Fréttablaðið - 06.09.2012, Page 70
6. september 2012 FIMMTUDAGUR54 54
popp@frettabladid.is
Gríptu með þér Floridana. Morgunsafi, Heilsusafi, Appelsínusafi, Vítamínsafi
og Sumarsafi frá Floridana eru 100% hreinir ávaxtasafar framleiddir úr úrvals
hráefnum og innihalda engan viðbættan sykur. Fáðu þér Floridana og lifðu vel. LIFÐU VEL!
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Fyrirsætukeppni Elite á Íslandi
er að fara af stað á ný. Keppnin er
haldin í samstarfi við skrifstofu
Elite úti í heimi þar sem sigurveg-
ari íslensku keppninnar tekur þátt
í Elite Model Look World í Sjanghæ
í Kína í lok árs.
Útsendarar frá Elite á Íslandi
verða staddir í Smáralind á laug-
ardaginn milli klukkan 11-15. Þar
gefst stúlkum kostur á að taka þátt
í prufum fyrir keppnina og komast
á skrá hjá fyrirsætuskrifstofunni.
50 stúlkum er svo boðið að taka
þátt í undanúrslitakeppni sem fer
fram í höfuðstöðvum Elite á Íslandi
þann 15. september. Í tilkynningu
frá Elite segir að val dómnefnd-
ar sé byggt á hversu myndrænir
keppendur eru, náttúrulegri feg-
urð, persónuleika og einnig hversu
vel keppendur falla að því útliti
sem verið er að leita eftir í tísku-
og auglýsingaheiminum í dag.
15 stúlkur taka svo þátt í úrslita-
keppninni sjálfri.
Það var Magdalena Sara Leifs-
dóttir sem var Elite-stúlkan í fyrra
og henni gekk það vel úti í aðal-
keppninni í Kína að hún kom heim
með fyrirsætusamning við Elite
World. Margar þekktustu fyrir-
sætur í heimi eru á skrá hjá Elite
og ber þar hæst Gisele Bundchen,
Cindy Crawford og Stephanie Sey-
mor. Fyrir þá sem vilja fræðast
meira um keppnina er bent á síð-
una Elitemodellook.com/is.
Leit hafin að nýrri Elite-fyrirsætu
ELITE-STÚLKAN 2012 Magdalena Sara
Leifsdóttir vann Elite-keppnina í fyrra og
fór í kjölfarið til Kína í aðalkeppnina þar
sem hún landaði fyrirsætusamningi.
Nýjasta kvikmynd Terrence
Malick fékk vægast sagt slæm-
ar móttökur við frumsýningu
hennar á kvik-
myndahátíð-
inni í Feneyj-
um um síðustu
helgi. Með
aðalhlutverk í
myndinni fara
Ben Affleck,
Rachel Mc-
Adams, Olga
Kurylenko og
Javier Bardem.
Myndin segir frá manni sem
endurnýjar kynni sín við gamla
vinkonu eftir að hjónaband hans
og evrópskrar konu hans fer í
vaskinn. Áhorfendur á frum-
sýningu myndarinnar voru lítt
hrifnir af nýjasta verki leik-
stjórans og létu óánægju sína
í ljós með því að baula í lok
hennar. Athæfið vakti athygli
en einhverjir voru þó ósammála
aðferðinni.
„Að baula á Terrence Malick-
mynd. Það krefst sama hugrekk-
is og að sparka í Gandhi,“ skrif-
aði gagnrýnandinn Justin Chang
á Twitter-síðu sína. Annar sagði:
„Er ekki komið nóg af látum? Þið
eigið að kallast fagfólk.“
Ben Affleck sagði To the Won-
der líkjast Transformers í sam-
anburði við Tree of Life, síðustu
mynd Malicks.
Baulað
á sýningu
BEN AFFLECK
ÁR FYLLIR FRÆGASTA MÁGKONA Bretlands Pippa Middleton í dag en
hún er systir Katrínar hertogaynju af Cambrigde, eiginkonu Vilhjálms Bretaprins. Hún
er þekkt partýljón í Bretlandi og á eflaust eftir að fagna tímamótunum með stæl.
29
Rihanna hefur verið harðlega
gagnrýnd af PETA-samtökunum
fyrir að hafa klæðst stígvélum úr
snákaskinni. Rihanna sagði eitt
sinn í viðtali við Ellen DeGeneres
að hún hefði óbeit á loðfeldum.
„Rihanna veit kannski ekki að
snákar eru gjarnan negldir við
trjástofna og fláðir lifandi. Að
klæðast snákaskinni er ógeðfellt
og illgjarnt. Þær Lady Gaga virð-
ast vilja vera þekktar fyrir að
líta út eins og viðundur frekar en
hæfileika sína,“ stóð í yfirlýsingu
frá samtökunum.
Óvinsæll
skófatnaður
GAGNRÝND Rihanna var gagnrýnd af
PETA fyrir að klæðast skóm úr snáka-
skinni. NORDICPHOTOS/GETTY