Fréttablaðið - 24.04.2012, Side 20
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
WAYNE ROONEY, leikmaður Manchester United, er 27 ára í dag.
„Eitt sinn Everton-maður, ávallt Everton-maður.“
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR HERMANNSSON
Dalbraut 27, Reykjavík,
lést á heimili sínu hinn 21. apríl.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jón Þ. Guðmundsson
Dóra Guðmundsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
MATTHÍASAR GUÐMUNDSSONAR.
Ingunn Egilsdóttir
Sigríður Matthíasdóttir Guðmundur Kristinsson
Helga Matthíasdóttir Valmundur Gíslason
Erna Matthíasdóttir Víðir Bergmann Birgisson
Egill Matthíasson Linda Lek Thieojanthuk
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGURGEIRS SIGURPÁLSSONAR
framkvæmdastjóra,
Mýrarvegi 111, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarhlíðar
og Musterisriddara í Öskju.
Eva Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Sigurgeirsson Anna Gréta Halldórsdóttir
Páll Sigurgeirsson Aðalbjörg María Ólafsdóttir
Hanna Indíana Sigurgeirsdóttir Ragnar Daníelsson
Svanhildur Sigurgeirsdóttir
Halla Sólveig Sigurgeirsdóttir Valur Knútsson
Sigurgeir Heiðar Sigurgeirsson Ásgerður Hrönn Hafstein
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát
og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
VALDÍSAR MAGNÚSDÓTTUR
frá Hellissandi.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks
Landspítalans við Hringbraut fyrir frábæra
umönnun.
Sigurður Kristjónsson
Kristín Magnea Sigurðardóttir Svanbjörn Stefánsson
Sigurður Valdimar Sigurðsson Kristín Björk Marísdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
SAMÚEL S. JÓNASSON
lést þann 10. apríl sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey. Starfsfólki Dvalar- og
hjúkrunarheimilisin Grundar er sérstaklega
þakkað fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Ólafsdóttir Gunnar Oddsson
Viktor Daði Bóasson Guðrún Ingibjörg Þorsteinsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
VALGERÐAR THEODÓRSDÓTTUR
Einarsnesi 78, Reykjavík.
Kristján Jóhann Jónsson
Þóra Vignisdóttir Ragnar Þorsteinsson
Heiða Theodóra Kristjánsdóttir Ásgeir Sigtryggsson
Ingibjörg Rannveig Kristjánsdóttir Júlíus Ármann Júlíusson
Theodór Kristjánsson Jarþrúður Þórarinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku eiginmaður minn, faðir og afi,
ÁSGEIR ÞÓR DAVÍÐSSON
lést 20. apríl. Útförin fer fram frá
Hallgrímskirkju 27. apríl kl. 13.00.
Jaroslava Davíðsson
Alexandra Katrín Ásgeirsdóttir
Helgi Bersi Ásgeirsson
Anna Sigrún Ásgeirsdóttir
Jón Kristinn Ásgeirsson
Jakobína Áslaug Ásgeirsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ELÍN ELÍSABET GUÐMUNDSDÓTTIR
húsfreyja frá Ófeigsfirði,
lést að Hrafnistu í Reykjavík, laugardaginn
21. apríl.
Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma, og langalangamma,
ÓLAFÍA KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR
Stína frá Firði,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Víðihlíð,
miðvikudaginn 18. apríl.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju,
föstudaginn 27. apríl kl. 14.00.
Jens V. Óskarsson Bára Ágústsdóttir
Einar Óskarsson Ása Sigurlaug Halldórsdóttir
Þorsteinn Óskarsson Hrönn Ágústsdóttir
Þórður J. Óskarsson Guðrún Aðalsteinsdóttir
Bergljót Ó. Óskarsdóttir Sveinn Arason
Brynjólfur Óskarsson Lýdia Fannberg Gunnarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN MATTHÍASDÓTTIR
Lækjasmára 4, Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi,
föstudaginn 20. apríl sl. Jarðarför verður
auglýst síðar.
Bernótus Kristjánsson
Ingunn Bernótusdóttir Guðmundur Viðarsson
Kristján Þór Bernótusson Svava María Martinsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR GUÐMUNDSSON
múrari,
Stóragerði 28,
lést á Landspítala Hringbraut föstudaginn
20. apríl. Jarðsungið verður frá Grensás-
kirkju föstudaginn 27. apríl kl. 13.00.
