Fréttablaðið - 16.11.2012, Side 25
BJARNI ARA SYNGUR GOSPEL
Bjarni Arason verður með tónleika í Guðríðarkirkju í
Grafar holti í kvöld kl. 20.30 þar sem hann kynnir nýja
plötu sína, Elvis Gospel. Bjarni syngur þekkt gospel-lög
úr safni Elvis Presley ásamt frábærum bakraddasöngv-
urum og tónlistarmönnum.
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarps-
þáttinn Eldað með Holta á
ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga
rétti úr Holta-kjúklingi fyrir
áhorfendur. Hér færir Úlfar
okkur forsmekk að jólunum
með uppskrift að reyktum
hátíðarfugli með rauðvíns-
sósu og rauðrófum. Hægt er
að fylgjast með Úlfari elda
þennan girnilega rétt í kvöld
klukkan 20.30 á sjónvarps-
stöðinni ÍNN. Þættirnir verða
svo endursýndir yfir helgina.
Einnig er hægt að horfa á þá
á heimasíðu ÍNN, inntv.is.
Næstu föstudaga heimsækir
Úlfar fleiri matreiðslumeistara.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
■ HRÁEFNI
1 reyktur hátíðarfugl um
2 kg
3 skrældar rauðrófur
2 msk. olía
1 msk. smjör
15 skrældir smálaukar eða
tveir venjulegir í bátum
15 sveppir
1 msk. tómatpurée
1/2 flaska rauðvín
2-3 timíangreinar eða 1 tsk.
þurrkað
3-4 lárviðarlauf
1/2 tsk. nýmalaður pipar
1 msk. kjúklingakraftur
2 dl vatn
Sósujafnari
50 g kalt smjör í teningum
REYKTUR HÁTÍÐARFUGL
MEÐ RAUÐVÍNSSÓSU OG RAUÐRÓFUM
ht.is
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700
• GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380
• KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
Skannið merkið og sjáið mynd um JuiceMaster!
Búið til ljúffenga safa úr berjum, kiwi, chillí,
salatblöðum, brokkólí og auðvitað appelsínum
og tómötum! JuiceMaster er kröftug og hljóðlát
safapressa með 150 watta mótor sem gefur
hámarks árangur og heldur ferskum öllum
næringarefnunum sem eru í grænmetinu og
ávöxtunum. JuiceMaster tekur lítið pláss og er
mjög einfalt að þrífa á aðeins einni mínútu.
Endalausir möguleikar
með JuiceMaster
Juicemaster fæst bæði hvít eða stállituð.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
■ AÐFERÐ
Látið fuglinn í eldfast mót ásamt
rauðrófum. Kraumið lauk og sveppi í
potti með olíu og smjöri í 2 mínútur.
Bætið þá tómatpurée, rauðvíni, lár-
viðarlaufum, timíani og pipar í pottinn
og sjóðið í 1 mín. Hellið úr pottinum
í eldfasta mótið og færið það í 170
gráðu heitan ofn. Bakið í 40 mín.
Snúið þá fuglinum við og látið hann
liggja á bringunni í 40 mín. til viðbót-
ar eða þar til kjarnhiti sýnir 71 gráðu.
Sigtið allan safa úr eldfasta fatinu í
pott og bætið vatni saman við ásamt
kjúklingakrafti og þykkið með sósu-
jafnara. Skerið rauðrófurnar í báta
og setjið í pottinn. Takið því næst
pottinn af hellunni og bætið smjöri, í
teningum, saman við. Hrærið þangað
til smjörið hefur bráðnað. Eftir það
má sósan ekki sjóða. Berið fuglinn
fram með sósunni og til dæmis sell-
erírótarkartöflumús og salati.