Fréttablaðið - 10.07.2012, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 10. júlí 2012 17
Ný útboð í auglýsingu hjá
Reykjavíkurborg:
• Úlfarsárdalur, aðkoma að íþróttasvæði Fram.
Gata og bílastæði, útboð nr. 12771.
• Fylkir – Alútboð – Skyggni yfir áhorfendapalla,
alútboð nr. 12866.
• Göngu- og hjólastígar 2012, Reykjavegur að Ell-
iðaám, útboð nr. 12878.
• Salt til hálkueyðingar í Reykjavík 2012-2013 EES
útboð nr. 12887.
Allar nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod.
MUNDU AÐ EFNI
SEM ÞÚ SETUR Á
NETIÐ ER ÖLLUM
OPIÐ, ALLTAF!
www.saft.is
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
Með vísan til 1. mgr. 36. gr. sbr. 31. gr. laga
nr. 123/2010 , er hér með auglýst til kynningar
tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur
2001 – 2024, ásamt umhverfisskýrslu sbr. lög nr.
105/2006.
Holtsgöng. Stofnbraut felld út.
Aukið byggingarmagn á lóð
Landspítala við Hringbraut.
Breytingartillagan er þríþætt. Í fyrsta lagi að fella út
áform um stofnbraut (Holtsgöng) sem ætlað var að
tengja Sæbraut við Hringbraut. Í öðru lagi að auka
byggingarmagn á svæði Landspítala-háskólasjúkrahúss
við Hringbraut, til samræmis við tillögu að deiliskipulagi.
Í þriðja lagi að breyta lítillega legu stofn- og tengistíga
á svæðinu milli gömlu og nýju Hringbrautar. Nánar um
tillögu vísast til kynningargagna.
Aðalskipulagsbreytingin, ásamt umhverfisskýrslu,
er kynnt samhliða sambærilegum breytingum
á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, nýju
deiliskipulagi fyrir uppbyggingarsvæðið við Hringbraut
og breytingu á deiliskipulagi Hringbrautar.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu liggur frammi í
þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14,
1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 10. júlí 2012 til
og með 4. september 2012. Einnig má sjá tillöguna á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Tillagan ásamt
umhverfisskýrslu er einnig til sýnis á Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166, 3. hæð.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og
athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega
til Skipulags- og byggingarsviðs, Borgartúni
12-14 eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi
síðar en 4. september 2012. Vinsamlegast notið
uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir
með tölvupósti.
Reykjavík, 10. júlí 2012
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024
Með vísan til 27. gr. sbr. 24. gr. laga nr. 123/2010, er hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 – 2024, ásamt umhverfisskýrslu sbr.
lög nr. 105/2006.
Holtsgöng. Stofnbraut felld út.
Aukið byggingarmagn á byggðasvæði nr. 5, vegna uppbyggingar á lóð Landspítala við Hringbraut.
Breytingin er tvíþætt. Annars vegar að fella út áform um stofnbraut (Holtsgöng) innan Reykjavíkur, sem
ætlað var að tengja Sæbraut við Hringbraut og hinsvegar að breyta byggingarmagni á byggðasvæði nr.5,
sbr. tafla 3.2. í greinargerð svæðisskipulagsins. Nánar um tillögu vísast til kynningargagna.
Svæðisskipulagstillagan, ásamt umhverfisskýrslu, er kynnt samhliða sambærilegum breytingum á
aðalskipulagi Reykjavíkur, nýju deiliskipulagi fyrir uppbyggingarsvæðið við Hringbraut og breytingu á
deiliskipulagi Hringbrautar.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu liggur frammi á skrifstofum sveitarfélaganna sem eru aðilar að
svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins frá 10. júlí 2012 til og með 4. september 2012; Álftanesi,
Bjarnastöðum, Garðabæ, Garðatorgi 7, Hafnarfirði, Strandgötu 6, Kjósarhreppi, Ásgarði, Kópavogi,
Fannborg 2, Mosfellsbær, Þverholti 2, Reykjavíkurborg, þjónustuveri Borgartúni 12-14, Seltjarnarnes,
Austurströnd 2. Tillagan ásamt umhverfisskýrslu er einnig til sýnis á sama tímabili á Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166, 3. hæð. Einnig má sjá tillöguna, ásamt aðalskipulags- og deiliskipulagstillögum á heimasíðu
skipulags- og byggingarsviðs, www.skipbygg.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
Hamraborg 9, 200 Kópavogi eða á netfangið ssh@ssh.is, eigi síðar en 4. september 2012. Vinsamlegast
notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag og breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi
í Reykjavík ásamt umhverfisskýrslu sbr. lög nr.
105/2006.
Landspítali Háskólasjúkrahús við
Hringbraut
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landspítala
Háskólasjúkrahús við Hringbraut, NLSH. Tillagan tekur
til skipulags framtíðaruppbyggingar fyrir Landspítala,
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, á stækkaðri
lóð við Hringbraut. Samþjöppun þekkingar og vísinda-
stofnana verður á svæðinu, þar sem sameinuð verður
sú starfsemi sem fram að þessu hefur skipst upp milli
Fossvogs, Hringbrautar og víðar. Á skipulagssvæðinu
er ætlunin að byggja upp í nokkrum áföngum
starfsemi Landspítala. Nýbyggingar munu rúma m.a.
slysa- og bráðamóttöku, skurðstofur, gjörgæslu og
vöknun, myndgreiningu, rannsóknarstofur, legudeildir
og sjúkrahótel auk húsnæðis Heilbrigðisvísindasviðs
Háskólans.
Með staðfestingu nýs deiliskipulags sem hér er sett
fram fellur úr gildi deiliskipulag Landspítalalóðar frá 1976
með síðari breytingum. Einnig verður gerð breyting á
deiliskipulaginu „Færsla Hringbrautar“ frá 2006.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
er hér með auglýst tillaga að breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík.
Hringbraut
Tillaga breytingu á deiliskipulagi Hringbrautar. Í
breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags er aðlöguð
deiliskipulagsmörkum nýs Landspítala Háskóla-
sjúkrahúss. Felldur er úr gildi hluti deiliskipulags umhverfis
Hlíðarfót þar sem m.a. er fallið frá Holtsgöngum og verður
það svæðið innan marka deiliskipulags Landsspítala
Háskólasjúkrahúss. Ný undirgöng verða gerð undir
gömlu Hringbrautina vestan Snorrabrautar og breyting
gerð á stígum í samræmi við tillögu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar, ásamt umhverfiskýrslu, liggja frammi
í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni
12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 10.
júlí 2012 til og með 4. september 2012. Einnig má
sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum
og athugasemdum við tillögurnar skal skila
skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is,
til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 4.
september. Vinsamlegast notið uppgefið netfang
fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir
sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 10. júlí 2012
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði
Sólning óskar eftir að ráða röskan og samviskusaman
starfsmann á dekkjaverkstæði Sólningar á Smiðjuvegi.
• Reynsla af hjólbarðaviðgerðum æskileg
• Reynsla af viðgerðum er kostur
• Þarf að geta hafið störf fljótlega
Nánar upplýsingar veitir Örn Tryggvi Johnsen í síma
8984866. Umsóknir berist til Sólningar , Smiðjuvegi 70,
200 Kópavogi eða á tölvupóstfangið orn@solning.is