Fréttablaðið - 24.04.2012, Page 26

Fréttablaðið - 24.04.2012, Page 26
KYNNING − AUGLÝSINGGrænir bílar ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 20124 MERCEDESBENZ S 250 CDI BLUEEFFICIENCY VERÐLAUNAÐUR Mercedes-Benz S 250 CDI Blue-EFFICIENCY var útnefndur Grænn bíll ársins 2012 á alþjóðlegu bílasýningunni í New York á dögunum. Mercedes-Benz S 250 CDI Blue-EFFICIENCY þótti bera af í flokki á þriðja tug bifreiða hvaðanæva úr heiminum sem kepptu um titilinn. Þetta er í annað sinn sem bifreið frá Mercedes-Benz hlýtur þennan eftir- sótta titil. Þannig bar Mercedes-Benz E 320 BlueTEC sigur úr býtum árið 2007. Að þessu sinni hreifst dómnefndin meðal annars af lítilli bensíneyðslu og útblæstri vélar í Mercedes-Benz S 250 CDI Blue-EFFICIENCY. Eyðslan er 5,7 lítrar á hverja 100 kílómetra. Útblástur nituroxíðs er 0,149 g/km. Auk þess þykir bifreiðin glæsileg á að líta. GT Group ehf. á Selfossi hefur undirritað samning við Foton Motors í Kína um sölu á rafbílum til Íslands. FLYTJA KÍNVERSKA RAFBÍLA TIL LANDSINS GT Group ehf. á Selfossi hefur undirritað samning við Foton Motors í Kína um sölu á rafbílum til Íslands og hugsanlega til ríkja innan Evrópusambandsins. Að sögn Benedikts G. Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra GT Group ehf., stendur til að flytja inn fjölskyldubíla og minni sendibíla. Fyrir rekur GT Group ehf. fjölda hópferðabíla og bílasmiðju og er umboðsaðili fyrir Yutong fólks- flutningabíla sem er einn stærsti framleiðandi fólksflutningabíla á heimsvísu. Foton Motors er umsvifamikill bílaframleiðandi með höfuð- stöðvar í Peking. Fyrirtækið fram- leiðir árlega milli sjö til átta þúsund bíla. Frá þessu er greint í Sunnlenska fréttablaðinu og á vef fib.is. HVAÐ ÞARF MÖRG TRÉ TIL AÐ KOLEFNISJAFNA BIF REIÐ SEM GENGUR FYRIR JARÐEFNAELDSNEYTI? Bílar losa frá sér mismikið koltvíoxíð við brennslu jarðefna- eldsneytis. Það er svo verkefni gróðurs jarðar að umbreyta því í súrefni með ljóstillífun og við- halda þannig lífinu á jörðinni. Kolefnisjöfnun er hugtak sem ruddi sér til rúms hér á landi fyrir nokkrum árum og kepptust ýmis fyrirtæki við að bjóða kolefnis- jöfnun bifreiða sem þýddi að við kaup á bifreið myndi ákveðinn fjölda trjáa vera gróðursettur til að vega upp á móti útblæstri hennar. Á vef orkuseturs; orkusetur.is má finna reiknivél sem reiknar út hversu mörgum trjám þarf að planta til að kolefnisjafna bifreið eftir tegund og stærð. Til að kolefnisjafna Skoda Octavia, mest selda bíl landsins árið 2011, þarf að planta á bilinu 1300 til 2000 trjám, allt eftir því hvaða vélarstærð eða gerð Octavia er valin. Heimild: www.orkusetur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.