Fréttablaðið - 10.07.2012, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGMyndavélar & ljósmyndavörur ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 20124
Varðveisla stafrænna ljós-mynda er mörgum hugleikin enda hafa flestir landsmenn
skipt úr filmuvél yfir í stafræna
myndavél undanfarin ár. Flest-
ir taka margfalt f leiri ljósmyndir
en áður og því er nauðsynlegt að
skipuleggja vel varðveislu slíkra
ljósmynda. Gunnar Marel Hinriks-
son, skjalavörður hjá Héraðsskjala-
safni Kópavogs, birti nýlega grein
á vef Félags héraðsskjalavarða á Ís-
landi þar sem hann rekur helstu
þætti sem þarf að hafa í huga við
varðveislu stafrænna mynda. Hann
segir að huga þurfi að ýmsu þegar
ljósmyndir eru teknar og þegar
ákvörðun er tekin um geymslu
þeirra.
„Fæstar myndir sem við tökum
enda í ramma uppi á vegg. Það er
mikilvægt að velja reglulega úr
myndum, sérstaklega ef teknar eru
margar nánast eins myndir. Það
skiptir líka miklu máli að fólk sé
ekki að fylla hörðu diskana sína af
allt of mörgum og um leið stórum
myndum.“ Hann bendir á að góð
regla sé að grisja sem fyrst og sem
reglulegast úr myndaflórunni og
venja sig á að gera það helst strax á
vélinni að myndatöku lokinni. Að
sama skapi verður að hafa notkun
myndarinnar í huga þegar ákveðið
er að geyma mynd. Myndir ætlaðar
til útprentunar þurfa að vera stærri
en til dæmis myndir sem eru ein-
göngu ætlaðar fyrir notkun á net-
inu.
Stafræna byltingin hefur eðlilega
haft þær afleiðingar að miklu fleiri
myndir eru teknar en áður. Gunnar
mælir því með því að fólk láti fram-
kalla bestu myndirnar enda sé það
að hans mati öruggasta leiðin til að
komast hjá úreldingu gagna. „Það
er auk þess mun skemmtilegri at-
höfn að f letta í gegnum mynda-
albúm og skoða myndir frekar en
að skoða þær í tölvu þar sem einn
í hópnum stýrir hraðanum með
músinni.“ Þótt margir kjósi að
framkalla bestu myndirnar eiga
flestir mikið magn mynda á staf-
rænu formi heima hjá sér. Þá skipt-
ir miklu máli að mati Gunnars að
geyma myndirnar á tveimur stöð-
um, jafnvel með mismunandi að-
ferðum. „Algengustu mistökin sem
fólk gerir er að eiga bara eitt eintak
af myndunum. Ég hef heyrt marg-
ar hryllingssögur um flakkara sem
duttu á gólfið og þar með hurfu
allar minningarnar á einu bretti.
Það er allt í lagi að missa mynda-
albúmið í gólfið en lausir flakkar-
ar geta verið í hættu ef rekist er í
snúru.“
Framköllun er nauðsynleg
Tilkoma stafrænna ljósmyndavéla hefur aukið gríðarlega magn ljósmynda í
einkaeigu. Gott ráð er að koma upp ákveðnu verkferli við varðveislu þeirra.
„Algengustu mistökin sem fólk gerir er að eiga bara eitt eintak af myndunum,“ segir
Gunnar Marel Hinriksson, skjalavörður hjá Héraðsskjalasafni Kópavogs. MYND/PJETUR
FILMUVÉLIN LIFIR ENN
Gleymist seint Í kringum alda-
mótin varð sprenging í stafrænum
myndavélum. Í dag eru þær
framleiddar í öllum stærðum og
gerðum og gæðin hafa einnig
orðið meiri og meiri. Á seinustu
árum hafa þó filmuvélarnar
komist aftur í tísku. Sala á Holgu-
og Polaroid-myndavélum hefur
aukist mikið á seinustu þremur
árum. Einnota myndavélar hafa
einnig notið meiri vinsælda. Ástæðan er líklegast sú að myndirnar koma
skemmtilega út og eigandinn er knúinn til þess að framkalla myndirnar í
stað þess að geyma þær í tölvunni.
Okkar hlutverk
er að dreifa
fjölpósti, blöðum, tímaritum, bréfum og vörum.
Póstdreifing - Suðurhraun 1 - 210 Garðabær - Sími 585 8300 - www.postdreifing.is
Heyrðu í okkur næst þegar þú þarft á öruggri
og hagstæðri dreifingarþjónustu að halda.