrum handverksfyrirtækjum er sá að þau síðarnefndu selja ákveðna vöru eða handverk á meðan Hagleikssmiðjan selur handverk, segir sögu þess, lýsir menning- unni sem handverkið er sprottið úr og færir viðskiptavininum upplif- unina sem fylgir því að sjá vöruna verða til. Hagleikssmiðja er einka- fyrirtæki sem notar hefðbundna tækni eða þekkingu við framleiðslu á afurðum sínum, kynnir þekkingu sína og handverksmenn fyrir við- skiptavinum og hefur því aðstöðu til vinnslu, sýningar og kynningar á vörunni. Sannað er að viðskiptavin- urinn er mun líklegri til að kaupa vöru hafi hann fylgst með fram- leiðsluferlinu, heldur en vöru sem hann sér uppstillt í verslun. Heimaframleiðslan afar mikilvæg Á fyrirlestri um framleiðslu á svæð- isbundnum kjöttegundum kom fram að til að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika væri nauðsynlegt að vernda gömul búfjárkyn og stofna, sem væru erfðaauðlindir. Besta verndunaraðferðin og nýting til framleiðslu á kjöti og öðrum búfjár- afurðum, einkum með grasbítum, er kjötframleiðsla með heimakynj- um hvers lands eða svæðis. Oft er þetta tengt ferðaþjónustu í sveitum. Mikilvægt er að eiga búfé sem er aðlagað aðstæðum á hverjum stað, eins og er á Íslandi; búfé sem fell- ur inn í menningarlandslagið og er hluti af menningunni í hverju landi. Vaxandi andstaða er víða um lönd gegn búfjárafurðum úr verksmið- jubúskap þar sem aðallega er fóðr- að á korni og jafnvel beitt lyfja- og hormónameðferðum. Hefðbundin framleiðsla af beiti- landi og grasafurðum gegnir öðru máli. Sumir kaupa aðeins mjólk, kjöt og egg frá slíkum búum, gjarn- an lífrænt vottuðum og/eða þeim búum sem eru með framleiðsl- unni að vernda sjaldgæf búfjárkyn eða kyn í útrýmingarhættu. Víðast hvar hefur sláturhúsum fækkað og er vaxandi þörf á litlum sláturhús- um, jafnvel hreyfanlegum ein- ingum sem geta sinnt sérkröfum af ýmsu tagi og uppfylla sértækar gæðakröfur. Ýmsir telja of miklar kröfur gerðar, kjötið gjarnan selt beint frá býli, t.d. í ferðaþjónustu eða á sveitamörkuðum á nærsvæði. Þetta þýðir minni flutninga, sem er betra fyrir dýrin, og um leið minni útblástur gróðurhúsalofttegunda. BGK Hér er einnig verið að vinna að annarri gamalli hefð, eða eiginlega hand- verki. Þessi kona er að leggja síðustu hönd á Havana-vindil sem búinn var til á staðnum. Þessir aðilar framleiða allir kjöt undir sama merkinu, eins og hér sést. Bæði er framleitt eftir gömlum uppskriftum sem notaðar hafa verið mann fram af manni en einnig er um vöruþróun að ræða. Þann 15. nóvember 2008 eru 60 ár síðan starfsemi hófst á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Tilraunastöðin hefur verið ein meginstoð í vísindastarfi á Íslandi og margar rannsókn- anna hafa verið á heimsmæli- kvarða. Starfið hefur verið að þróast í 60 ár og Tilraunastöðin er metnaðarfull háskólastofn- un með mikinn fjölbreytileika. Á Keldum er fagleg forysta á ýmsum fræðasviðum og mikil þekking og reynsla. Jafnframt er um að ræða fjölbreytt og gef- andi samstarf við atvinnulífið, s.s. við landbúnað, fiskeldi og matvælaframleiðslu. Á Keldum starfa öflugir, sér- menntaðir og framsæknir vís- indamenn með mikla reynslu og standast þeir samanburð við þá bestu í heiminum. Vegna sér- stöðu Tilraunastöðvarinnar, sem byggir á ríkri hefð og sterkri sögu sem skiptir sköpum fyrir framtíðina, þá hefur hún starf- að skv. sérlögum sem eru frá árinu 1990. Meginviðfangsefni Tilraunastöðvarinnar eru rann- sóknir á dýrasjúkdómum og varnir gegn þeim. Helstu fræða- sviðin á Keldum eru príon- fræði, veirufræði, bakteríufræði, sníkjudýrafræði, ónæmisfræði, meinafræði og sameindalíffræði. Rannsóknaverkefni síðustu ára eru m.a. ónæmis- og sjúkdóma- fræði fiska, sníkjudýra- og bakt- eríufræði, veirur í sauðfé og hest- um, riða og skyldir sjúkdómar og sumarexem í hestum. Afmælisráðstefna Ýmislegt hefur verið gert til að fagna afmælisárinu, m.a. fór starfsfólk í afmælisferð í maí og í september var haldin alþjóðleg ráðstefna um fisksjúkdóma og fiskaónæmisfræði (International Conference on Fish Diseases and Fish Immunology). Samhliða auknum áhuga á fiskeldi víða um heiminn hafa vísindamenn aflað nýrrar þekkingar um fisk- sjúkdóma og fiskaónæmisfræði. Á Keldum hafa farið fram ára- tugarannsóknir á fisksjúkdóm- um