Fréttablaðið - 24.04.2012, Blaðsíða 46
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR38
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Lagið Benny and the Jets með
Elton John er mikið spilað í
vinnunni þessa dagana.“
Agnes Björt Andradóttir, söngkona í
hljómsveitinni Sykri.
„Þetta er allt saman á byrjunarreit en það er
gaman að vinna með Páli,“ segir Pálmi Ragn-
ar Ásgeirsson, einn þriggja meðlima upptöku-
teymisins StopWaitGo sem hefur í nógu að
snúast þessa dagana.
Þeir Pálmi, bróðir hans Ásgeir Orri og Sæþór
Kristjánsson hafa hafið samstarf við Pál Óskar
og ætla að útsetja lög fyrir væntanlega plötu
söngvarans ástæla. Þetta er í fyrsta sinn sem
Páll Óskar og StopWaitGo leiða saman hesta
sína. „Hann er skemmtilegur maður og það er
gaman að fá tækifæri til að vinna með honum.
Hann er greinilega fagmaður fram í fingur-
góma og veit að það þarf mikið til svo úr verður
„hittari“,“ segir Pálmi en þessa dagana er upp-
tökuteymið að vinna að dúett Páls Óskars og
Friðriks Dórs. „Lagið verður á nýju plötunni
hans Frikka Dórs sem er væntanleg í sumar.“
Strákarnir eru einnig að sækja um atvinnu-
leyfi í Bandaríkjunum en þeir eru á mála hjá
umboðsskrifstofu í Los Angeles. Það er umboðs-
maðurinn Darryl E. Farmer sem er umboðsmað-
ur StopWaitGo vestanhafs og hann er duglegur
að senda þeim verkefni yfir Atlantshafið.
„Þetta er allt í ferli en það er engin smá
pappírsvinna að sækja um þetta. Ég er
bjartsýnn á að við fáum allir leyfi og
getum þá undirbúið flutninga í ágúst,“
segir Pálmi og grínast með að það sé
helst góða veðrið í borg englanna
sem heillar. „Það er svo leiðinlegt
veður hér. Nei, nei, við viljum
bara komast nær viðskipta-
vinum okkar og hætta að funda
eða taka símtöl á nóttunni
vegna tímamismunarins.“ - áp
StopWaitGo vinnur með Páli Óskari
NÝTT SAMSTARF Þeir Pálmi, Ásgeir Orri
og Sæþór í upptökuteyminu Stop-
WaitGo vinna í fyrsta sinn með Páli
Óskari og bera honum vel söguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gói
Baunagrasið
og
Leikhúsglaðningur fyrir
alla fjölskylduna!
Fréttatíminn Morgunblaðið
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
Á LEIKÁRINU
„Þetta var ólýsanleg tilfinning. Við
áttum alls ekki von á því að atriði
á við okkar væri sigurstranglegt
í svona keppni,“ sagði Agnar Óla-
son, formaður og einn af 41 með-
limi Karlakórs Sjómannaskólans,
sem sigraði Söngkeppni fram-
haldsskólanna síðastliðið laugar-
dagskvöld.
Kórinn var stofnaður upp úr
áramótum og því bara búinn að
starfa í þrjá mánuði. „Við komumst
í fréttirnar á dögunum fyrir að
kunna bara tvö lög en það er ekki
alveg rétt, við höfum sungið fleiri
lög opinberlega,“ segir Agnar. Þeir
sungu lagið Stolt siglir fleyið mitt í
keppninni á laugardaginn og voru
allir með sólgleraugu á sviðinu í
Vodafone-höllinni. „Það voru bara
stórmennskustælar. Frægðar-
sólin var alveg að baka okkur,“
segir Agnar og hlær. Að sögn hans
stóð Saga Film einstaklega vel að
keppninni sem fór mjög bróður-
lega fram. „Það var verulega góð
stemning baksviðs. Harmóníku-
bræðurnir spiluðu þarna aðeins
með fiðlustelpunum úr FSU og
allir skemmtu sér reglulega vel.“
Nafn kórsins hefur vakið smá
ringulreið en þeir kalla sig Karla-
kór Sjómannaskólans. „Kórmeð-
limir eru félagar úr nemendafélagi
Stýrimannaskólans í Reykjavík og
skólafélags Vélskóla Íslands. Báðir
þessir skólar eru komnir undir
hatt Tækniskólans í dag, en húsið
þar sem við nemum heitir enn Sjó-
mannaskóli Íslands og við kennum
okkur við það,“ segir Agnar að
lokum, sáttur við sitt. - trs
Kórinn átti ekki von á sigri
ALVÖRUKÓR Í Karlakór Sjómannaskólans er 41 söngvari og er kórnum stjórnað af
kórstjóranum Þórhalli Barðasyni.
