Bændablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 39

Bændablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 39
39Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Aðalfundur Æðarræktarfélags Eyjafjarðar og Skjálfanda var hald- inn fyrir skömmu að Þórisstöðum á Svalbarðsströnd. Á fundinn mættu Guðrún Gauksdóttir formaður Æðar- ræktarfélags Íslands og Guðbjörg H. Jóhannesdóttir hlunnindaráðgjafi. Að afloknum venjulegum aðalfundar- störfum kynnti Guðrún sig og sagði frá því sem er að gerast hjá stjórn ÆÍ um þessar mundir. Hún sagði m.a. frá því að til stæði að halda aðalfundinn að Reykhólum í lok ágúst nk. Þá greindi hún frá gerð heimasíðu ÆÍ og gerð kynningarbæklings. Einnig kom fram að matskerfi á dúni væri í endurskoðun og vilji félagsins væri að efla tengsl við deildirnar úti á landi. Margt væri að gerast í markaðsmálum og verið væri að vinna sig inn á Bandaríkjamarkað. Guðbjörg H. Jóhannesdóttir flutti langt og ítarlegt erindi um ýmislegt sem við kemur æðarrækt og greindi frá athyglisverðu æðarverkefni þar sem Færeyjar, Grænland, Ísland og Noregur koma við sögu. Það var sam- anburðarverkefni þar sem fjallað var um atvinnuþróun tengda æðarfugli, hegðun fuglins í löndunum fjórum, hefðir og sérkenni í hverju landi, vinnsluaðferðir, markaðsleit og einnig um vágesti og verndun fuglsins. Hún greindi frá vörpum í öllum löndunum og frá merkilegri atvinnustarfsemi á Vegaoyen í Noregi þar sem búið er að koma upp safni tengdu markaðs- setningu á dúni. Á þessari eyju er æðarfuglinn miðpunkturinn og margt að gerast. Í framhaldi af þessu ræddi Guðbjörg um að nýir tímar væru á Íslandi hvað markaðssetingu varðar og meiningin væri að sinna betur heimamarkaði en verið hefur. Í því sambandi minntist hún á æðarsetur í Stykkishólmi, hugsanlegar sérversl- anir með vörum úr æðardúni, minja- gripaverslanir en gæta þyrfti að því að vöruhönnun þyrfti að byggjast á faglegum vinnubrögðum og ímyndar- mál þyrftu að vega tryggð frá a-ö. Hún talaði einnig um markaðsefni ÆÍ m.a. sölumyndband, örmyndband, bréfsefni og umslög, kynningarbæklinginn og að nýtt félagsmerki væri að koma þar sem æðarblikinn er í forgrunni. /AV Bændablaðið á netinu... www.bbl.is Lesendabásinn Nú eru til umræðu frumvarpsdrög um breytingu á jarðalögum frá 2004. Í nýjum frumvarpsdrögum er lagt til að tekin verði upp á nýjan leik svokölluð ábúðarskylda lögbýla. Í umræðu um breytingar á jarðalögum má ekki einblína á það hvort ábúðarskylda verður tekin upp eða ekki, heldur ætti fremur að ræða um markmið jarðalaga í víðu samhengi og hvaða tækjum er unnt að beita til að ná þeim. Ég held í raun að þeir sem tengjast landbúnaði með einhverjum hætti séu í öllum megindráttum sammála um hver markmið jarðalaga eigi að vera. Meginmarkmið löggjafar um jarðir hefur ávallt verið að stuðla að þjóð- hagslega hagkvæmri nýtingu bújarða. Menn greinir fremur á um hvernig því markmiði verður náð. Undirmarkmið jarðalaga eru afleidd af meginmark- miðinu, t.d. efling landbúnaðar og búsetu í dreifbýli. Vangaveltur um það hvort ábúðar- skylda eigi að vera á bújörðum eða ekki, varða í raun það hvort ábúðar- skylda þjóni markmiðum jarðalaga. Þjónar ábúðarskylda því markmiði að stuðla að þjóðhagslega hagkvæmri nýtingu bújarða, eða eru til önnur tæki til að ná því markmiði? Þýðing ábúðarskyldu, fyrr og nú Ábúðarskylda bújarða var bundin í