og fiskaónæmisfræði og Rannsóknadeild Fisksjúkdóma er þar starfandi skv. sérlögum frá árinu 1986. Rannsóknirnar hafa fylgt áherslum í íslensku fisk- eldi, í fyrstu í tengslum við lax- eldi og nú á síðustu árum við aðrar tegundir. Frá Keldum liggja fyrir rannsóknir og niðurstöður um smitsjúkdóma, samspil hýs- ils og sýkils og áhrif bóluefna, sem hafa verið birtar víða, m.a. í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum. Þekkingaröflun á sviði fisksjúk- dóma og fiskaónæmisfræði hefur þróast mikið á síðustu árum. Því þótti vel við hæfi að hafa áherslu ráðstefnunnar, sem haldin var í september í tilefni afmælisársins, á þessum þáttum og er það í takt við þróun Tilraunastöðvarinnar á síð- ustu árum. Þátttakendur ráðstefn- unnar voru frá sex heimsálfum: Afríku, Asíu, Evrópu, Eyjaálfu, N-Ameríku og S-Ameríku og 26 löndum. Meðal þeirra voru vís- indamenn með alþjóðlega við- urkenningu. Miklar upplýsingar liggja fyrir um eðli fisksjúkdóma og þeirra sýkla sem valda þeim, veira, baktería, sníkjudýra og sveppa. Hröð þróun hefur verið í þekkingaröflun á þessu sviði í alþjóðlegu vísindasamfélagi. M.a. voru kynntar smittilraunir og þörf- in er ljós á góðri aðstöðu til slíkra rannsókna. Á ráðstefnunni lögðu sérfræðingar áherslu á mikilvægi þess að efla rannsóknir á lifandi fiskum. Í því samhengi hefur verið horft til þess á Íslandi að byggja upp góða aðstöðu við Fræðasetrið í Sandgerði í framtíðinni, en þar er hentugur borholusjór og mik- ilvægt er að uppbyggingu verði hraðað sem mest. Ráðstefnan var vettvangur þess að afla nýrra sam- banda milli vísindamanna, fyr- irtækja og háskólastofnana fyrir framtíðarsamvinnu. Allmargir nemendur í rannsóknanámi tóku þátt í ráðstefnunni og í boði voru sérstakar styrkveitingar til þeirra. Ljóst er að aukinn skilningur á smitefnum í fiskeldi stuðlar að auknu verðmæti. Ráðstefnuhefti hefur verið gefið út, en þar er að finna útdrætti (samantekt) um helstu niðurstöður og ályktanir. Uppbygging á öryggis- rannsóknastofu að Keldum Unnið er að frekari uppbyggingu á Keldum. Tilraunastöðin, Mennta- málaráðuneytið, Framkvæmda- sýsla ríkisins og aðrir aðilar hafa unnið ötullega að því að koma á fót öryggisrannsóknastofu að Keldum. Enginn vafi er á að þessi byggingarframkvæmd er sú flókn- asta tæknilega séð sem unnin hefur verið á Keldum. Víða hefur verið leitað fanga varðandi upplýsingar um fyrirkomulag og hönnun og hafa sérfræðingar komið til lands- ins, bæði frá Svíþjóð og Kanada, til að vera ráðgefandi við fram- kvæmdir. Byggingaframkvæmdir hófust árið 2006, húsið reis á árinu 2007, nú á afmælisári Keldna er unnið að innréttingum og tækni- málum og innan skamms verður öryggisrannsóknastofan tilbúin til notkunar. Vel hefur verið staðið að verkinu, öllum aðilum stendur sómi af því og útkoman er glæsi- leg. Mun aðstaðan verða sú full- komnasta sinnar tegundar á Íslandi í dag. Öryggisrannsóknastofan uppfyllir BSL3 (Biosafety Level 3) kröfur og mun þar fara fram margvísleg vinna með smitefni, s.s. tilraunavinna með smitefni, smitefni tengd frumurækt og gerð frumulína, þjónusta við hreinsun smitefna, smitefni sem eru jákvætt viðmið í skimunarvinnu, vinna með smitefni sem vitað er að eru í landinu, vinna með smitefni sem ekki hafa greinst en gætu verið í landinu (t.d. fuglaflensa) og verður aðstaðan viðbúnaðarrann- sóknastofa ef grunur kemur upp um nýtt smitefni sem ekki hefur áður greinst í landinu. Keldur á krepputímum Mikilvægt er að varðveita og efla nútímalega þekkingarstofnun eins og Tilraunastöðina, sem á framtíð fyrir sér og er í sterkum tengslum við þarfir atvinnulífsins. Hröð og kraftmikil uppbygging á Keldum er enn mikilvægari nú vegna þeirra kringumstæðna sem eru í íslensku þjóðlífi þessa dagana. Það þarf að skapa kringumstæður til að frekari framþróun verði. Verkefni okkar Íslendinga í dag er að byggja upp íslenskt samfélag. Við þurfum að átta okkur á að þjálfun, rannsókn- ir og nýsköpun á fræðasviðum Tilraunastöðvarinnar, sem þegar hefur trausta innviði, er eitt af þeim langtímaúrræðum sem hlúa þarf betur að. 60 ára starfsafmæli Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum Eftir Sigurð Ingvarsson forstöðumann og prófessor að Keldum

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.