Bændablaðið - 04.11.2010, Side 28
28 Bændablaðið | fimmtudagur 4. nóvember 2010
Jörðin hafði verið í eyði í nokk-
ur ár þegar Bjarni Hólmgrímsson
bóndi á Svalbarði keypti hana
en engin nýtanleg hús voru þá
á jörðinni. Bjarni byggði hlöðu
árið 1977 og það var svo árið
1982 sem núverandi ábúendur
Margrét, dóttir Bjarna, og Geir
Árdal hófu að byggja fjós. Fjósið,
sem er básafjós með mjaltagryfju,
var komið í notkun að fullu og
byrjað að mjólka í því 1985.
Ábúendur keyptu jörðina svo árið
1989. Fyrstu árin bjó fjölskyldan
inn á Svalbarðsströnd og það var
ekki fyrr en 1990 sem flutt var í
nýtt íbúðarhús. Samhliða upp-
byggingu á jörðinni var land brot-
ið til ræktunnar og mjólkurkvóti
keyptur smám saman. Árið 2005
keyptu Margrét og Geir jörðina
Grímsgerði sem er næsta jörð
norðan við Dæli en þá höfðu þau
nýtt hana í rúm 10 ár.
Býli? Dæli.
Staðsett í sveit? Fnjóskadal,
Þingeyjarsveit.
Ábúendur? Margrét Bjarnadóttir og
Geir Árdal.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Eigum fimm börn: Hannes, stærð-
fræðingur, búsettur í Reykjavík,
Bjarni, vélstjóri og búfræðingur,
vinnur í Reykjavík á veturna en
við búskapinn á sumrin, Úlla,
margmiðlunarfræðingur, er í
enskuskóla í Kanada, Sigríður,
er í Hússtjórnarskólanum í
Reykjavík, og Steinþór sem er í
Stórutjarnaskóla. Engin gæludýr.
Stærð jarðar? Dæli er 650 ha.
Grímsgerði er svo 250 ha.
Tegund býlis? Kúabú, nokkrar
kindur og flóamarkaður.
Fjöldi búfjár og tegundir? 50
mjólkurkýr og þar að auki um það
bil 80 nautgripir og 16 kindur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Hann byrjar á fjósverkunum og
endar yfirleitt á þeim líka nema
ef þörfin kallar á annað. Á milli
mjalta er þeim verkum sinnt sem
til falla og eru þau að miklu leyti
árstíðabundin. Síðustu tvö sumur
höfum við verið með flóamarkað í
bílskúrnum sem hluta af búrekstr-
inum, hann hefur verið opinn eftir
hádegi alla daga.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast er
vélavinna og heyskapur í góðu
veðri en leiðinlegast ef upp koma
gæðavandamál í fjósi.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5
ár? Við sjáum hann með svipuðu
sniði og hann er í dag en von-
andi verður hægt að betrumbæta
vinnuaðstöðu á þeim tíma t.d. með
legubásum í fjósi. Þá verður vænt-
anlega líka farið að styttast í að
Bjarni sonur okkar komi að fullu í
búskapinn og taki síðan við.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Þeir einstaklingar
sem valist hafa til forystu fyrir
bændur hafa staðið sig vel á erf-
iðum tímum. Það er mikil vinna
framundan vegna niðurskurðar
til landbúnaðarmála og sá nið-
urskurður á eftir að reyna á sam-
stöðu bænda.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Ef rétt er á spilunum haldið og
Íslendingum mun hljótast sú gæfa
að standa áfram utan ESB berum
við ekki kvíðboga fyrir framtíð
íslensks landbúnaðar.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara?