„Mig hefði aldrei grunað að sjálf
Kylie Minogue myndi syngja lag
eftir Múm,“ segir Gunnar Tynes,
einn liðsmanna hljómsveitarinnar
Múm.
Múm sér um tónlistina í banda-
rísku kvikmyndinni Jack and
Diane, en Minogue fer með eitt
aðalhlutverkanna í myndinni. Leik-
stjórinn Bradley Rust Grey leitaði
til hljómsveitarinnar, en hann
og Gunnar eru kunningjar. „Það
hefur lengi staðið til að vinna með
Bradley, en við kynntumst þegar
hann var búsettur hér á landi fyrir
tíu árum,“ segir Gunnar, en hljóm-
sveitin tók ár í að vinna tónlistina
fyrir myndina.
Þegar það kom í ljós að ástralska
leik- og söngkonan Minogue færi
með eitt hlutverkanna kom upp sú
hugmynd að láta hana syngja lag í
myndinni og úr varð að Múm samdi
lag sérstaklega fyrir hana. Gunnar
flaug svo til London í haust þar sem
hann hitti Minogue og saman tóku
þau upp lagið. „Þetta er ekki hið
týpíska popplag sem við hefðum
kannski samið fyrir Minogue,
heldur er lagið samið með mynd-
ina í huga,“ segir Gunnar og viður-
kennir að hann er aðdáandi söng-
konunnar. „Sérstaklega eftir að ég
hitti hana. Hún fær toppeinkunn
sem manneskja. Hún er algjör
töffari og mjög manneskjuleg.“
Jack and Diane var frumsýnd
á nýafstaðinni Tribeca-kvik-
myndahátíð og fékk ágætisdóma.
Myndin fjallar um tvær unglings-
stúlkur sem verða ástfangnar
en málin flækjast töluvert þegar
önnur þeirra heldur að hún sé að
breytast í varúlf. „Þetta er mjög
spes mynd. Okkur var kynnt
myndin sem varúlfa-lesbíumynd
en svo er þetta bara mjög krútt-
leg unglingamynd,“ segir Gunnar
sem er búinn að sjá myndina og
líst vel á afraksturinn. Leikkonan
Riley Keough fer einnig með hlut-
verk í myndinni, en hún er barna-
barn Elvis Presley og fósturdóttir
Michaels Jackson.
Gunnar segir að Múm sé iðin við
kolann og getur vel hugsað sér að
fást frekar við kvikmyndatónlist.
„Þetta virðist höfða vel til okkar,
en við erum reglulega á tónleika-
ferðalögum og erum með nýja plötu
í bígerð sem kemur líklega ekki út
fyrr en í byrjun næsta árs.“
alfrun@frettabladid.is
GUNNAR TYNES: HÚN ER MJÖG MANNESKJULEG OG ALGJÖR TÖFFARI
Kylie Minogue syngur lag
hljómsveitarinnar Múm
GAMAN AÐ VINNA MEÐ MINOGUE
Gunnar Tynes og félagar hans í sveitinni Múm sjá um tónlistina í myndinni Jack and Diane en
ástralska söng-og leikkonan Kylie Minogue fer með hlutverk og syngur lag eftir Múm í myndinni.