lög allt til ársins 2004. Þá var svo komið að ábúðarskyldunni var í raun lítið framfylgt, því stjórnvöld sem sinntu eftirliti létu ábúðarleysi óátalið. Helsta inngrip í þágu ábúðarskyldu var beiting forkaupsréttar þar sem þess var freistað af sveitarfélögum að kaupa jarðir og koma í ábúð með ein- hverjum hætti. Vegna strangari krafna um stjórnsýslu reyndist algengt að meiriháttar ágreiningsmál risu upp við beitingu forkaupsréttar, sem oft leiddu til dómsmála. Vegna stækkunar búa og bættra samgangna var einnig algengt að jarðir væru nýttar án ábúðar. Í ein- hverjum tilvikum þurftu bændur að standa í „bixi“ vegna þessa, t.d. að skrá einhvern með lögheimili á jörð, jafnvel þótt raunveruleg búseta væri annars staðar. Engin greining hefur farið fram á því hve slíkt fyrirkomulag var algengt, en almennt má segja að stjórnvöld hafi ekki strangt eftirlit með lögheimilisskráningu. Ábúðarskylda var á árinu 2004 orðin þýðingarlaus og hamlaði í raun nýtingu bújarða. Það er hins vegar ljóst að á fyrri tímum, í tíð annarra búskaparhátta, erfiðari samgangna og vélvæðingar, var ábúðarskylda bújarða besta tækið til að tryggja þjóðhagslega nýtingu bújarða. Jarðalög frá 2004 hafa í raun svipuð markmið og eldri jarðalög. Með lögunum voru þó flest tæki til að ná markmiðum lögð af, t.d. ábúðarskylda, forkaupsréttur, inn- lausnarréttur o.fl., og byggt á því að aukið frelsi myndi almennt stuðla að þjóðhagslega hagkvæmri nýtingu bújarða. Um það geta menn haft mis- jafnar skoðanir. Það má gagnrýna jarðalögin frá 2004 fyrir afskiptaleysi af nýtingu bújarða. Ytri aðstæður leiddu þó til breytinga sem voru óháðar nýjum jarðalögum og brottfalli ábúðar- skyldu. Efnahagsaðstæður upp úr 2004 voru þannig að jarðir urðu góðar fjárfestingar, ódýrt var að eiga jarðir og þær urðu einhvers konar tískueign. Þessi atriði eru háð sveiflum, nema atriðið sem snýr að því að ódýrt sé að eiga jarðir, t.d. vegna framkvæmdar fasteignamats og fasteignaskattlagningar. Að mínum dómi er þjóðhagslegt mein eignarhalds jarða á Íslandi það, að of algengt er að jarðir séu ekki nýttar. Hugmyndir í frumvarpi að jarðalögum ábúðarskyldu og önnur tæki sem þar koma fram, munu ekki stuðla að þjóðhagslega hagkvæmri nýtingu bújarða. Skilyrði um lög- heimili, takmarkanir á fjölda eignar- jarða o.fl. munu hamla nýtingu og stuðla að málamynda lögheimilis- skráningu og leppun á eignarhaldi. Þá mun stjórnsýslukostnaður vegna ,,ábúðareftirlitsins“ vaxa þar sem verk- efninu verður sinnt, en annars staðar munu sveitarfélög lítið sinna verk- efninu eins og raunin var víða fyrir gildistöku jarðalaga frá 2004. Boð og bönn eða skattalegir hvatar Skilyrðisbinding nýtingar bújarða varðandi ábúð, lögheimili, fjarlægðir og fjölda mun ekki efla landbúnað á Íslandi. Tækin til að ná fram mark- miðum jarðalaga þurfa ekki að vera boð og bönn, heldur þarf að skoða löggjöf um eignarhald bújarða heild- stætt, s.s. varðandi skattalega stöðu. Löggjöf um jarðamál á að fela í sér hvata til nýtingar bújarða. Eitt tæki til að ná því þjóðhagslega jákvæða markmiði væru skattalegir hvatar til nýtingar jarða. Fasteignamat jarða er víða lágt, en meginregla fasteignamats er að það lýsi markaðsverði eignar. Fasteignamat vel uppbyggðri jörð er fasteignamat mannvirkja oft hátt og þar með leið- réttist heildarfasteignamatið nokkuð til samræmis við líklegt markaðsverð. Grunnfasteignamat jarða er undan- tekningarlaust of lágt og mörg dæmi um að lítt byggðar jarðir sem eru fast- eignametnar á nokkrar milljónir seljist á tugi milljóna. Fasteignaskattur er svo greiddur af lága fasteignamatinu, en ekki raunverulegu markaðsverði eins og gildir um aðrar fasteignir. Þessi aðstaða gerir það að verkum að meinlaust er að kaupa bújörð og brúka hana ekkert, en greiða e.t.v. nokkra tugi þúsunda í fasteignaskatta á ári. Biðtíminn til að sjá hvort bújörðin reynist góð fjárfesting er því ódýr. Af sömu ástæðum fara jarðir, sem stórir erfingjahópar eiga, oft í eyði eða eru ónýttar, enda ódýrt að eiga jörðina (Reyndar ræðst staða jarða í eigu margra einnig af því að ákvarðanataka í sérstakri sameign er háð samþykki allra, en í frumvarps- drögum koma fram tímabær ákvæði um heimild til meirihlutaákvarðana). Ef löggjöf ætti að fela í sér hvata til nýtingar bújarða, þyrfti að leið- rétta fasteignamat jarða, bæði óbyggðra og byggðra. Þar með yrði dýrara að eiga jörð vegna fasteigna- skatta. Til þess að gera þessa þjóð- hagslegu hvata ennþá virkari væri gert ráð fyrir því að greiddur yrði lægri fasteignaskattur af bújörðum sem væru nýttar. Eigendur jarða hefðu þar með hvata til að nýta eignirnar, t.d. með því að hefja einhverja starfsemi í dreifbýlinu, leigja beitarrétt eða hluta jarða til starfandi bænda eða einfald- lega selja jarðir til þeirra sem þær vildu nota. Þess skal getið að í núgildandi löggjöf er lagaheimild fyrir þessu til gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga Heimilt er sveitarstjórn að lækka eða fella niður fasteignaskatt af bújörðum á meðan þær eru nýttar til búskapar og af útihúsum í sveitum ef þau eru einungis nýtt að hluta eða standa ónotuð. Skylt er sveitarstjórn að setja reglur um beitingu þessa ákvæðis. Heimildin er lítið sem ekkert notuð, að ég best veit. Lagaheimildina mætti endurskoða og láta gilda með sambærilegum hætti um allt land. Til dæmis ætti að fella niður síðari hluta reglunnar um að veita megi skattaf- slátt af útihúsum sem eru ekki nýtt, enda eðlilegra að verðlauna þá sem nýta bújarðir. Það er þjóðhagslega hagkvæmt að starfsemi fari fram á jörðum enda eykur það veltuna í þjóðfélaginu, en einu má gilda hvar sá sem nýtir jörð hefur skráð lögheimili, hvort hann eigi fleiri en 3 jarðir og hversu langt er á milli þeirra. Skoðun skattalegra hvata í tengslum við endurskoðun jarðalaga gæti verið árangursríkasta leiðin til að brjóta upp nýtingarleysi bújarða. Hvati væri til að leigja ónot- aðar jarðir. Virkari markaður yrði með jarðir og þeir sem nýttu jarðir til búskapar stæðu betur að vígi til kaupa á þeim til lengri tíma litið. Það væri misráðið að endurvekja ábúðarskyldu og flókið stjórnsýslu- verk boða og banna. Það byggði á fortíðarhyggju en væri ekki í þágu eflingar landbúnaðar. Jón Jónsson Höfundur er hæstaréttarlög- maður hjá Sókn lögmannsstofu, Egilsstöðum. Markmið jarðalaga og hvernig þeim verður þjónað Hagabeit Tek ungfola í hagabeit á Suðurlandi. Uppl. Í síma 482-1019 Er GSM sambandið ekki gott? Kannaðu GSM magnarana frá okkur. GSM MAGNARAR F y r i r s u m a r b ú s t a ð i n n , bílinn, vinnuna og heimilið. Verð frá 38.547 Dalvegi 16b s: 5542727Sjá nánar á www.hugna.is Ætlunin að sinna heima- markaði betur en áður Æðarræktarfélag Eyja-fjarðar og Skjálfanda:

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.