Við framleiðum gæðavöru sem
þarf að fást hátt verð fyrir á
erlendum mörkuðum svo bændur
geti fengið eitthvað upp í kostnað
við framleiðslu hennar og afurð-
arstöðin fyrir vinnsluna. En því
miður virðist það vera svo að þeir
markaðir sem greiða það verð séu
mjög takmarkaðir. Fyrst ekki geng-
ur betur að selja þessar vörur eins
og gengi krónunnar er í dag erum
við mjög efins um að útflutningur
geti gengið nema í takmörkuðu
mæli en það þýðir ekkert annað en
halda áfram að reyna.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, smjörvi, ostur, grænmeti og
vínber.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Heilsteikt lambalæri
eða hryggur, síðan er nautakjötið
alltaf vinsælt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Eftirminnilegast er
þegar við fluttum í íbúðarhúsið
1. desember 1990 og hættum að
keyra yfir Víkurskarðið til mjalta.
1 7 9 8 2
6 8
1 9 4 5
2 6
7 8 1 3
7 9
5 4 1 6 3
7 3 4
4 6 9 8
1
9 8 2 4
3 5 8
4 6 7
3 4
2 7 8 9
2 3
1 3 4
6 8 9
6 7 3
5 1 6 8
9 5 7
9 8
1 6 8
3 7
5
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Brugðið á leik með börnunum
Undanfarnar vikur hefur Stóra
Disney-matreiðslubókin verið í
efsta sæti á sölulista bókaversl-
ana svo greinilegt er að hún er
vinsæl hjá matgæðingum lands-
ins og börnum þeirra. Í bókinni
eru yfir 100 spennandi upp-
skriftir og eiga þær það allar
sammerkt að vera einfaldar svo
tilvalið er að leyfa stálpuðum
börnum að spreyta sig undir
handleiðslu fullorðinna.
Súkkulaðibita möffins Mínu músar
> Um 15 möffins
150 g sykur
150 g smjör
3 meðalstór egg
160 g hveiti
1 tsk. kanill
2 tsk. lyftiduft
1 hnífsoddur salt
100 g dökkt súkkulaði
litríkt sælgæti eða skrautsykur
Hvítt rjómaostakrem
2 dl flórsykur
1 tsk. vanillusykur
60 g rjómaostur
30 g smjör
Aðferð:
Hitið ofninn í 200° C. Þeytið
saman smjör og sykur, bætið eggj-
unum saman við, einu í einu og
hrærið í um það bil hálfa mín-
útu. Skerið súkkulaði mjög smátt,
hrærið hveiti, kanil, lyftidufti,
salti og súkkulaði saman við.
Setjið í möffins-form og bakið í
um það bil 15 mínútur við 200°C.
Kökurnar eiga að vera gullinbrún-
ar og bakaðar í gegn, leyfið kök-
unum að kólna á meðan kremið
er búið til. Hrærið öllu hráefni
í kremið vel saman og smyrjið á
kökurnar þegar þær hafa kólnað.
Skreytið kökurnar með litríku
sælgæti eða skrautsykri.
Einfaldi eftirrétturinn hans Guffa
> Fyrir 4-6
1-2 bakkar jarðarber
1-2 bakkar bláber
1 stór poki súkkulaðirúsínur
Vanilluís
Aðferð:
Skolið berin og hitið grill eða
ofn í 150° C. Skerið jarðarberin
í tvennt og hellið í álform, setj-
ið síðan bláberin í formið. Hellið
súkkulaðirúsínum saman við og
hrærið með skeið svo allt bland-
ist saman. Bakið í ofni eða setjið
bakkann á grillið þar til þið sjáið
að rúsínurnar eru orðnar glans-
andi, þá er súkkulaðið aðeins farið
að bráðna og rétturinn er tilbúinn.
Berið fram með vanilluís.
/ehg
Þær eru girnilegar og litríkar
möffins-kökurnar hennar Mínu
músar og börnin hafa gaman af
að hjálpa til við baksturinn og
skreytinguna.
MATARKRÓKURINN
Bærinn okkar
Dæli
Fjölskyldumynd sem tekin var við útskrift Sigríðar frá MA í vor. Frá vinstri
eru Geir, Bjarni, Úlla, Sigríður, Steinþór, Hannes og Margrét.
Flóamarkaðurinn í Dæli.