Bændablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Fréttir Harpan leggur áherslu á íslenskan mat „Hugmyndin kviknaði þegar ég fór með vörur á jólamarkað á Skeið í Svarfaðardal fyrir um fjórum árum. Mig langaði að vera með eitthvað sveitalegt á mark- aðnum og ákvað að gera eitthvað skemmtilegt sem ég gæti farið með. Mig langaði að mála myndir af dýrum en vildi hafa þær öðruvísi og reyndi að finna annað sjónar- horn, ég sem sé snéri þeim við,“ segir Jóhanna Bára Þórisdóttir á Akureyri en hún hefur undanfarin ár verið iðin við að mála afturenda búfénaðar af ýmsu tagi. „Ég hef málað mest af roll- urössum en líka kýrrassa, hænurassa, hestarassa, svínarassa og kisurassa og eitt sinn málaði ég bóndarass, en hann var reyndar í fötum,“ segir hún. Jóhanna Bára var á æskuárum sínum í sveit hjá afa sínum og ömmu á Munkaþverá í Eyjafirði. „Þá hljóp ég gjarnan á eftir skepnunum. Þessi sjón blasti því við mér allan tímann,“ segir hún og bætir við að ágætlega hafi gengið að selja myndirnar. „Það virðast allir vera spenntir fyrir rössum í sveit, jafnt ungir sem aldnir, sveitafólk og borgarbúar, innlendir og erlendir ferðamenn.“ Rollurnar eru hvað vinsælastar um þessar mundir, en um tíma voru það kýr- rassar sem nutu mestrar hylli. Rekaviðurinn sérstaklega skemmtilegur Einkum málar Jóhanna á planka, rekavið og margvíslegt efni sem hún finnur úti í náttúrunni. „Mér finnst rekaviðurinn sérstak- lega skemmtilegur, það er svo mikill karakter í hverjum bút. Einnig finnst mér gaman að leita uppi gamlar spýtur, helst vel veðraðar og með ryðguðum nöglum og nýta þær. Ég hef fundið efniðvið bæði í sveitinni og í fjörum umhverfis Akureyri og einnig annars staðar. Ég fór til dæmis sérstaka ferð norður á Strandir í fyrra til að safna rekavið og kom heim með fulla kerru af alls kyns gullmolum. Ég nýtti svo haustið til að þurrka og undirbúa viðinn fyrir málningu en svo þarf að pússa hann vel áður en ég get byrjað að mála. Ég mála einnig mikið á planka sem ég fæ í byggingavörubúð en þeir eru sléttari og þægilegri að vinna með, en mjög skemmtilegir líka,“ segir hún. Jóhanna Bára segist eiga sér þann draum að efna til sýningar á myndum sínum í fjárhúsi. „Mér finnst það alveg hrikalega spennandi hug- mynd,“ segir hún og bætir við að hún hafi þegar fundið fjárhús sem ekki er nýtt en gæti hentað vel undir sýningu á verkum hennar. „Nú vantar mig bara kjarkinn til að láta verða af því, ég er stundum svolítð rög við að koma mér á framfæri. En hver veit nema þetta verði að veruleika á þessu ári,“ segir hún. Áhugasamir geta kynnt sér verk Jóhönnu Báru á bloggsíðunni rass- arisveit.blogspot.com og eins er Jóhanna Bára með síðu á facebook undir heitinu Rassar í sveit. /MÞÞ Jóhanna Bára á Akureyri málar alls konar rassa í sveit: „Á mér þann draum að setja upp sýningu í fjárhúsi“ Í síðustu viku var nýja ráðstefnu- og tón listar húsið Harpa opnað í Reykjavík þegar Sinfóníu- hljómsveitin hélt þrenna tón- leika í röð undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Um tónleikana og húsið sjálft hefur mikið verið fjallað í fjöl- miðlum en minna hefur farið fyrir umfjöllun um veitinga- og veislu- þjónustu hússins sem verður ein sú umfangsmesta á landinu. Það er fyrirtækið Hörpudiskur sem sér um hana ásamt því að reka há- klassa veitingastaðinn Kolabrautina þar sem gestir njóta útsýnis yfir Reykjavíkurhöfn. Forsvarsmenn Hörpudisks hafa gefið út þá stefnu að meginstefið í rekstri þeirra verði ný íslensk matargerðarlist þar sem höfuðáhersla verði lögð á innlent hráefni. Bjarni Gunnar Kristinsson, yfir- matreiðslumeistari Hörpudisks og fyrrum yfirkokkur á Grillinu á Hótel Sögu, segir að í Hörpunni verði hefð- bundnir íslenskir réttir bornir fram á nýstárlegan hátt. „Hér verður lögð áhersla á fyrsta flokks íslenskt hráefni og höfum við nú þegar gert samninga við nokkra bændur. Við munum t.d. kaupa skyrkonfekt frá Rjómabúinu á Erpsstöðum, bygg frá Vallanesi, kryddjurtir frá Lambhaga og endur frá Hlíðarbergi í Hornafirði. Auðvitað verðum við svo með íslenskt fisk- og kjötmeti frá ýmsum aðilum og ekki má gleyma öllu grænmetinu,“ segir Bjarni. 