Fréttablaðið - 10.07.2012, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 10. júlí 2012 15
Um mörg undanfarin ár hafa hérlendis verið á markaði
SagaPro, s.k. fæðubótartöflur,
sem sagðar eru innihalda 100
mg af jurtaefni úr völdu laufi
ætihvannar. Á heimasíðu fram-
leiðanda (www.sagamedica.is) er
staðhæft að varan komi að gagni
við tíðum þvaglátum. Einnig hafa
birzt auglýsingar sama efnis
í dagblöðum, sem einna helzt
minna á staðhæfingar um lækn-
ingamátt snákaolíu í USA um
aldamótin 1900. Töflurnar eru
dýrar en lyfjatæknilega lélegar
– sumar þeirra molna við það eitt
að vera þrýst úr þynnupakkning-
unum.
Í hittiðfyrra auglýsti fram-
leiðandinn eftir sjálfboðaliðum
til þátttöku í klínískri rannsókn
á virkni SagaPro og niðurstöð-
urnar hafa nýlega verið birtar.
Samkvæmt þeim var enginn töl-
fræðilega marktækur munur
á áhrifum SagaPro og lyfleysu
(placebo). Meginniðurstaðan
var að SagaPro hefði ekki skað-
leg áhrif. Um þetta verður ekk-
ert fullyrt hér – aðeins skal bent
á að Practical Guide to Natural
Medicines (APhA, 1999, bls. 37)
nefnir að fúrókúmarínarnir í æti-
hvönn geti orsakað krabbamein
og/eða hættulegar frumubreyt-
ingar í tilraunadýrum.
Mér er ljóst að umræða af þessu
tagi er ekki vinsæl af framleið-
endum svonefndra náttúrumeð-
ala. Nærtækt dæmi er svokölluð
kvöldvorrósarolía, sem á sínum
tíma átti að vera allra meina bót
en svo reyndist auðvitað ekki
vera frekar en risaskammtar af
C-vítamíni áttu að vera vörn gegn
krabbameini í blöðruhálskirtli.
Aðalforsvarsmaður þeirrar kenn-
ingar (Linus Pauling, nóbelsverð-
launahafi fyrir annað) dó samt
einmitt úr þeim sjúkdómi.
Ráðlegging mín til þeirra sem
þjást af tíðum þvaglátum er
þessi: Leitið læknis til að ganga
úr skugga um hvað veldur. Ef
um góðkynja stækkun blöðru-
hálskirtilsins er að ræða er völ
á mörgum lyfjum, sem eru með
vísindalega sannaða virkni. Að
mínum dómi er SagaPro ekkert
annað en fáránleg della.
Nú er spáð heldur meiri hag-vexti á yfirstandandi ári en í
fyrri spám. Sker Ísland sig nokkuð
úr í þessum efnum þar sem horfur
hafa farið jafnt og þétt batnandi hér
og spár um hagvöxt fara hækkandi.
Öðru er því miður fyrir að fara
víða. Í ár er reiknað með 2,8% hag-
vexti samkvæmt nýrri þjóðhagsspá
Hagstofunnar. Á árinu 2013 verður
hagvöxtur 2,7% samkvæmt spánni.
Einkaneysla og fjárfesting knýja
vöxtinn áfram. Spá Hagstofunnar
staðfestir enn þann viðsnúning sem
orðinn er í hagkerfinu líkt og hinir
ýmsu hagvísar hafa gefið til kynna
að undanförnu.
Eins og áður gerir Hagstofan í
sinni þjóðhagsspá fyrst og fremst
ráð fyrir fjárfestingarverkefnum
sem þegar hafa verið ákveðin eða
teljast mjög líkleg. Fréttir síðustu
vikna bera hins vegar með sér að
ýmis fleiri verkefni eru á teikni-
borðinu og gætu orðið að veruleika
á næstu árum. Ef af þeim verður
munu þau leiða til hærra fjárfest-
ingarstigs og meiri hagvaxtar. Það
gæti því reynst mikilvægt að viðbót-
arverkefni raðist skynsamlega upp
og dreifist yfir tíma svo ekki skapist
hætta á þensluástandi á allra næstu
árum.
