Fréttablaðið - 24.04.2012, Page 10

Fréttablaðið - 24.04.2012, Page 10
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR10 Dómsuppsaga í Landsdómi VARPAÐU ÞÉR INN Í SUMARIÐ 20 ár Betri lausnir í 1992-2012 Nýherji býður 20% afslátt af völdum vörum í tilefni af 20 ára afmæli sínu. Vikuna 24.–29. apríl bjóðum við afslátt af vönduðum NEC búnaði. Komdu við í verslun Nýherja Borgartúni eða á netverslun.is. Tilboðið gildir 24. – 29. apríl. NEC V230X myndvarpi Áður 139.900 kr. Nú 111.920 kr. XGA 1024x768 upplausn 2300 Ansi Lumen birta Mjög hljóðlátur Þriggja ára ábyrgð NEC 24“ tölvuskjár Áður 49.900 kr. Nú 39.920 kr. Full HD 1920x1080 upplausn DVI-D og VGA inngangar Svartími 5 ms Þriggja ára ábyrgð NEC V422 42“ skjár Áður 229.900 kr. Nú 183.920 kr. Full HD 1920x1080 upplausn VGA, DVI, HDMI o.fl. inngangar Innbyggðir hátalarar Þriggja ára ábyrgð Afmælistilboð: 20% afsláttur af NEC búnaði Nú þegar Landsdómur hefur lokið störfum sínum í fyrsta skipti, með úrskurði í máli Geirs Haarde, telur Róbert Spanó, laga prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, tilefni til að endurskoða fyrirkomulag málshöfðunar til Landsdóms. „Við ættum að íhuga hvort við viljum hafa sambærilegt kerfi til framtíðar,“ segir Róbert. „Sérstak- lega hvað varðar það fyrirkomulag sem fjórtánda grein stjórnarskrár gerir ráð fyrir, að ákæruvald á hendur ráðherra sé á höndum Alþingis.“ Burtséð frá þessu ákveðna máli segir hann ákvörðun Alþingis um ákæru í slíkum málum ekki mega bjóða upp á deilur á flokks- pólitískum forsendum. Ákæran og málarekstur yfir Geir hafi skapað úlfúð í samfélaginu og ásakanir hafi gengið á báða bóga um hvort ákvörðunin hafi verið tekin á réttum forsendum. „Það verður að ríkja traust um málsmeðferðina og þess vegna held ég að ástæða sé til þess að velta fyrir sér hvort að annað fyrir- komulag gæti verið hentugra.“ Róbert tekur fram að ferlið sé tvíþætt, annars vegar ákvörðunin um málshöfðun og hins vegar með- ferð málsins fyrir Landsdómi. Varðandi hið síðarnefnda, hafi hann enn ekki séð annað en að málsmeðferð dómsins hafi verið í samræmi við gildandi reglur. Guðmundur Hálfdanarsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, segir ákveðin skilaboð felast í dómnum. „Þarna eru skilaboð um að taka beri rannsóknarskýrslu Alþingis alvarlega. Þar komu fram alvar- legar athugasemdir um stjórnsýslu á Íslandi í aðdraganda hrunsins.“ Guðmundur segir jafnframt að meðferð Alþingis á málinu hafi orkað tvímælis. Annars vegar hafi þingmannanefnd lagt til að fjórir fyrrverandi ráðherrar yrðu ákærðir, en ekki þrír eins og rann- sóknarnefndin lagði til, og hins vegar hafi Geir einn verið ákærður. „Það hefði verið sterkara að tengja málið við skýrsluna og líta á Landsdóm sem ákveðinn dóms- úrskurð um gildi rannsóknar- nefndarinnar,“ segir hann. Spurður hvort Landsdómur hafi fest sig í sessi með málinu segir Guðmundur það vera óljóst. „Ég held ekki að nokkur maður geti talið það góða hugmynd að Alþingi sé að ákæra menn í nokk- urs konar pólitískum kappleik.“ thorgils@frettabladid.is Þörf á endurskoðun Róbert Spanó lagaprófessor segir ástæðu til þess að endurskoða fyrirkomulag málshöfðunar til Landsdóms. Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur segir að betur hefði farið á því að tengja málið skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. LANDSDÓMUR Fræðimennirnir Róbert Spanó og Guðmundur Hálfdanarson segja aðkomu Alþingis að ákæru ráðherra fyrir Landsdómi og þær pólitísku deilur sem það bjóði upp á ekki til þess fallnar að auka traust á Landsdómsferlinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Ég taldi alltaf að þessi liður væri sá skýrasti og jafnframt alvar- legasti liður ákærunnar. Stjórnarskránni var einfaldlega ekki fylgt og afleiðingin var sú að mikilvægum upplýsingum var haldið frá ríkisstjórninni sem ógnaði efnahagnum, stjórnskipuninni og lýðræðinu í landinu. Undir það tel ég að Landsdómur sé að taka,“ segir Eygló Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokksins, um þann ákærulið sem Geir var sakfelldur fyrir. Hún minnir á að það fyrsta sem þingmenn geri þegar þeir taka sæti á Alþingi sé að sverja eið að stjórnarskránni. Það sýni að hún sé undirstaða stjórnskipunar landsins. Eygló segir það hve Geir gerði lítið úr stjórnarskrárbrotinu séu kannski skiljanleg viðbrögð í ljósi þess að dómur var nýfallinn. „En þetta er það sem við eigum að gera, við eigum að fara að stjórnarskránni.“ - kóp Var sakfelldur fyrir alvarlegasta liðinn EYGLÓ HARÐARDÓTTIR „Það er mjög gott að komin sé niðurstaða í þetta erfiða mál. Hún kom mér aðeins á óvart, en ég hafði ekki séð ástæðu til þess að ákæra Geir. Hann er sýknaður í þremur af fjórum atriðum og það má kannski segja að það sem hann er sakfelldur fyrir sé það sem kom fram í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis. Þar var verulegur áfellisdómur á stjórnsýsluna og skort á formfestu,“ segir Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra. Hún segir ríkisstjórnina þegar hafa brugðist við þeirri gagnrýni að miklu leyti. Skipaðar hafi verið ráðherranefndir um veigamikil mál og fundargerðir þeirra fari fyrir ríkisstjórnarfundi. Þá sé í lögum um stjórnarráðið að öll mikilvæg stjórnarverkefni eigi að ræðast í ríkisstjórn. Jóhanna vill að stjórn og stjórnarandstaða setjist yfir lög um Landsdóm og breyti þeim. Ekki sé eðlilegt að þingmenn séu settir í hlutverk ákæruvalds. - kóp Höfum þegar brugðist við gagnrýninni JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR „Geir Haarde hlýtur að líta á það sem mikinn sigur fyrir sig að vera sýknaður af öllum efnislegum sakargiftum. Honum var gefið að sök að hafa ekki gripið til aðgerða sem gátu komið í veg fyrir efnahagshrunið. Landsdómur komst að annarri niðurstöðu með algjörri sýknu um þau ákæruatriði,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Hann segir dóminn einnig sýna að sú ríkisstjórn sem sat við völd í hruninu hefði ekki getað komið í veg fyrir það. Hann er hins vegar ósammála túlkun Geirs um að niðurstaða Landsdóms sé pólitísk í eðli sínu. „Ég hef ekki trú á því.“ - kóp Mikill sigur fyrir Geir H. Haarde ÖSSUR SKARP- HÉÐINSSON Við ættum að íhuga hvort við viljum hafa sambærilegt kerfi til framtíðar. RÓBERT SPANÓ FORSETI LAGADEILDAR HÍ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.