Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2012, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 16.11.2012, Qupperneq 6
16. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR6 VEISTU SVARIÐ? Bílabúð Benna - Notaðir bílar Opið alla virka daga frá kl. 10-18 22.756 kr. Afborgun á mánuði aðeins: Chevrolet Aveo 1.390.000 kr. 22.876 kr. Heildarverð til þín: Afborgun: * Tilboð: 1.390 þús. Chevrolet Aveo - Bílalegubíll í ábyrgð Auk aga ngu r 60 þú s. virð isau ki LANDSPÍTALINN FOSSVOGI Minningarat- höfn verður við bráðamóttökuna. UMFERÐARMÁL Alþjóðlegur dagur fórnarlamba umferðarslysa er á sunnudaginn. Þá verður minn- ingarathöfn við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Fórnar- lamba umferðarslysa verður minnst og þær starfsstéttir sem koma að björgun og aðhlynningu verða heiðraðar. Forseti Íslands og ráðherrar verða viðstaddir. Athöfnin hefst klukkan 11.00 og klukkan 11.15 verður einnar mínútu þögn til minningar um fórnarlömbin. - gar Fórnarlömb umferðarslysa: Mínútu þögn á sunnudaginn DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest ákvörðun Héraðsdóms Vesturlands þess efnis að maður frá Palestínu skuli sæta farbanni þangað til réttað verður að nýju í nauðgunarmáli á hendur honum og dómur fellur. Héraðsdómur dæmdi manninn í sumar í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum en Hæstiréttur ómerkti dóminn þar sem mikilvæg máls- skjöl hefðu ekki verið þýdd á móðurmál sakborningsins. Manninum, sem er frá Palest- ínu en án ríkisfangs, verður því óheimilt að yfirgefa landið þar til dómur fellur, en þó ekki lengur en til 21. desember. - sh Bíður annarra réttarhalda: Í farbann vegna kynferðisbrots VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið (FME) fann engin dæmi þess að inn- herjaviðskipti hefðu átt sér stað í lokuðu útboði á hlutabréfum Eim- skips sem fram fór í lok síðasta mánaðar. FME tók útboðið til rannsóknar eftir að ábendingar bárust því um að fjárfestar hefðu mögulega ekki setið allir við sama borð. Þannig voru forsvarsmenn margra lífeyrissjóða og ann- arra fagfjárfesta óánægðir með að hluti bjóðenda í útboðinu hefði fengið að skila inn tilboð- um með fyrirvörum án þess að skrán ingar lýsing hafi gert ráð fyrir slíku. Þá hefur því verið haldið fram að einstakir bjóðendur hafi haft spurnir af því að umdeildir kaup- réttir stjórnenda Eimskips yrðu felldir niður meðan á útboðinu stóð en ákvörðun um niðurfell- ingu kaupréttanna var ekki gerð opinber fyrr en að því loknu. Í tilkynningu frá FME segir að það hafi gert athugun á fram- kvæmd útboðsins og aflað gagna hjá umsjónaraðilum þess, Straumi fjárfestingarbanka og Íslands- banka, og fleiri aðilum. Ekki fundust hins vegar dæmi þess að viðskipti hefðu farið fram á grundvelli innherjaupplýsinga. - mþl Athugun FME á lokuðu útboði á hlutbréfum Eimskips leiddi ekkert vafasamt í ljós: Engin innherjakaup í útboði Eimskips Í SUNDAHÖFN FME bárust kvartanir vegna lokaðs útboðs á hlutabréfum í Eimskip og tók útboðið í kjölfarið til rannsóknar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1. Hversu margir titlar eru skráðir í Bókatíðindi í ár? 2. Hvar fundaði Össur Skarp- héðinsson með fulltrúa Palestínu- manna fyrr í vikunni? 3. Hvað heitir framkvæmdastjóri Hjúkrunarheimilisins Eirar? SVÖR 1. 842 titlar 2. Í Genf 3. Sigurður Rúnar Sigurjónsson ALÞINGI Stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd afgreiddi frumvarp um breytta stjórnarskrá í gær. Málið verður tekið til umræðu á þriðjudag. Meirihlutinn leggur nú drög að því að senda frumvarpið til Feneyja- nefndarinnar, þar sem það verði metið heildstætt. „Ég er að leggja drög að því í smáatriðum. Ég veit að þeir geta tekið við þessu, en smá- atriðin eru ekki alveg ljós. Þeir geta tekið við þessu og gert þetta innan þeirra tímamarka sem við þurfum,“ segir Val gerður Bjarnadóttir, formaður stjórn- skipunar- og eftir litsnefndar. Ólöf Nordal, fulltrúi Sjálf- stæðisflokks- ins í nefndinni, segir óeðlilegt að málið fari í umræður á Alþingi áður en heildstætt mat hafi farið fram á áhrifum breyt- inga á stjórnar- skrá. Sérfræð- ingahópur hafi bent á að slíkt mat vantaði. „Hér er um að ræða frumvarp sem kemur annars staðar frá og mér finnst eðlilegt að meiri hlutinn láti þetta mat fara fram áður en hann leggur frumvarpið fram.“ Ólöf segir mikla vinnu eftir við málið, einnig eigi eftir að fara yfir þær athugasemdir sem aðrir sér- fræðingar hafa gert. „Við verðum bara að vinna þetta mál. Menn verða bara að gefa sér tíma í það og við munum auðvitað kalla eftir því að það verði gert og þá inni í nefndinni,“ segir Ólöf. Valgerður er enn sannfærð um að unnt sé að ljúka málinu fyrir vorið, þó mikil vinna sé eftir. „Við þurfum að fá málið aftur inn í nefndina þannig að við getum hafist handa við að senda þetta inn í ráðuneytin hér til að athuga hvort þurfi einhver bráðabirgðaákvæði, svo eitthvað sé nefnt. Þá vinnu þarf að vinna og svo er hægt að hefja þá efnislegu umræðu sem menn hafa beðið eftir um leið og málið kemur aftur fyrir nefndina,“ segir Val- gerður. „Þú getur líka verið með heild- stætt mat og það getur tekið fimm ár og þá gerist aldrei neitt, af því að þú ert alltaf að meta eitthvað. Það virðist nú vera það sem íhaldsmenn- irnir, hvar í flokki sem þeir standa, eru í núna.“ kolbeinn@frettabladid.is Stjórnarskrártillaga verður rædd á Alþingi á þriðjudag Frumvarp um breytingar á stjórnarskrá var afgreidd úr nefnd í gær og verður til umræðu á þriðjudag. Stefnt að því að breytingar náist fyrir þinglok. Stjórnarandstaðan vill mat á áhrifum fyrir umræðurnar. Feneyjanefndin er ráðgefandi aðili fyrir Evrópuráðið í stjórnarskrár- málum, en hún var sett á fót árið 1990. Feneyjanefndin hefur komið að þróun stjórnskipunar í Evrópu og aðlögun stjórnskipunar ESB að evrópskum stjórnskipunum. Feneyjanefndin SÉRFRÆÐINGAHÓPURINN Páll Þórhallsson kynnti í síðustu viku skýrslu sérfræðingahóps sem yfirfór lagatæknileg atriði stjórnar- skrárdraga. Hópurinn benti á að heildstætt mat á áhrifum breytinganna skorti. Feneyjanefndinni er ætlað að vinna það. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VALGERÐUR BJARNADÓTTIR ÓLÖF NORDAL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.