3.000 manna veislur! Í áætlunum er gert ráð fyrir því að Harpan verði umsvifamikil í veit- ingasölu á höfuðborgarsvæðinu. Þar verður m.a. tekið á móti stórum ráðstefnum, fundum, árshátíðum og alls kyns öðrum veislum. Hægt er að halda stórveislur fyrir allt að 3.000 manns í húsakynnum Hörpunnar þannig að það er ljóst að ef allt gengur upp hafa kokkar og fram- reiðslufólk nóg fyrir stafni í nýja tónlistarhúsinu. /TB Bændablaðið fer í strætó Bændablaðið mun á næstu mán- uðum verða aðgengilegt í 22 strætis- vögnum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Um er að ræða tilraunaverkefni hjá Strætó bs. og nokkrum blaðaútgef- endum en auk þess að fá Bændablað- ið geta farþegar nælt sér í eintök af Fréttatímanum, Monitor, Grapevine og Finna.is. Merktar blaðagrindur verða í vögnunum og þar getur fólk sótt blöð að vild. Þegar farið er úr vagninum býðst að taka blaðið með eða skila því aft- ur í grindina. Markmiðið hjá Strætó er að sögn forsvarsmanna fyrirtæk- isins að gera ferðirnar ánægjulegri fyrir farþegana og fer það ágætlega saman við hagsmuni útgefenda- Bændablaðsins sem er mikið í mun að stækka hóp ánægðra lesenda. Fyrsta kastið verður 400 eintökum af Bændablaðinu dreift í vagnana en með haustinu verður verkefnið endurmetið í ljósi reynslunnar. - Mynd: TB Lausar vikur í sumarhúsum á Hólum Enn er möguleiki fyrir félags- menn búgreinafélaga og búnaðar- sambanda að fá pláss í sumar- húsum Bændasamtakanna á Hólum. Nokkrara vikur er lausar þar í sumar. Áhugasömum eru bent á að hafa samband við Bændasamtök Íslands í síma 563-0300. Mikil umferð var um Héðins- fjarðargöng um nýliðna páska, en sem kunnugt er voru göngin opnuð í byrjun október á síðastliðnu ári. Mælingar á umferð hófust nokkr- um dögum síðar, en met var slegið á föstudaginn langa þegar 1.051 bíll fór um göngin Siglufjarðarmegin og 980 bílar Ólafsfjarðarmegin. Umferðin var svipuð deginum áður eða á skírdag, en þessa daga var langmest umferð um Héðinsfjarðargöng frá því teljarar voru settir upp. Um páskana, frá og með 21. apríl til og með 25. apríl, fóru 4.383 bílar að meðaltali um bæði göng eða í báðar áttir. Vegagerðin reiknar að jafnaði með að 2,6 séu í hverjum bíl, að rútum meðtöldum. Þetta umferðar- magn samsvarar því að um 11.400 manns hafi farið um göngin yfir páskana. Frá áramótum var meðaltal bíla sem fóru um Héðinsfjarðargöng á sólarhring 433 bílar. 11.400 manns um Héðinsfjarðargöng um páskana Ný skýrsla Matvæla- og landbún- aðarstofnunar Sameinuðu þjóð- anna (FAO) um fæðuöryggi, land- búnað og stöðu kvenna verður kynnt á fundi í Þjóðminjasafninu mánudaginn 16. maí frá kl. 14:00- 16:00. Konur eru að meðaltali 43% vinnuafls í þróunarlöndum og skipta verulega miklu máli fyrir þróun byggða og landbúnaðar. Samt sem áður hafa þær ekki sömu möguleika og karlar, m.a. til að afla sér jarðnæðis eða verða sér úti um tækjabúnað til að auðvelda bústörfin og auka framleiðni. Í skýrslu FAO er m.a. leitað svara við því hvert framlag kvenna er til landbúnaðar í heiminum og þýðing þeirra í hag- kerfi dreifbýlisins. Spurt er hvaða áhrif landbúnaðarstefna hafi á störf kvenna og hvað hægt sé að gera til að jafna stöðu kynjanna í alþjóð- legum landbúnaði og matvælafram- leiðslu. Fundurinn er haldinn í sam- vinnu utanríkis ráðuneytisins, Alþjóðamálastofnunar HÍ, Alþjóðlega jafn réttis skóla HÍ og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Yfirmaður kynja- og jafnréttisdeildar FAO, Dr. Marcela Villarreal mun kynna skýrsluna en einnig verða pallborðsumræður. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Konur og fæðuöryggi til umræðu í Þjóðminjasafninu -

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.