Ingibjörg Pétursdóttir
Guðbjörg Gunnarsdóttir Pétur Ingi Guðmundsson
Kristín Sigríður Gunnarsdóttir Sigþór Þórarinsson
Ástrós Gunnarsdóttir Þorfinnur Ómarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær bróðir okkar,
BALDUR G. SVEINBJÖRNSSON
Túngötu 11, Seyðisfirði,
lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar 6. apríl sl.
Útför hans var gerð frá Seyðisfjarðarkirkju
16. apríl í kyrrþey að ósk hins látna.
Systkini Baldurs og aðrir aðstandendur.
„Það stendur heldur betur mikið til
því á afmælisdaginn ætla ég að vera í
Bandaríkjunum að heimsækja dóttur
mína og tengdason. Tengdasonur minn
stundar nám í háskólabænum Gaines-
ville og við ætlum út að borða á frábær-
an brasilískan veitingastað, Texas De
Brazil á International Drive í Orlando,
sem er skammt frá. Þegar ég varð
fimmtugur fórum við hjónin til Flórída
með alla fjölskylduna og þegar konan
mín, Guðrún Ingveldur Traustadóttir,
varð fimmtug fyrir átta árum skelltum
við okkur í siglingu um Karíbahafið og
nú förum við aftur til Bandaríkjanna.
Svo gerum við eitthvað skemmtilegt
þegar konan mín verður sextug eftir
tvö ár,“ segir Geir Jón Þórisson, sem
brátt lætur formlega af starfi yfirlög-
regluþjóns í Reykjavík, en hann fagnar
sextugsafmæli sínu í dag. „Það vill svo
til að þegar ég varð fimmtugur komu
Falun Gong-liðar til Íslands og svo
koma þeir aftur núna í kringum sex-
tugsafmælið,“ bætir hann við.
Geir Jón og Guðrún Ingveldur fluttu
nýlega til Vestmannaeyja og segir Geir
Jón sextugsafmælið leggjast afar vel
í sig. „Núna eiga sér stað þriðju stóru
kaflaskiptin í lífi mínu. Þau fyrstu voru
þegar ég flutti fyrst hingað til Vest-
mannaeyja árið 1974, svo fór ég héðan
1992 og núna árið 2012 kem ég aftur. Á
öllum þessum tímabilum hef ég verið
að koma mér upp nýju heimili og byrja
upp á nýtt. Það er spennandi að lifa
svona kaflaskiptu lífi og gefur þessu
öllu saman gildi,“ segir Geir Jón, sem
festi nýlega kaup á eldra húsi í Eyjum
og vinnur nú að því að koma sér fyrir,
meðal annars með því að laga þakið,
byggja bílskúr og hanna nokkur gesta-
herbergi. „Það verður að vera pláss
fyrir vini og vandamenn sem vilja koma
í dýrðina,“ segir Geir Jón og skellir upp
úr.
Hann hættir formlega sem yfir-
lögregluþjónn í júní næstkomandi en
vinnur nú að skýrslu um Búsáhalda-
byltinguna fyrir lögregluembættið í
Reykjavík og segir gott að starfa við
slíkt í kyrrðinni og rónni í Eyjum. Geir
Jón gerir ekki ráð fyrir að mæta á næstu
Þjóðhátíð í Eyjum. „Ég kláraði eiginlega
Þjóðhátíð með því að vinna við hana
átján sinnum. Auk þess fer ég alltaf á
fjölskylduhátíð kristinna manna í Fljóts-
hlíð um verslunarmannahelgina,“ segir
hann. Spurður hvort misindismenn geti
þá varpað öndinni léttar segir Geir Jón:
„Þótt ég væri á svæðinu myndi ég ekki
gera neitt heldur vera bara venjulegur
borgari. Ég ætla ekki að vera lögga eftir
að ég er hættur að vera lögga. Það getur
verið að einhverjir ætlist til þess að ég
verði lögga til lífstíðar en ég hef ekki
slíkt í hyggju. Ungt og gott fólk hefur
tekið við svo þetta er allt í himnalagi.“
kjartan@frettabladid.is
GEIR JÓN ÞÓRISSON: ER SEXTUGUR Í DAG
Verð ekki lögga að eilífu
MIKIÐ STENDUR TIL Geir Jón
Þórisson er staddur í Flórída á
afmælisdaginn, rétt eins og þegar
hann varð fimmtugur fyrir áratug.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG