Fréttablaðið - 03.01.2013, Síða 1
FRÉTTIR
M ér fannst peysan svo stórkost-lega falleg að ég gat ekki annað en keypt hana,“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir þegar við forvitnumst um nýj-ustu fatakaupin. Hún segir fólk oft verða hissa á að hún skuli kaupa prjónaföt þar sem hún lifi og hrærist í prjónaskap sem framkvæmdastjóri Knitting Iceland.„Fólk heldur að ég prjóni allt sjálf,“ segir hún hlæjandi. „En ég hef ekki tíma til að prjóna mikið á sjálfa mig og kaupi oft prjónaðar flíkur, bæði vél- og hand-prjónaðar, sem ég fell fyrir,“ segir hún. Peysan er frá franska merkinu Antik Batik og keypt í Amsterdam. Hún er vél-prjónuð úr ull og akrýl og unnin á sér-stakan hátt.
„Neðst á peysunni er rosalega fallegur
bekkur sem er prjónaður þvert á allt annað. Bekkurinn er í mörgum litum og
prjónaður á röngunni, sem er sérstakt. Ég nota peysuna sem yfirhöfn og oft nota
ég leðurvesti yfir hana frá E-label. Skórnir
eru líka í miklu uppáhaldi en þeir eru ASH-mótorhjólastígvél sem ég keypti líka
í Amsterdam. Mér finnst til dæmis mjög
gaman að vera í dömulegum kjól en svo
í grófum mótorhjólastígvélum við,“ segir
Ragnheiður, en hún þræddi búðirnar í Amsterdam á dögunum þegar hún vann
að hönnunarverkefni ásamt prjónahönn-
uðinum Stephen West. „Stephen býr í Amsterdam en hann er amerísk prjónarokkstjarna og er einn
frægasti hönnuðurinn í handprjóna-heiminum í dag. Við höfum unnið mikið saman og erum að vinna að prjóna-
kolleksjóni sem kemur út á bók í vor. Við
kennum prjónanámskeið í sameininguog á þessu ári bíð
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga
KRÓKABUXURNAR SÍVINSÆLUnýkomnar af tur !Stærðir : S,M,L ,XL ,2 X verð kr. 5.990,
Höfuðljós
Öflugt höfuðljós fyrir útivistarfólk
Verð: 14.450 kr.
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
GÓÐ KAUPNú eru útsölurnar hafnar af fullum krafti. Vetrar-
útsölur eru yfirleitt frábærar, enda henta fötin vel
hér á landi. Hægt er að gera góð kaup í verslunum
en einnig á netinu. Oft er umtalsverð lækkun á
fatnaði og flesta munar um þær krónur.
PRJÓNAR EKKI ALLT SJÁLFNÝJUSTU KAUPIN Ragnheiður Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Knitting Iceland, féll fyrir vélprjónaðri peysu á búðarölti í Amsterdam á dögunum.
GÓÐ YFIRHÖFN Ragnheiður Eiríks-dóttir notar nýju peysuna sem yfirhöfn og gróf stígvél við.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
16
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
3. janúar 2013
2. tölublað 13. árgangur
SKOÐUN Ögmundur Jónasson skrifar
um nýju barnalögin sem tóku gildi nú
í ársbyrjun. 17
SPORT Guðjón Valur Sigurðsson skor-
aði yfir hundrað landsliðsmörk í sjö-
unda skipti á nýliðnu ári. 34
og flott útsala
Fjörug
Opið
til
21
í kvö
ld
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
9
8
7
9
ÚTSALA
HEFST Í DAG
OPIÐ TIL
Í KVÖLD
Reykjavík • Borgartúni 31 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
STÚTFULLUR AF TILBOÐUM Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG
NÝR 4BLS
BÆKLINGUR
MENNING Friðrik Jónsson er húð-
flúraðasti maður Eskifjarðar og hefur
ekki tölu á tattúunum. 38
BÍÓ Bandaríski kvikmyndafram-
leiðandinn DreamWorks er vænt-
anlegur hingað til lands til að
taka upp atriði í
nýrri mynd um
Julian Assange
og vefsíðuna
WikiLeaks, The
Man Who Sold
the World. Sam-
kvæmt heimild-
um blaðsins fara
tökurnar að
öllum líkindum
fram í janúar
og verða í Reykjavík og nágrenni.
Ekki hefur verið ráðið í hlut-
verk þingkonunnar Birgittu Jóns-
dóttur sem hefur starfað fyrir
WikiLeaks en nokkrar íslenskar
leikkonur koma til greina. „Mér
finnst þetta svolítið óraunveru-
legt enn þá. Ég vonast til að þetta
verði ekki algjör Hollywood-
mynd,“ segir Birgitta, sem hefur
veitt handritshöfundinum Josh
Singer ráðgjöf. - fb / sjá síðu 38
DreamWorks í Reykjavík:
Kvikmynd um
WikiLeaks
tekin upp hér
BIRGITTA
JÓNSDÓTTIR
Bolungarvík 1° SV 2
Akureyri 1° SV 6
Egilsstaðir 3° SV 7
Kirkjubæjarkl. 3° SSV 4
Reykjavík 3° SSA 6
Lítilsháttar úrkoma og fremur hægur
vindur fram eftir degi en vaxandi vindur
með rigningu síðdegis og í kvöld. 4
VIÐSKIPTI Alls 15 milljarðar af
skuldum Höfðatorgs ehf., eignar-
haldsfélagsins sem á og rekur turn-
inn við Höfðatorg, voru afskrifaðar
við endurskipulagningu félagsins.
Fyrrum eigandi félagsins á samt
sem áður enn 27,5 prósenta hlut í
því. Þetta kemur fram í ársreikn-
ingi félagsins fyrir árið 2011 sem
nýverið var skilað til ársreikninga-
skráar.
Aðilar að nauðasamningi Höfða-
torgs hafa ekki viljað gefa upp
umfang skuldaniðurfellingarinn-
ar sem nú er orðið opinbert. Vegna
hennar var bókfærður hagnaður
félagsins 11,5 milljarðar króna á
árinu 2011. Eigið fé þess í lok árs
2011 var því jákvætt um 1,8 millj-
arða en hafði verið neikvætt um 10,6
milljarða fyrir endurskipulagningu.
- þsj / sjá síðu 12
Fyrrum eigandi félagsins hélt eftir 27,5% hlut við endurskipulagningu:
15 milljarða afskriftir Höfðatorgs
11,2
milljarðar er bókfært
virði turnsins við
Höfðatorg.
HEILBRIGÐISMÁL Hlutfall of
þungra eða of feitra íslenskra
barna hefur ýmist staðið í stað
eða lækkað síðustu níu til tíu
ár. Aftur á móti jókst hlutfall
barna yfir kjörþyngd áratugina
á undan.
Þetta eru niðurstöður tveggja
nýrra rannsókna er varða þyngd
barna hér á landi. Önnur snýr að
líkamsþyngdarstuðli íslenskra
barna sem eru yfir kjörþyngd
og hvernig skólahjúkrunarfræð-
ingar sinna þeim. Hin snýr að
tengslum mataræðis á fyrsta ald-
ursári við líkamsþyngd barnanna
þegar þau verða sex ára.
Samkvæmt þeirri fyrrnefndu
reyndust um 22,5 prósent barna
af báðum kynjum vera yfir kjör-
þyngd árið 2008. Fjöldinn hafði
haldist stöðugur undanfarin níu
ár þar á undan, þó tíðni of feitra
barna hafi sveiflast nokkuð, er
fram kemur í inngangi að kynn-
ingu rannsóknarinnar. Þá höfðu
rúmlega 60 prósent skólahjúkr-
unarfræðinga beitt sér vegna
ofþyngdar barna, annaðhvort
með viðtölum við börnin sjálf
eða samtali við foreldra þeirra.
Gagna var aflað úr rafræn-
um gagnagrunni heilsuverndar
skólabarna á höfuðborgarsvæð-
inu skólaárin 2003 og 2004 til
2011 og 2012. Einnig var sendur
út spurningalisti til skólahjúkr-
unarfræðinga.
Í hinni rannsókninni er sýnt
fram á hugsanleg tengsl á milli
prótínneyslu ungabarna og
þyngdar þeirra á sjötta aldurs-
ári. Eins og áður sagði hefur of
þungum sex ára börnum fækk-
að síðustu tíu ár, en samkvæmt
niðurstöðum rannsóknarinn-
ar bendir það til þess að lægri
prótín neysla, vegna minni neyslu
á venjulegri kúamjólk, gæti að
hluta til skýrt þann mun.
Niðurstöður rannsóknanna
tveggja, sem og fjölda annarra,
verða kynntar á stórri ráðstefnu
í líf- og heilbrigðisvísindum í
Háskóla Íslands í dag og á morg-
un. - sv
Of feitum börnum fækkar
Hlutfall sex ára barna yfir kjörþyngd er lægra nú en fyrir tíu árum. Offita barna almennt hefur ekki aukist.
Meirihluti skólahjúkrunarfræðinga beitir sér þegar börn eru yfir kjörþyngd, samkvæmt nýrri rannsókn.
Íslendingar borða hollari mat nú en fyrir tíu árum. Samkvæmt nýjustu
rannsókn eftirlitsaðila (Matvælastofnunar, Lýðheilsustöðvar og Landlæknis
árin 2010 og 2011) um mataræði landans virðist neysla á harðri fitu og
viðbættum sykri hafa minnkað, meira er borðað af grænmeti, ávöxtum og
grófu brauði og fleiri taka lýsi. Þar er verið að bera saman við niðurstöður
frá árinu 2002.
Prótínneysla Íslendinga er meiri en meðal nágrannaþjóða, en á sama
tíma hefur mjólkurneysla minnkað snarlega, eins og kom fram í annarri
rannsóknanna sem fjallað er um hér.
Íslendingar borða hollari mat
NÝÁRSSÍLDIN SNÆDD Hópur súlna, háhyrninga og hnúfubaka skemmti sér vel í Klaufinni, norður af Stórhöfða í Vest-
mannaeyjum, í gær. Nóg virtist vera af síld í sænum en dýrin hópast gjarnan á þessum slóðum til að gæða sér á torfunum.
MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Rétt slapp úr stígvéli
Móðir tveggja ára stúlku tókst naum-
lega að losa dóttur sína úr stígvéli
sem fest hafði í rúllustiga. 2
Sjávarútvegskaflinn strand Samn-
ingaviðræður milli Íslands og ESB um
sjávarútvegsmál komast ekki á næsta
stig fyrr en aðildarríki ESB ljúka rýni-
vinnu. 4
242 fengu ríkisborgararétt Alls
hafa 242 frá 60 löndum fengið
íslenskan ríkisborgararétt á þessu
kjörtímabili. 6
Frestuðu vandanum Banda-
ríkjaþing samþykkti á síðustu stundu
málamiðlunarfrumvarp þar sem
skattar á auðkýfinga eru meðal
annars hækkaðir. 8