Þrjár tegundir fjárfestingar
Tæpast verður lengur deilt um efna-
hagsbatann, jafn augljós og hann
er orðinn á mörgum sviðum. Eftir
sem áður heyrist oft að fjárfesting-
arstigið sé of lágt og atvinnuvega-
fjárfestingin í sögulegu lágmarki.
En er atvinnuvegafjárfesting í raun
eins lág og margir vilja vera láta?
Til að átta sig á þessu er rétt að
skipta fjárfestingu upp í þrennt líkt
og Hagstofan gerir:
(I) Atvinnuvegafjárfesting
(II) Íbúðarfjárfesting
(III) Fjárfesting hins opinbera
Eins og við var að búast minnk-
aði íbúðafjárfesting hratt eftir
hrunið. Það var dæmt til að gerast
þar sem bóla hafði myndast eftir
óeðlilega miklar byggingar mörg
ár í röð. Íbúðafjárfesting er enn lág
og undir meðaltali síðustu ára og
verður væntanlega nokkurn tíma
að komast aftur á jafnvægisstig
þó svo hún sé farin að aukast á ný.
Fjárfesting hins opinbera minnkaði
einnig mikið eftir hrunið enda gaf
staða ríkissjóðs enga möguleika á
öðru. Það var því skynsamleg ráð-
stöfun að draga úr fjárfestingu hins
opinbera strax eftir hrun. Hallinn
á rekstri ríkisins og sveitarfélaga
hefur minnkað og staðan batnað.
Fjárfesting hins opinbera er þó enn
undir meðaltali og verður væntan-
lega svo uns hin opinberu fjármál
eru orðin fyllilega sjálfbær á ný.
Fjárfesting atvinnuveganna eykst
hratt
Atvinnuvegafjárfestingin er mikil-
væg fyrir undirliggjandi verðmæta-
sköpun í landinu. Þegar skoðað er
meðaltal atvinnuvegafjárfestingar
frá árinu 1990 sést að það var að
meðaltali 12,2% af landsframleiðslu
frá árinu 1990 til og með ársins
2012. Samkvæmt áætlun Hagstof-
unnar verður atvinnuvegafjárfest-
ing tæplega 11% af landsframleiðslu
árið 2012. Sem sagt, atvinnuvega-
fjárfestingin hefur hressilega
tekið við sér og er nú þegar komin
nærri meðaltalinu frá 1990 og yfir
því sem hún var á tímabilinu 1990-
1995 þegar langvinn stöðnun ríkti í
efnahagslífinu. Þá var atvinnuvega-
fjárfesting einnig minni en nú árið
2002. Það stefnir því í að atvinnu-
vegafjárfestingin, sem jafnframt er
einn mikilvægasti drifkraftur efna-
hagsþróunarinnar, verði komin yfir
meðaltal síðustu tveggja áratuga
strax á öðru til þriðja ári uppsveifl-
unnar. Það er gott veganesti inn í
framtíðina.
Ráðlegging mín til þeirra sem þjást af
tíðum þvaglátum er þessi: Leitið læknis
til að ganga úr skugga um hvað veldur.
Atvinnuvegafjárfesting tekur vel við sér
Efnahagsmál
Steingrímur J.
Sigfússon
efnahags- og
viðskiptaráðherra
meðaltal
25%
20%
15%
10%
5%
19
90
19
91
19
92
19
93
19
94
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
H
ei
m
ild
: H
ag
st
of
a
Ís
la
nd
s
Atvinnuvegafjárfesting, % af VFL
Blå Band bollasúpurnar eru handhæg og bragðgóð næring sem gott er að grípa til. Þær innihalda ekkert MSG,
engar transfitur og aðeins náttúruleg bragð- og litarefni. Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus.
SagaPro – Náttúru-
meðal eða della
Náttúrulyf
Reynir
Eyjólfsson
lyfjafræðingur